Morgunblaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 4
4 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
EINS OG greint var frá í Morg-
unblaðinu á fimmtudag keypti FS7,
félag í eigu Finns Ingólfssonar,
fjórðung í Langflugi í desember
2007. Langflug hafði mánuði áður
keypt 32% hlut í Icelandair. Keypti
FS7 hlutinn á einn milljarð, en tók
á sig um leið ábyrgð á fjórðungi
skulda Langflugs, eins og Finnur
benti sjálfur á í Morgunblaðinu á
föstudag.
Þann 21. febrúar var samþykkt
að veita FS7 kauprétt að tveimur
milljörðum í Langflugi að nafnvirði,
en hlutafé Langflugs var þá fjórir
milljarðar.
Í ágúst 2007 skipti Finnur á
bréfum sínum í Langflugi og 7,9%
hlut í Icelandair. Þá keypti Finnur
bréf af öðrum hluthöfum í Ice-
landair, þ. á m. AB 57, félagi í eigu
Kaupfélags Skagfirðinga. Samtals
safnaði Finnur saman 15,5% í Ice-
landair, sem hann seldi á genginu
32 og keypti Máttur bróðurpartinn
af þessum bréfum. Hagnaður FS7
af sölu sinna 7,9% í Icelandair var
um 400 milljónir.
Að þessum viðskiptum loknum
nýtti FS7 sér kaupréttinn að tveim-
ur milljörðum í Langflugi og
greiddi fyrir það tvo milljarða
króna. Eftir þau viðskipti ræður
FS7 yfir tveimur þriðju hlutum í
Langflugi á móti einum þriðja hluta
Giftar. Hlutur Langflugs í Ice-
landair er 23,8% og óbeinn eign-
arhlutur FS7 því um 15,9%.
Viðskiptin voru gagnrýnd af
stjórnarmönnum í Gift og sagði
einn þeirra að aðstaða Giftar til að
fá gott verð fyrir sinn hlut væri
verri en áður. Markmiðið með kaup-
réttarsamningnum við FS7 hefði
verið að minnka hlut Giftar í Lang-
flugi, en ekki að skapa kauprétt á
lágu verði til að endurselja á
hærra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýtti sér kauprétt
ICELANDIC Gro-
up varð til í júní
2005 við samein-
ingu SH og Sjó-
víkur og fengu
hluthafar Sjóvík-
ur þriðjung í hinu
sameinaða félagi.
Sjóvík hafði ár-
ið áður keypt Ice-
land Seafood
Corporation af SÍF, en einn eigenda
Sjóvíkur var félagið Serafin Shipp-
ing. Fékk Serafin í sinn hlut um 6%
hlut í Icelandic.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var Ólafur Ólafsson,
stjórnarformaður SÍF, eigandi Se-
rafin. Hann mun hins vegar hafa
haldið þessum eignatengslum
leyndum fyrir stjórn SÍF, þegar
ákveðið var að selja Iceland Sea-
food til Sjóvíkur.
Við afgreiðslu málsins í stjórn SÍF
tók Ólafur ekki þátt í lokafrágangi
þess og bar við tengslum sínum við
Sund, stærsta eiganda Sjóvíkur.
Sund var þá hluthafi í Keri ásamt
Ólafi. Minntist hann hins vegar ekki
á eignarhald sitt yfir Serafin.
Að sameiningunni lokinni var
eignarhluta Serafin í Icelandic skipt
upp á milli tveggja félaga, Fordace
Limited og Deeks Associates. Með
6% hlut í Icelandic hefði Serafin
orðið tilkynningarskylt við Kaup-
höllina. Eftir skiptin var hlutur For-
dace í Icelandic 4,47% og hlutur
Deeks 1,49%. Hvorugt félagið var
því með yfir 5% í Icelandic Group
og því ekki tilkynningarskylt til
Kauphallarinnar.
Leyndi
eignarhaldi
Ólafur Ólafsson.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
U
m mitt ár 2006 keypti Exista allt
hlutafé VÍS eignarhaldsfélags, móð-
urfélags Vátryggingafélags Íslands,
og greiddi fyrir með hlutum í Ex-
ista. Stærsti eigandi VÍS var Kaup-
þing, með 29,6%, en þá áttu Samvinnutryggingar
25,8%, Hesteyri ehf., 24,7%, Samvinnulífeyrissjóð-
urinn 10% og Andvaka 5,3% í VÍS.
