Morgunblaðið - 21.12.2008, Page 8
8 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
NAFNIÐ Rhein-Neckar Löwen hef-
ur ekki hljómað lengi í eyrum
handknattleiksáhugamanna. Enda
er það nýtilkomið og í raun fjórða
nafnið á félaginu sem á sér ekki
langa sögu í hópi bestu hand-
boltaliða Þýskalands.
Bakgrunnur liðsins liggur í
tveimur litlum félögum, Kronau og
Östringen, frá samnefndum bæj-
um í suðvesturhluta Þýskalands,
nánar tiltekið í héraðinu Baden-
Württemberg. Þau léku jafnan í 2.
eða 3. deild þýska handboltans.
Árið 2002 voru þau sameinuð
undir nafninu Kronau/Östringen
og það hafði strax tilætluð áhrif
því liðið stóð uppi sem sigurvegari
í suðurriðli 2. deildar og var þar
með komið í 1. deildina, efstu
deildina í Þýskalandi.
Kronau/Östringen féll reyndar á
fyrsta ári en kom strax upp aftur
og var á ný í hópi þeirra bestu
haustið 2005. Frá þeim tíma hefur
liðið ekki farið neðar en í 8. sæti 1.
deildar og endaði í 4. sæti síðasta
vetur. Fyrir ári var skipt um nafn,
liðið heitir nú Rhein-Neckar Löwen
og er jafnframt komið með aðset-
ur í SAP-Arena, glæsilegri höll í
Mannheim, sem rúmar 13 þúsund
áhorfendur og var einn af leikstöð-
unum í úrslitakeppni HM í janúar
2007.
RN Löwen – nýtt nafn á nýlegu liði
Árvakur/Golli
Samherjar Ólafur og Guðjón Val-
ur verða góðir saman hjá Löwen.
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Þ
að vakti talsverða athygli fyrr í vetur
þegar danska smáliðið Albertslund/
Glostrup Håndbold gerði þriggja ára
samning við Ólaf Stefánsson, einn
besta handboltamann heims. Silf-
urverðlaunahafinn frá Ólympíuleikunum og besti
maður úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu í vor
var á leið í þriðju efstu deildina í Danmörku,
kannski þá næstefstu, til að spila með hálf-
gerðum trimmurum og annars til þriðja flokks
handboltamönnum í óþekktu félagi.
Sem reyndar ætlaði sér risavaxna hluti á
næstu árum, undir handleiðslu og fjármögnun
vellauðugs skartgripasala, Jespers Nielsens. AG
Håndbold átti að verða stórveldi í evrópskum
handbolta á aðeins þremur árum.
Til að setja þetta í samhengi væri þetta svipað
og ef jafnaldri Ólafs, Ryan Giggs, hefði ákveðið
að ljúka fótboltaferlinum með því að yfirgefa
Manchester United og gera þriggja ára samning
við Aftureldingu í Mosfellsbæ, með allri virðingu
fyrir því ágæta félagi.
Til stóð að Ólafur og fjölskylda flyttu til Kaup-
mannahafnar á komandi sumri eftir giftusama
dvöl hjá Ciudad Real, Spánar- og Evrópumeist-
urunum, en þar hefur þessi magnaði hand-
boltamaður safnað að sér öllum stærstu titlum
íþróttarinnar á undanförnum árum. Aldrei þó
eins og á árinu sem nú er að ljúka.
Einstakt afrek í úrslitaleiknum
Það afrek hans að skora 12 mörk í seinni úr-
slitaleik Meistaradeildar Evrópu, gegn Þýska-
landsmeisturum Kiel á þeirra eigin heimavelli,
verður seint leikið eftir. Ólafur sneri þá vonlítilli
stöðu Ciudad Real, eftir ósigur í heimaleiknum,
upp í frækinn sigur og Evrópumeistaratitil.
Þessi frammistaða Ólafs væri sambærileg við
það ef Eiður Smári Guðjohnsen myndi skora
þrennu fyrir Barcelona í úrslitaleik Meist-
aradeildar Evrópu í fótbolta – gegn Manchester
United – á Old Trafford.
Ólafur varð markahæsti leikmaður Meist-
aradeildar Evrópu 2007-2008 og kveður vænt-
anlega Ciudad Real sem markahæsti leikmað-
urinn félagsins í sögu þess í Evrópukeppni, og
hefur það þó sankað að sér öllum helstu stjörn-
um heimsins í seinni tíð.
Þegar Ólympíusilfrinu er bætt við, og þætti
Ólafs í þeim óvænta árangri íslenska landsliðs-
ins, innan vallar sem utan, er ekki fjarri lagi að
slá föstu að enginn íslenskur íþróttamaður hafi
nokkru sinni átt slíkt keppnisár á ferli sínum.
