Morgunblaðið - 21.12.2008, Page 64

Morgunblaðið - 21.12.2008, Page 64
64 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008 1. Nat King Cole – „The Christmas Song (Chestnuts Roasting on an Open Fire)“ Það er nú meira, þetta ömurlega yfirlæti sem lekur af hverjum tón í þessu smeðjulega lagi. Cole situr drýgindalegur í tennispeysunni við arineldinn og þykist hafa einhver skilaboð til lýðsins. Bjakk! Það mætti ýmislegt fleira fara á eldinn en þessar kastaníuhnetur … 2. Wham! – „Last Christmas“ Úff … hver er ekki fyrir löngu kominn með upp í kok af þessu væmna, smásmugulega eitísglingri þeirra brúnkubræðra, George Michael og Andrew Ridgeley! Hrikalegt alveg hreint!! Steininn tekur svo úr þeg- ar þeir velta sér um í snjó eins og bavíanar í meðfylgjandi myndbandi. Ömurlegt. 3. Band Aid – „Do They Know It’s Christmas?“ Jæja, þurftu þá ekki ofaldir og vita smekklausir milljónamæringar úr poppbransanum að pynta okkur, blásaklausa hlustendur, með þessu handónýta lagi til þess eins að sefa eigin sam- visku!! Hið sanna eðli þeirra er þó afhjúpað með eftirminnilegum hætti í eftirfarandi texta- broti: „Well tonight thank God it’s them instead of you“. Maður er orðlaus yfir þessari vitleysu. 4. Bing Crosby – „White Christmas“ Þessi gamla sveskja, og repúblikani í þokkabót, þurfti endilega að dæla út jólalögum á sinni tíð í tugavís og í meira en hálfa öld höfum við þurft að þjást vegna þessa. „White Christmas“, sungið með dauðyflislegri, drepleiðinlegri bassarödd, er kristaltærasta dæmið um þá glæpi sem Bing gamli hefur framið í þessari deildinni. Sveiattan!! 5. John Lennon og Yoko Ono –„Happy Xmas (War Is Over)“ Hvað er þetta með að nota jólin til að trana sér og sínum fram og sefa einhverja samvisku?! Lennon og Ono, sjálfumglatt milljónerapakk og frístundamót- mælendur með meiru ákváðu sisona að binda enda á öll heims- ins stríð með lagi, hverju öðru. Ekki höfðu þau erindi sem erfiði, og nægir að hlusta á lagið til að skilja af hverju. 6. Paul McCartney – „A Wonderful Christmas Time“ Paul „greyið“ McCartney þurfti þá að sjálfsögðu að leggja í jólalagapúkkið, hrakinn áfram af minni- máttarkennd gagnvart Lennon. McCartney, höf- undur margra af öm- urlegustu lögum dæg- urtónlistarsögunnar, bætir glæsilega í þann sarp með þessum mar- flata og mæðulega söng. „Simply having a won- derful Christmas time,“ segir þar. Ég segi hins vegar einfaldlega hundleiðinlegt! 7. Eartha Kitt – „Santa Baby“ Nei, nei, nei og aftur nei. Nú er nóg komið. Er smekkleysið ekki löngu búið að keyra um þverbak spyr ég? Þurfum við virkilega á þessum ósóma að halda? Að þurfa að hlusta á kvensnift draga feitlaginn síðskeggjaðan mann á tálar á frem- ur rætin og slepjulegan hátt. Í skjóli jólanna!!! 8. Cliff Richard – „Mistletoe & Wine“ Botninum náð. Ég held að ég sé ekkert að tjá mikið um þetta lag. Annað en að þetta er ÖMURLEGT DRASL! 9. Jethro Tull – „Ring Out Solstice Bells“ Nei, heyrðu mig nú! Þó að Ian Andersson, einfætti flautu- leikarinn úr Tull líti út eins og jóla- sveinn er ekki þar með sagt að hann valdi söngvum þeim tengdum. Engu að síður svínar þessi gla- seygi brjálæðingur inn á jólalagasviðið með morknu, miðaldastemmulagi sem gerir hvern þann er hlustar á þunglyndan um leið. Til hvers, Ian? 10. Bill Nighy – „Christmas Is All Around“ Ömurðin heldur ótrau … nei bíddu … er þetta ekki stórvinur minn, hinn tröllslegi Bill Nighy með sína smekkvísu útgáfu af ódauðlegum slagara Troggs, „Love is All Around“? Tær snilld. Fimm stjörnur. 1. Sniglabandið – „Jólahjól“ Ég sver það … ef ég heyri þetta bannsetta lag einu sinni enn þá tek ég þetta hjól og … svo mik- ið er þjösnast á þessu lagi yfir hátíðirnar að það glymur í hausnum á manni langt fram á vor! Er enginn möguleiki á að frysta spilun á þessu afstyrmi í framtíðinni? 