Morgunblaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 49
Umræðan 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
Gefðu áskrift
að Morgunblaðinu
Gjafabréf Morgunblaðsins
er frábær gjöf til þeirra sem
eiga allt.Hægt er að velja um
ýmsar áskriftarleiðir og því
hægt að finna eitthvað sem
hentar öllum. Nánari upplýs-
ingar er hægt að fá á
www.mbl.is/askrift. – handa þér
Gjafabréfin fást í afgreiðslu Morgunblaðsins, Hádegismóum.
Nánari upplýsingar í síma 569-1100.
Áskrift að Morgunblaðinu er áheit á fréttir,
fræðslu og skemmtun dag eftir dag.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
64
71
Aðeins 6 íbúðir í boði!
Heimsferðir bjóða ótrúlegt sértilboð á síðustu
sætunum til Kanarí 4. og 11. febrúar. Nú er
rétti tíminn til að tryggja sér vetrarfrí í sólinni
á hreint frábærum kjörum. Aðeins 6 íbúðir í
boði á þessu ótrúlega sértilboði!
Frá kr. 99.950
- Vikuferð með allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í viku 11. febrúar.
Brottför 4. febrúar kr. 5.000 aukalega.
Verð m.v. 2 fullorðna kr. 109.990.
• Fjölskylduvænt hótel
• Veitingastaður
• Sundlaugarbar
• Fallegur garður
• Internetaðgengi
• Nuddpottur
• Barnaklúbbur
• Barnaleikvöllur
• Skemmtidagskrá
• Tennisvöllur
• Mini-golf
• Íþróttaaðstaða
... o.fl, o.fl.
Kanarí
4. og 11. febrúar
Ótrúlegt sértilboð!
Turbo Club Apartments
ALLT INNIFALI
Frá kr. 99.950
- Vikuferð með allt innifalið
UMRÆÐAN um
ýmsar aðgerðir stjórn-
valda, við núverandi
aðstæður í þjóðfélag-
inu, er oftast byggð á
tilfinningum ein-
staklinganna og þeim
áföllum, sem þeir per-
sónulega hafa orðið
fyrir. Þetta er skilj-
anlegt í mörgum tilfellum. En öðru
máli gegnir, þegar umræðan um
vandann er á sama tilfinningagrunni
innan upplýstra hagsmunasamtaka
fyrirtækja í ýmsum greinum at-
vinnulífsins. Í blöðum og á heimasíð-
um hafa hagsmunasamtök sett fram
athugasemdir og mótmæli vegna
skattahækkana, eins og þegar Al-
þingi samþykkti hækkun um 12% á
olíu- og áfengisgjaldið. Vegna þessa
hefur komið fram að ferðaþjónustan
sé ein af þremur meginstoðum ís-
lensks atvinnulífs og sú grein, sem
hafi vaxið hvað mest. Hún ætti mikla
möguleika á áframhaldandi vexti, ef
rekstrarumhverfi hennar væri við-
unandi. Þetta er mikið rétt. Að fyr-
irtækin í greininni hefðu gengið í
gegnum mikla erfiðleika vegna er-
lendra lána og gríðarlegra kostn-
aðarhækkana vegna gengisfalls
krónunnar. Nefnd hafa verið dæmi
um olíuverðið, sem væri að sliga
hópferðafyrirtækin, jeppaferðafyr-
irtæki og bílaleigur.
Upplýsandi framsetning
Það, sem ég hef hnotið um, er
misvísandi framsetning mótmæla,
miðað við fyrri mótmæli aðila í
greininni. Í mótmælum undanfarin
ár hefur fyrst og fremst verið jagast
við stjórnvöld vegna þess, að gengi
krónunnar væri allt of hátt, sem
hefði haft mjög neikvæð áhrif á
rekstur fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Blaðinu er snúið við og nú virðist
vandamál greinarinnar vera allt of
lágt gengi krónunnar. Væri ekki
eðlilegra, bæði fyrir þá sem ekki
þekkja og faglegra hjá greininni að
kanna úrtak fyrirtækja, rekstur
þeirra, hve hátt hlutfall hans sé í ís-
lenskum krónum, bæði tekju- og
gjaldamegin. Eru fyrirtækin með
tekjurnar og lánin í evrum og
rekstrargjöldin í krónum eða eru
þau með hvort tveggja í evrum eða
krónum?
