Morgunblaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008 Árni Heiðar: „Það munar 12 árum á okkur Bjarna. Ein- hverjar fyrstu minningar mínar af honum eru þegar hann var í Menntaskólanum við Hamrahlíð og keyrði um á skellinöðru, mjög flottri Hondu að mig minnir. Hann var oft næstum því búinn að drepa sig á skellinöðrunni. Svo var hann mikið í fjallgöngum og klifri. Hann var alltaf í einhverjum gönguferðum. Hann var mikið í útivist og fór í allskonar svaðilfarir. Ég hef sterka minningu af honum alltaf í einhverri lífshættu! Hann er oft næstum því búinn að drepa sig, höfuðkúpubrotnaði með því að detta í stiganum heima hjá okk- ur. Svo datt hann af hjóli úti í Banda- ríkjunum og höfuðkúpubrotnaði. Hann var alltaf í stórhættu en hann hefur lagast með árunum. Hann fer sér ekki lengur svona mikið að voða eins og hann gerði þegar hann var drengur. Það var mikið beðið fyrir honum í fjölskyldunni og allir með sérstakar áhyggjur af honum. Bjarni skeggræddi mikið við foreldra mína og aðra í fjölskyldunni um guðfræði og trúmál. Hann hefur haft einlægan áhuga á guðfræði frá því hann var ungur og var líka mikið í félagsskap í kringum KFUM og Þjóðkirkjuna og vann í sumarbúðum á þeirra vegum. Ég náði að vera í nokkrum flokkum í sumarbúðum þegar hann var forstöðumaður með honum í Ölveri og Laugargerðisskóla. Það var ógleymanlegt að fara þar með honum í svaðilfarir úti í náttúrunni og ég held ég geti þakkað honum það að hafa lært að njóta þess að fara í fjallgöngur. Hjálpsamur að eðlisfari Ég hef verið svo heppinn að vinna með Bjarna í kirkju- starfi, bæði í fermingarfræðslu og spilað með honum í at- höfnum og barna- og unglingastarfi. Þá koma tengsl okkar vel í ljós því samstarfið gengur svo smurt. Svo vann ég með honum eitt sumar í sumarbúðum Þjóðkirkjunnar við Vestmannsvatn í Aðaldal. Ég var þá 13 ára og vann hinn ýmsu störf sem þurfti að gera. Núna hittumst við reglu- lega og förum í bíltúr saman og spjöllum um heima og geima, oft um það sem hann ætlar að tala um næsta sunnudaginn eða það sem hann er að spá í heimspeki og guðfræði. Ég hef mjög gaman af því að tala við hann og mér finnst ég alltaf uppgötva eitthvað í þessum samtölum sem ég hafði ekki hugsað um áður. Bjarni er síglaður, hann er nær alltaf í góðu skapi og hefur ótrúlega létta lund. Hann er mjög hjálpsamur að eðlisfari og alltaf tilbú- inn létta undir með fólki. Hann er einstaklega ósérhlífinn maður og er til staðar fyrir þá sem þurfa á því að halda. Hann er líka afskaplega bjartur karakter, bjartsýnn og með sterka réttlætiskennd. Honum er líka mjög hugleikið að enginn sé skilinn útundan og allir séu með og finnst mér það eiginlega vera grundvallarþráður í gegnum allt sem hann gerir. Með mjúkan leiðtogastíl Í Laugarneskirkju er fullt af fólki að vinna í sjálfboðavinnu og grasrót- arstarfi og mér sýnist hann ná ótrúleg- um árangri í því að leyfa öðru fólki að blómstra í kringum sig. Það er alltaf eitthvað að gerast í kirkjunni hjá hon- um og svo greinilegt að það