VÍS hafði orðið til árið 1989 með sameiningu
Brunabótafélags Íslands og Samvinnutrygginga.
Eignarhaldsfélagið Andvaka bættist í eigendahóp
VÍS þegar Lífís varð hluti af félaginu.
Andvaka var að helmingi í eigu Samvinnutrygg-
inga, síðar Giftar, og þá áttu Samvinnutryggingar
þriðjung í Hesteyri. Aðrir eigendur Hesteyrar
voru Skinney-Þinganes, félag í eigu Halldórs Ás-
grímssonar og fjölskyldu, og Fiskiðjan Skagfirð-
ingur, síðar FISK Seafood. Fiskiðjan er dótt-
urfélag Kaupfélags Skagfirðinga, en
kaupfélagsstjórinn, Þórólfur Gíslason, var jafn-
framt stjórnarformaður Samvinnutrygginga.
Gift gat ekki selt sinn hlut
Exista átti fyrir 20% í VÍS, en verðmæti hluta-
fjárins, sem aðrir eigendur fengu í Exista, var
metið á um 53 milljarða króna. Eftir sameiningu
Exista og VÍS áttu Samvinnutryggingar 5,7% í
Exista og Hesteyri átti önnur 5,7%. Andvaka átti
hins vegar 1,6%. Ári síðar, í júní 2007 er tekin
ákvörðun um að breyta Eignarhaldsfélaginu Sam-
vinnutryggingum í hlutafélag, sem bera átti nafnið
Gift. Eigendur yrðu tryggingatakar í Sam-
vinnutryggingum og Brunabótafélaginu, auk
sjálfseignarstofnunarinnar Samvinnusjóðsins.
Á stjórnarfundi í Gift hinn 7. nóvember var eign-
arhluti félagsins í Exista gerður að umtalsefni.
Töldu sumir stjórnarmenn að óvarlegt væri að
meira en helmingur eigna Giftar væri í Exista og
hlutdeildarfélögum og var lögð fram tillaga um að
eignarhlutur Giftar í þessum fé-
lögum yrði minnkaður. Sam-
kvæmt fundargerðum, sem
Morgunblaðið hefur undir
höndum, greindi stjórn-
arformaðurinn, Þórólfur
Gíslason, þá frá „óformlegu
samkomulagi“ við Exista um
að hlutur Giftar yrði ekki seld-
ur fyrr en á árinu 2008.
Hendur Hesteyrar voru hins
vegar ekki bundnar á sama hátt,
en eins og áður segir á dótturfélag
Kaupfélags Skagfirðinga,
sem Þórólfur Gíslason
stýrir, þriðjungs-
hlut í Hesteyri.
Hinn 22. des-
ember 2006
barst til-
kynning til
Kauphall-
arinnar um
að Hesteyri
hefði selt 1,91% í Exista og var í fjölmiðlum talað
um að sölugengið hefði verið 23. Fékk Hesteyri því
4,9 milljarða króna fyrir hlutinn. Eftir söluna átti
Hesteyri 3,82% í Exista og voru viðskipti félagsins
með hluti í Exista því ekki lengur tilkynning-
arskyld.
Söluréttur Hesteyrar
Af þeim sökum er ekki vitað hvenær nákvæm-
lega Hesteyri seldi afganginn af bréfum sínum í
Exista, en í dag er félagið ekki lengur í hópi 20
stærstu hluthafa í Exista. Til samanburðar má
nefna að Andvaka er enn á þeim lista, en eign-
arhlutur Hesteyrar í Exista var í upphafi fjórum
sinnum stærri en hlutur Andvöku.
Samkvæmt gögnum, sem Morgunblaðið
hefur undir höndum, var hlutur Giftar ekki
einungis bundinn fram á árið 2008, sam-
kvæmt samkomulagi stjórnarformannsins við
Exista, heldur var Hesteyri með sölurétt á
sínum hlut til Exista. Hagsmunir Hesteyrar
og eigenda þess voru því mun betur tryggðir
en hagsmunir Giftar.
