Morgunblaðið - 21.12.2008, Qupperneq 6
6 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
Fyrir rúmri viku tilkynntu yfirvöld íSimbabve um útgáfu 500 millj-
óna dala seðils sem jafngildir um
átta Bandaríkjadölum. Á föstudag
var svo gefinn út 10 milljarða dala
seðill. Verg landsframleiðsla í Sim-
babve hefur fallið á ári hverju frá því
árið 2000 og fór árið 2003 niður um
10,4%.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur
að efnahagur landsins hafi skroppið
saman um 6,1 % árið 2007.
Verg landsframleiðsla á mann var
talin um 200 Bandaríkjadalir árið
2007 en var um 900 dollarar árið
1990.
Atvinnuleysi er talið yfir 90% og
yfir 3 milljónir Simbabvemanna hafa
flúið land í leit að vinnu og mat.
Efnahagslíf Simbabve hefur
skroppið hvað mest saman í heim-
inum af löndum sem ekki eiga í
stríði að mati Alþjóðabankans.
Matvælaáætlun SÞ (WFP), semveitir yfir 100 milljónum
manns um víða veröld húsaskjól og
matavælaaðstoð, tilkynnti í vikunni
að skera yrði verulega niður
matvælaúthlutanir.
WFP fór fram á 5,2 milljarða
Bandaríkjadala frá alþjóðlegum
styrkveitendum fyrir árið 2009 en
hingað til hafa einungist borist um
500 milljónir dala.
Það er afleiðing þess að rík-
isstjórnir víða um heim skera nú
niður fjárframlög til hjálp-
arstarfsemi í ljósi fjármálakrepp-
unnar. „Matvælaskortur er miklu
meiri á heimsvísu en ég hefði
nokkru sinni spáð fyrir um. Við bú-
umst við því að fjármálakreppan
muni auka þrýstinginn á berskjöld-
uðustu íbúa heims,“ segir Josette
Sheeran, framkvæmdastjóri WFP.
Utanríkisráðherrar Norðurlandahafa gefið frá sér yfirlýsingu
þar sem þeir lýsa yfir hneykslan á
hinu alvarlega ástandi í Simbabve,
sem fari versnandi dag frá degi.
Þjáning íbúa Simabve hafi aukist
með kólerufaraldrinum og þrátt fyr-
ir að lækning sé til við sjúkdómnum
hafi fjöldi manna látið lífið.
Í yfirlýsingunni segir að yfirvöld í
Simbabve beri ein ábyrgð á ástand-
inu auk þess sem ofbeldi og hót-
unum í garð stjórnarandstöðu-
manna linni ekki.
Ráðherrarnir skora á stjórn-
arflokkinn Zanu-Pf og stjórnarand-
stöðuflokkinn MDC að reyna að ná
samkomulagi um myndun stjórnar.
Þá ítreka þeir jafnframt vilja sinn til
að styðja við efnahagslega og sam-
félagslega uppbyggingu í Simbabve
þegar trúverðug stjórn hafi verið
mynduð og sýnt þykir að staðið
verði við grundvallarreglur alþjóða-
samfélagsins, einkum hvað varði
virðingu fyrir mannréttindum.
Molar
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
U
ppskerubrestur og efnahagshrun
hafa valdið hungursneyð og kóleru-
faraldri í Simbabve. Milljónir búa
við hungur og þegar hafa margir
látist. „Það má sjá fólk berjast hvað
við annað um mat og jafnvel við villidýr eins og
vörtusvín bara til að geta fært börnum sínum
mat,“ hefur Washington Post eftir starfsmanni
hjálparsamtaka í Simbabve. Þegar matvælaaðstoð
berist ekki fyllist fólk örvæntingu og keppi jafnvel
við apa um leifar af sorphaugum.
Matvælaáætlun SÞ (WFP)
hefur tilkynnt að stofnunin muni
eiga í verulegum vandræðum
með að veita 49 milljónum manna
á helstu hungursvæðum heims
aðstoð sína á næsta ári. Fyrir
næsta ár hafi fjárveitingar vegna
Simbabve aðeins náð 16 millj-
ónum Bandaríkjadala, en WFP
fór fram á 140 milljóna dala stuðn-
ing.
Milljarðar í vasanum
Robert Mugabe, forseti Sim-
babve, hefur verið við völd í land-
inu í 28 ár í skjóli ofbeldis, kúg-
unar, spillingar og óstjórnar í
efnahagsmálum.
Verðbólga var 231 milljón prósenta í júlí þegar
síðustu tölur voru gefnar út en hagfræðingar telja
hana mun hærri nú og að verðlag tvöfaldist á degi
hverjum. Árið 1987 var verðbólgan í landinu
11,9%.
Nýi 10 milljarða Simbabve-dalaseðillinn sem
gefinn var út á föstudag „til þæginda fyrir íbúa
landsins í ljósi hátíðarinnar framundan“ að því er
sagði í tilkynningu frá seðlabankastjóra landsins,
er nánast verðlaus. Hann dugir rétt fyrir tuttugu
brauðhleifum og fara íbúar Simbabve því klyfjaðir
seðlabúntum til að kaupa nauðsynjar.
Kólera bætist ofan á hungrið
Samkvæmt tölum SÞ hefur kólerufaraldur nú
orðið rúmlega þúsund þegnum landsins að bana og
yfir 20.000 hafa smitast. Helstu orsakir kólerufar-
aldursins er hörgull á hreinu drykkjarvatni og við-
unandi hreinlætisaðstöðu auk þess sem efnahags-
ástand landsins hefur valdið hruni
heilsugæslunnar.