laðast gott fólk að honum í þessi störf. Hann er með mjúkan leiðtogastíl og stundum alls ekki sjáanlegan og hann gerir sig alls ekki ómissandi þar sem hann kem- ur. Eitt er það þó sem háir honum í starfinu og það er hvað hann er ómannglöggur. Við erum það báðir! Nöfn og andlit eru ekki okkar sterkasta hlið. Það er hinsvegar líka alveg frá- bært því að það geta skapast skemmtilegar og vandræða- legar aðstæður, sem gaman er að rifja upp þegar tækifæri gefst. Sem ræðumaður nær hann einstaklega vel að tala við fólk á venjulegum nótum, hann fer ekki í neinn ákveðinn prestastíl. Hann talar um hlutina eins og þeir eru og segir skoðanir sínar á þeim. Honum tekst að vera leiðtogi því hann getur sagt hlutina eins og þeir eru á þann hátt að maður skilur það. Svo nær hann að halda áfram og gefa fólki heilbrigða sýn á það sem lífið hefur uppá að bjóða og hvað skiptir virkilega máli. Hann getur talað af sannfær- ingu um samfélagsmál af því að hann er í tengslum við venjulegt fólk í landinu og veit hvað er því ofarlega í huga. Svo smitast allir af því hvað hann hefur jákvætt viðhorf til lífsins og tekur sjálfan sig ekki of alvarlega.“ Bjartur karakter í lífshættu ‘‘BJARNI ER SÍGLAÐUR,HANN ER NÆR ALLTAF ÍGÓÐU SKAPI OG HEFURÓTRÚLEGA LÉTTA LUND. HANN ER MJÖG HJÁLP- SAMUR AÐ EÐLISFARI OG ALLTAF TILBÚINN LÉTTA UNDIR MEÐ FÓLKI. Bjarni Karlsson fæddist 6. ágúst 1963. Bjarni og Árni Heiðar eru synir Karls Sævars Benediktssonar og Helgu Steinunnar Hróbjartsdóttur. Bræður þeirra eru báðir læknar og heita Flosi, f. 1960, og Hró- bjartur Darri, f. 1961. Bjarni er kvæntur sr. Jónu Hrönn Bolla- dóttur, sóknarpresti í Garða- prestakalli. Þau eiga þrjú börn, Andra 25 ára, Matthildi 20 ára og Bolla Má 16 ára. Bjarni lauk embættisprófi frá guðfræðideild Háskóla Ís- lands haustið 1990 og meist- araprófi í guðfræðilegri sið- fræði frá sama skóla haustið 2007. Hann starfaði sem aðstoð- arfangaprestur og aðstoð- arprestur í Laugarneskirkju veturinn 1990-91. Var sókn- arprestur í Vestmannaeyjum 1991-98. Tók þá við sem sókn- arprestur í Laugarneskirkju og starfar þar enn. BJARNI KARLSSON ÁRNI HEIÐAR KARLSSON Árni Heiðar Karlsson fæddist í Reykjavík 6. júlí 1975. Hann er í sambúð með Maríu Kristínu Jónsdóttur hönnuði. Hann er með Master of Music (M.M.) frá College-Conservatory of Music í Cincinnati í Bandaríkj- unum. Ennfremur hefur hann lokið burtfararprófi frá Tón- listarskólanum í Reykjavík og burtfararprófi frá djassdeild Tónlistarskóla FÍH. Hann hefur unnið sem píanóleikari síðan 1995. Hann var að gefa út plötuna Fegursta rósin með Nýja kvartettinum og voru af því tilefni útgáfutónleikar í Þjóð- menningarhúsinu í gær. Einnig spilar Árni Heiðar á jóla- tónleikum með Björgu Þór- hallsdóttur sópransöng- konu í Iðnó í dag kl. 17. Gleðileg jól M b l1 06 41 30 Síðumúla 3 · Reykjavík · 553 7355 Undirföt • náttföt • náttkjólar • sloppar Kvenfatnaður Gjafabréf Glæsilegar jólagjafir Opið til kl. 21.00 alla daga til jóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.