Í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ,
sem gerð var um gengismál og
ferðaþjónustu fyrir samgöngu-
ráðuneytið og var aðallega gerð
vegna þess, að ferðaþjónustan hafði
kvartað yfir of háu gengi, segir m.a.:
„Gera má ráð fyrir að um 45% af
tekjum fyrirtækja í
ferðaþjónustu á Ís-
landi verði til í erlendri
mynt, en einungis 25%
kostnaðar. Misvægið
nemur því um 20% af
tekjum. Hér er sérstök
ástæða til að staldra
við þá stöðu sem inn-
lendar ferðaskrifstofur
og flugfélög eru í. Um
90% af tekjum inn-
lendra ferðaskrifstofa
verða til við sölu á
ferðum og þjónustu til
erlendra aðila sem greiða oftast fyr-
ir í evrum. Á móti kemur að einungis
um þriðjungur kostnaðar þessara
aðila er í erlendum gjaldeyri. Um
tveir þriðju hlutar tekna íslenskra
flugfélaga verða til í erlendri mynt
en 35-45% af kostnaðinum“.
Láta útskýringar fylgja
Komið hefur fram að olíuverð sé
að sliga fyrirtækin. Rétt er, að hátt
olíuverð hefur slæm áhrif víða í
greininni. Staðreyndin með bílaleig-
urnar er þó, að viðskiptavinir þeirra
greiða bróðurpartinn af bensíni á
bílana. Verð áfengis hækkar lítillega
vegna hækkunar stjórnvalda um
12% á áfengisgjaldi, sem er aðeins
hluti af verði þess. Áfengisgjaldið er
föst tala í verði áfengis á lítra eftir
styrkleika og því hlutfallslega hærra
á ódýrara víni en því dýrara. þetta
hefur hlutaáhrif á endaverð neyt-
andans og er ætíð velt út í verðlag.
Þannig eru það þeir, sem taka á sig
þessar verðhækkanir stjórnvalda en
ekki fyrirtækin.
Skýrsla frá samgönguráðuneytinu
nefnist „VERÐLAGNING
ÁFENGIS Á ÍSLANDI“ – „Er
áfengisgjaldið vandamál?“ og er eft-
ir Reyni Ragnarsson MBA og lög-
giltan endurskoðanda. Skýrslan
kom út í desember 2004.
Í niðurstöðum og lokaorðum
skýrslunnar, segir m.a.:
„Það er ljóst að áfengisgjald er
lagt á áfengi í nánast öllum ríkjum
Evrópu, álagning gjaldsins á Íslandi
sker sig úr með því að vera hæsta
gjaldið“.
„…Ef lækka á áfengisverðið á Ís-
landi verða hagsmunaaðilar, bæði
ríkið og handhafar vínveitingaleyfa,
að taka höndum saman í þeim efnum
með því að lækka bæði áfeng-
isgjaldið og álagninguna hjá veit-
ingahúsunum…“. Eins og fram
kemur er áfengisgjaldið hæst hér á
landi en það sem skiptir þó meira
máli er að samkvæmt yfirliti í
skýrslunni var álagning veitinga-
húsa á franskt rauðvín allt að 215%.
Málefnalegt aðhald
Að lokum, eins og segir í bókinni
góðu um lífsreglurnar fjórar:
„Hafðu hugrekki til þess að spyrja
spurninga og til að biðja um það
sem þú raunverulega vilt“. Aðhald
með stjórnvöldum er gott en á að
byggjast á að spyrja spurninga og
láta svo umræðuna snúast um stað-
reyndir en ekki um tilfinningar, oft
vegna rangra forsenda eða álykt-
ana. Okkar dýrmæta tíma nú, við
erfiðar aðstæður, er best varið, að
mínu mati, til þess að hvetja stjórn-
völd til samvinnu og átaks með okk-
ur í ferðamálum. Ferðaþjónustan
er fyrst og fremst atvinnugrein
mannlegra samskipta og hug-
lægrar vöru. Þess vegna sýnum við
sanngirni í samskiptum við stjórn-
völd og einbeitum okkur nú að því
að nýta öll tækifæri ferðaþjónust-
unnar til aukinna umsvifa og ávinn-
ings fyrir land og þjóð.
Pétur Rafnsson
skrifar um mik-
ilvægi ferðaþjón-
ustu
» Væri ekki eðlilegra,
bæði fyrir þá sem
ekki þekkja og faglegra
hjá greininni að kanna
úrtak fyrirtækja, rekst-
ur þeirra, hve hátt hlut-
fall hans sé í íslenskum
krónum…
Pétur Rafnsson
Höfundur er verkefnastjóri Ferða-
málastofu og formaður Ferðamála-
samtaka Íslands.
Málefnalegt aðhald
með stjórnvöldum MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út-gáfudaga aðsendar umræðugrein-ar frá lesendum.
Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði
við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til
blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru
skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana,
fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og
ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morg-unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-ins. Formið er undir liðnum Senda
inn efni ofarlega á forsíðu mbl.is.
Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein. Ekki er
lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti.
Móttaka aðsendra greina
@
Fréttir
á SMS