Talið er að staða Roberts Mugabes í embætti
forseta verði sífellt fallvaltari. Kóleran hefur nú
náð að breiðast til nágrannalanda Simbabve og
þykir það auka líkurnar á að alþjóðasamfélagið
grípi inn í þar sem ástandið ógnar nú öryggi ann-
arra þjóða. Leiðtogar heims hafa hver af öðrum
hvatt Mugabe til að segja af sér og má segja að
staðan sé flóknari nú þegar kólerufaraldurinn ógn-
ar nágrannaríkjunum þar sem auðveldara verður
fyrir erlend öfl að taka í taumana á þeim for-
sendum. Búist er við aukinni hörku frá Suður-
Afríku en Jacob Zuma, nýr formaður stjórn-
arflokksins Afríska þjóðarráðsins og væntanlegur
forseti landsins, hefur lýst yfir andúð sinni á Mu-
gabe.
Leiðtoginn gefst ekki upp
„Ég mun aldrei, aldrei selja land
mitt. Ég mun aldrei, aldrei gefast
upp. Simbabve er mitt,“ hafði rík-
isrekna dagblaðið Herald eftir Mu-
gabe á ársfundi ZANU-PF-flokksins
á föstudag. Þar dró hann jafnframt í
efa að Afríkuríki „hefðu hugrekki“ til
að hlýða Bandaríkjamönnum og fyr-
irskipa hernaðaríhlutun í Simbabve.
Mugabe sagðist jafnframt hafa sent
leiðtoga stjórnarandstöðunnar MDC,
Morgan Tsvangirai, bréf og boðið hon-
um embætti forsætisráðherra. Tsvang-
irai segist ekkert bréf hafa fengið, hann
hefur hins vegar sagst munu draga sig
út úr öllum samningaviðræðum við Mu-
gabe þar til ránum á stuðningsmönnum
hans linni en að hans sögn er um 40
meðlima MDC saknað.
AP
Milljarðamæringar svelta
Robert Mugabe rígheldur í forsetastólinn þrátt fyrir hungursneyð og kólerufaraldur
Seðlabanki Simbabve gaf út 10 milljarða dala seðil til að auðvelda þjóðinni jólahaldið
Milljarðar Nýi 10 milljarða seðillinn er á við 20 Bandaríkjadollara og dugir
fyrir 20 brauðhleifum. 10 núll voru slegin af Simbabvedollaranum í ágúst.
Kólera Börn sækja sér vatn en
mengað vatn og opin holræsi
eru helstu ástæður þess hversu
hratt kóleran hefur breiðst út.
Ólöf Steinunnardóttir hefur verið
við nám í Suður-Afríku liðna önn.
Hún fór fyrir nokkrum vikum ásamt
vini sínum, Emmanuel Sairosi, sem
er frá Simbabve, til borgarinnar Bu-
lawayo, næststærstu borgar lands-
ins.
Ólöf segir það hafa verið mikið
áfall að koma til Simbabve þar sem
fólk búi við gríðarlegan skort og
vonleysið sé greinilega mikið meðal
almennings.
„Það var ótrúlegt að sjá risastór-
ar matvöruverslanir þar sem allar
hillur voru tómar og það sama var
að segja um apótekin,“ segir Ólöf.
„Ég bjó hjá fjölskyldu Emm-
anuels, sem býr við ömurlegar að-
hennar til Simbabve í þrjú ár og að
hann hafi orðið fyrir miklu áfalli,
svo hratt hafi samfélagið hrunið.
„Fyrir þremur árum virkaði heil-
brigðiskerfið ágætlega og há-
skólakerfið einnig en nú er ekkert
af þessu starfandi,“ segir Ólöf.
Vinur hennar flúði til S-Afríku
þar sem engin tækifæri séu fyrir
ungt fólk í Simbabve. „Emmanuel
var rekinn úr háskólanum í Sim-
babve fyrir pólitískar skoðanir sín-
ar. Hann var ásamt fimm félögum
sínum sendur í fangelsi og sætti
þar pyntingum,“ segir Ólöf. Fang-
elsisvistin hafi orðið til þess að
hann taki ekki lengur þátt í mót-
mælum gegn stjórnvöldum.
að um „gamla manninn“ ef ræða
eigi landsmálin.
Vegna hárrar tíðni HIV-smita
segir Ólöf að munaðarlaus börn séu
mörg. Það sé algengt að fjölskyldur
taki að sér börn látinna ættingja
frekar en að senda þau á mun-
aðarleysingjahæli þar sem þeirra
bíði mikil óvissa.
Fjölskyldur séu því yfirleitt frek-
ar stórar. Á heimili Emmanuels hafi
verið tvær munaðarlausar stúlkur,
5 og 7 ára, sem misstu foreldra sína
úr alnæmi.
Mikil afturför á stuttum tíma
Ólöf segir að þessi heimsókn
hafi verið fyrsta heimsókn vinar
stæður í einu fá-
tækrahverfa
Bulawayo. Vinur
minn var búinn
að vara mig við
ástandinu en
sagði þó að fá-
tækrahverfin í
Simbabve væru í
sjálfu sér ekki
hættuleg. Þar
væri lítið af glæp-
um nema þá frá hendi lögreglunnar
því hún er svo spillt,“ segir Ólöf.
Mikill fjöldi óeinkennisklæddra
lögreglumanna sé á götum borg-
anna og fólk því vart um sig. Nafn
forsetans sé aldrei nefnt heldur tal-
Mikið hrun á aðeins þremur árum
Ólöf
Steinunnardóttir