Hlutur Giftar í Exista var aldrei seldur og er
nú nær verðlaus, en gengi bréfa Exista hleyp-
ur nú á nokkrum aurum, en fór í júlí
2007 yfir 40. Hefði 5,7% hlutur
Giftar verið seldur á því
gengi hefðu 24,5 millj-
arðar fengist fyrir
hlutinn. Á gengi síð-
asta föstudags, fimm
aurum á hlut, fengj-
ust hins vegar að-
eins um 30 milljónir
króna fyrir hlutinn.
Hendur Giftar bundnar
Ekki var jafnræði með hluthöfum VÍS þegar samið var um sameiningu VÍS og Exista
Hlutur Giftar var bundinn til ársins 2008, en Hesteyri hafði sölurétt á sínum hlut
Morgunblaðið/Kristinn
Ráðherrar Halldór Ásgrímsson
og Finnur Ingólfsson, fyrrver-
andi ráðherrar, tengdust S-
hópnum með ýmsum hætti.
ÞEGAR Búnaðarbankinn var einka-
væddur árið 2003 var kaupandinn
hópur fyrirtækja sem kallaður var
S-hópurinn. Voru það fyrirtæki sem
áttu rætur sínar að rekja til Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
(SÍS). Félögin, sem keyptu 45,8%
kjölfestuhlut í Búnaðarbankanum,
voru Ker, VÍS, Samvinnulífeyr-
issjóðurinn og Samvinnutrygg-
ingar.
Ólafur Ólafsson var, og er,
stærsti eigandi Kers. Helstu eignir
félagsins voru Olíufélagið, tæplega
50% hlutur í Samskipum, um 14%
hlutur í SÍF og 11% hlutur í Vinnslu-
stöðinni.
Eins og áður hefur komið fram
voru Samvinnutryggingar stór hlut-
hafi í VÍS, en þá átti Hesteyri stór-
an hlut í félaginu auk Andvöku og
Samvinnulífeyrissjóðsins. Hesteyri
var svo í eigu Skinneyjar-Þinga-
ness, félags í eigu fjölskyldu Hall-
dórs Ásgrímssonar, FISK Seafood,
dótturfélags Kaupfélags Skagfirð-
inga (KS) og Samvinnutrygginga.
Stjórnarformaður Samvinnutrygg-
inga var Þórólfur Gíslason, sem
einnig var stjórnarformaður VÍS og
kaupfélagsstjóri KS.
Samvinnutryggingar voru hins
vegar gagnkvæmt félag, líkt og
kaupfélögin gömlu voru. Eigendur
voru tæknilega þeir sem voru í við-
skiptum við félagið á hverjum tíma,
en eftir stofnun VÍS töldust eig-
endur Samvinnutrygginga þeir sem
verið höfðu í viðskiptum við félagið
nokkur ár fyrir 1989. Þetta voru
þeir aðilar, sem áttu að verða hlut-
hafar í Gift, þegar ákveðið var að
breyta Eignarhaldsfélaginu Sam-
vinnutryggingum í hlutafélag.
Fulltrúaráð Samvinnutrygginga
skipaði í stjórn félagsins, en eig-
endur þess, tryggingatakarnir,
höfðu ekkert um stjórn félagsins að
segja.
Tengsl þessara fyrirtækja voru
náin og krosseignatengsl töluverð.
Nokkuð dró hins vegar úr tengslum
Kers og Samvinnutrygginga/VÍS
þegar Ker seldi eignarhlut sinn í
VÍS til Kaupþings. VÍS átti hins veg-
ar hluti í Samskipum, SÍF, Vinnslu-
stöðinni og öðrum fyrirtækjum
tengdum Keri.
Ljóst er að eignir VÍS-hluta S-
hópsins hafa minnkað til muna, en
þessir aðilar áttu stóra hluti í Kaup-
þingi og Exista, sem nú eru nær
verðlausir. Gift, áður Sam-
vinnutryggingar, eru tæknilega
gjaldþrota.
Leifar Sambands íslenskra samvinnufélaga
Morgunblaðið/Þorkell
Kátir Ólafur Ólafsson og Finnur
Ingólfsson eftir kaupin á Bún-
aðarbankanum árið 2003.
Stjórn Þórólfur Gíslason
var stjórnarformaður
Samvinnutrygginga við
samruna VÍS og Exista.
Morgunblaðið/Þorkell