En þetta er útúrdúr. Mál Ólafs tóku nýja
stefnu í vikunni þegar skartgripasalinn Nielsen,
sem jafnframt er stór styrktaraðili knatt-
spyrnuliðsins Bröndby, ákvað að taka boði þýska
handknattleiksliðsins Rhein-Neckar Löwen um
að gerast þar stjórnarmaður. Nielsen tilkynnti
að hann hefði ákveðið að einbeita sér að því að
gera Löwen að besta liði Evrópu, það væri mun
raunhæfara verkefni en að AG Håndbold færi
alla leið á toppinn eins og upphaflegar áætlanir
hans voru.
Og með í pakkanum hjá skartgripasalanum
leyndist demantur því hann tilkynnti að það væri
nánast frágengið að sjálfur Ólafur Stefánsson
myndi koma með sér og leika með Rhein-Neckar
Löwen næstu tvö árin.
Endanlegrar ákvörðunar Ólafs er reyndar enn
beðið og hvorki Löwen, AG Håndbold, Ciudad
Real né Ólafur sjálfur höfðu fyrir helgina stað-
fest fyrir fullt og fast að hann myndi gerast leik-
maður með þýska liðinu. En út frá því virðist
gengið af öllum aðilum og vistaskipti hans verða
þá einhver þau stærstu í handboltaheiminum á
komandi ári.
Of gott til að vera satt?
„Eiginlega er þetta of gott til að vera satt,“
sagði Guðjón Valur Sigurðsson, samherji hans úr
landsliði Íslands, við Morgunblaðið í vikunni. „Óli
er eins og allir vita frábær leikmaður sem myndi
styrkja okkar lið mikið. Að auki er hann ein-
stakur persónuleiki sem gaman er að hafa ná-
lægt sér,“ sagði Guðjón Valur sem sjálfur gekk
til liðs við Löwen í sumar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ólafur tekur nýja stefnu
Fer ekki í danska smáliðið AG Håndbold Leikur væntanlega með þýska stórliðinu
Rhein-Neckar Löwen næstu tvö árin Demantur í pakka danska skartgripasalans
Sigurvegari Ólafur Stef-
ánsson fagnaði hverjum
stóra sigrinum á fætur öðr-
um á árinu 2008, með Ciudad
Real og landsliði Íslands.
Guðjón Valur Sigurðsson varfyrstur Íslendinga til að spila
með Rhein-Neckar Löwen eftir að fé-
lagið hóf að leika undir því nafni.
Guðjón Valur kom til félagsins síð-
asta sumar, frá Gummersbach. Hann
er þar í fríðum flokki öflugra leik-
manna. Í liði Löwen eru m.a. pólsku
landsliðsmennirnir Grzegorz Tkac-
zyk, Karol Bielecki, Mariusz Jurasik
og Slawomir Szmal, þýsku landsliðs-
mennirnir Henning Fritz, Oliver
Roggisch, Christian Schwarzer og
Andrej Klimovets, og tékkneski
landsliðsmaðurinn Jan Filip.
Guðmundur Hrafnkelsson, þáver-andi landsliðsmarkvörður Ís-
lands, spilaði með liði Löwen í tvö
ár, frá 2003-2005, þegar það hét
Kronau/Östringen. Hann lék með
því eitt ár í 1. deild og eitt í 2. deild.
Gunnar Berg Viktorsson, sem nú
spilar með Haukum, lék með liðinu
frá 2004 til 2006, einnig sitt hvort
árið í tveimur efstu deildunum.
Löngu áður, eða um 1990, lék Karl
Þráinsson, fyrrverandi landsliðs-
maður, um skeið með liði Östringen í
3. deildinni, löngu áður en það sam-
einaðist grannliðinu Kronau.
Það eru auðkýfingurinn DietmarHopp og synir hans sem standa
á bakvið handknattleiksliðið Rhein-
Neckar Löwen og ætla að gera það
að besta liði Evrópu. Þeir eiga eitt
stærsta hugbúnaðarfyrirtæki
heims, SAP, sem lætur sér ekki
nægja eitt stórlið í einni íþrótta-
grein. Feðgarnir eru líka fjárhags-
legir bakhjarlar fyrir Hoffenheim,
smáliðið sem hefur slegið í gegn í
þýska fótboltanum í vetur og trónir
þar á toppnum á sínu fyrsta ári í
efstu deild. Íshokkíliðið Adler Mann-
heim er þriðja hjólið undir vagninum
en það varð bæði þýskur meistari og
bikarmeistari árið 2007.
Rhein Neckar Löwen