2. Í svörtum fötum – „Jólin eru að koma“ Þessir gleiðmynntu poppgosar gátu ekki látið það ógert að hella úr barmafullri poppfroðufötu sinni yfir á jólalagaformið með þessum líka stórkostlega árangri. Uppblásið og yfirdrif- ið, svo mjög að mann hreinlega sundlar. Hljómar helst eins og auglýsing fyrir Kringluna! 3. Helgi Björnsson – „Ef ég nenni“ Ef ég nenni? Halló! Hvað er eiginlega í gangi hérna!? Á tímum sem snúast um gjafmildi, auð- mýkt og fórnfýsi nennir sjálfur Helgi Björns þessu varla. „Koss fyrir lítið – ef ég nenni, feg- urstu rósir – ef ég nenni, gullsveig um enni – ef ég nenni, öll heimsins undur – ef ég þá nenni!!! 4. Eiríkur Hauksson – „Jól alla daga“ Einmitt. Jól alla daga. Stórkostlegt. Vandamálið er bara að þá þyrftum við að hlusta á þetta helv.... lagagerpi alla daga! Þegar bjöllurnar, barnakórinn og svívirðileg Evróvisjónhækkunin koma svo undir restina rennur manni kalt vatn milli skinns og hörunds af hroða. Ekki meir Ei- ríkur! 5. Laddi – „Snjókorn falla“ Ja, hérna hér! Konungi grínsins væri nú hollast að halda sig þar sem hann kann best að fóta sig. Mínum grænloðna heila er það hulin ráðgáta af hverju spaugsnilling- urinn lét hafa sig út í að syngja yfirmáta glatt, glaðvært og væmið lag um blessuð jólin – án votts af spotti eða spéi. Þetta sorp er best geymt í reiðileysi úti á götu með stein- dauðum jólatrjám. Og nei, ég ætla EKKI að kyssa þig undir mistilteininum í kvöld! 6. Eyjólfur Kristjánsson – „Gleðileg jól (allir saman)“ Urrg … þarf ekki hinn ómfagri og söngblíði Eyjólfur Krist- jánsson að leggja sitt til málanna í líki enn eins trosnaðs og yf- irmáta væmins jólalags. „Gleðileg jól. Allir saman. Það er komin jólastund“. Só! Og þetta þarf maður að þola u.þ.b. fimm- tíu sinnum á dag … á öllum stöðvum! 7. Pálmi Gunnarsson – „Gleði og friðarjól“ Ekki batnar það … kemur ekki hófstillti bassafanturinn Pálmi Gunnarsson, beint að norðan, með enn eina þumbaralegu þvæluna um gleði, frið og kærleika!! Stóra vandamálið með þessi bévítans lög er að þau eru öll eins! Renna saman í sýrópsdrjúpandi sull sem fær mann til að sortna fyrir augum … en verst er þó með eyrun. 8. Svanhildur og Anna Mjöll – „Jólaleg jól“ Jólaleg jól? Kaffilegt kaffi? Snjókallalegur snjókall? Eru virkilega engin takmörk fyrir því lygilega hug- myndaleysi og ímyndunarskorti sem þetta bless- aða jólalagafólk er sekt um? Ég er orðinn grænn af reiði út af þessu helv … 9. Björgvin og Svala – „Fyrir jól“ Ætli þau feðgin séu búin að finna jóla- gjafirnar sem þau eru búin að vera að leita að núna í tuttugu ár? Vonum það. Þá er mögulegt að þetta lag verði LOKSINS tekið úr spilun! 10. Egill Ólafsson, Karlakórinn Fóstbræður og Sönghópur Söngskólans – „Helga nótt“ Guð minn almáttugur. Af hverju nokkrum manni finnst þessi dóma- dagsleiðindi vera á einhvern hátt fal- leg, helg eða hátíð- leg er mér alger- lega óskiljanlegt. Sem betur fer er liðið yfir mann úr leiðindum til- tölulega snemma þannig að maður þarf ekki að þola við út allt lagið. Það er kannski eitthvað jákvætt við þessi jólalög eftir allt sam- an? Þegar Trölli slátraði jólalögunum Nú er svo komið að jólalög, innlend sem erlend, hafa dunið látlaust á eyrum landsmanna í rúmlega mánuð. Margir eru orðnir langþreyttir á síbyljunni, hoknir af endalausum nið bjölluhljóms og barnakóra. Einn er sá sem veigrar sér ekki við að segja nákvæmlega hvað honum finnst um þetta flóð jólalaga og eftirlét hann Morgunblaðinu skýrslu þar um. Þessara jóla verður því héðan í frá minnst sem þeirra jóla „þegar Trölli slátraði jólalögunum“. ÚtlensktÍslenskt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.