Morgunblaðið - 21.12.2008, Qupperneq 10
10 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
símans, upp úr gögnunum sem
„Litli Landsímamaðurinn“ hafði
stolið frá fyrirtæki sínu og afhent
Reyni, að hans áeggjan, og eftir það
var gatan greið fyrir stjórnarfor-
manninn að rekja slóðina til „Litla
Landsímamannsins“ sem vitanlega
hafði trúað Reyni fyrir lífi sínu með
því að stela fyrir hann gögnum og
afhenda. Hann launaði heimilda-
manni sínum sem sé skúbbið góða
með því að koma upp um hann og
„Litli Landsímamaðurinn“ missti
að sjálfsögðu vinnu sína fyrir vikið!
Nú íhugar Reynir að fara í mál við fyrrverandi
blaðamann sinn, vegna þess að hann lét Kast-
ljósi í té segulbandsupptöku af einkasamtali
þeirra tveggja. Það verður fróðlegt að
fylgjast með þeim málaferlum.
Hvenær greip Jón Bjarki til þess ör-
þrifaráðs að afhenda upptökuna? Jú, það
var eftir að téður Reynir hafði gert hvað
hann gat til þess að ljúga æruna af þess-
um fyrrverandi blaðamanni sínum.
Hann laug svo purkunarlaust og taldi
ugglaust allan tímann að í „þágu mál-
staðarins“ og þar sem hann væri
hvort eð er ekkert annað en
aumt handbendi þeirra Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar og
Hreins Loftssonar, þá væri nú lítið mál
að ganga af einum ungum fyrrverandi
blaðamanni DV dauðum.
En Reynir laug og sveik eins og
hann mest mátti, án þess að hafa hug-
mynd um sönnunargagnið gegn hon-
um sjálfum – upptökuna, sem Jón
Bjarki nýtti ekki, fyrr en honum
voru öll önnur sund lokuð.
Húrra fyrir þér, Jón Bjarki!
Þú átt framtíðina fyrir þér í
blaðamennsku og þú átt heið-
ur skilinn fyrir þann kjark
sem þú sýndir með því að
koma fram og segja þess-
um óþverrum sem þú
starfaðir með og sættu
sig við þöggun eig-
enda sinna úti í bæ,
Stöð 2 var fyrir einhverjum misserum með þátt
sem kallaðist Tekinn og gat sá þáttur stundum
verið bráðskondinn, yfirleitt á kostnað þess sem
var tekinn. Síðastliðinn mánudag var Reynir
nokkur Traustason, ritstjóri DV, tekinn í Kast-
ljósi, af fyrrverandi blaðamanni sínum, Jóni
Bjarka Magnússyni, með þeim hætti að það verður
lengi í minnum haft.
Reynir Traustason hefur lengi haft það að að-
alstarfi að ærumeiða og ærumyrða menn og kon-
ur; hann hefur lagt fólk í einelti; hann hefur einsk-
is svifist, ávallt í nafni „frjálsrar blaðamennsku“.
Hver man ekki eftir „frækilegri frammistöðu“
hans, þegar hann skúbbaði með aðstoð „Litla
Landsímamannsins“ í febrúar
2002? En svo óhönduglega
tókst skúbbaranum
Reyni til, að hann las
fyrir Friðrik Pálsson,
þáverandi stjórn-
arformann
Land-
hvort sem þeir hétu Jón Ásgeir
eða Hreinn Loftsson – bita mun-
ur, en ekki fjár – stríð á hendur.
Ég lofa þér því að við erum mörg í
Blaðamannafélagi Íslands sem er-
um stolt af því að hafa þig í stétt-
inni.
Aftur að Kastljósinu góða. Orð-
rétt tilvitnun í ritstjórann: „Félag-
ið er að skipta um eigendur og það
var bara allt komið í háaloft. En
ég ákvað að gera það, vegna þess
að við erum heiðarlegur miðill …
heldur bara urðum við að gera
þetta, eða lenda í einhverju limbói og lenda í hönd-
unum á einhverjum djöfulsins aumingjum sko, að
það færu einhverjir aumingjar að eiga þetta blað.“
Og skömmu síðar, í samhengislausum og nánast
óskiljanlegum lygum sínum, heldur ritstjórinn
áfram: „En auðvitað er þetta land … ég meina
þetta er þannig land að það var hótað að loka, það
var hótað að stöðva prentun DV. Sem að … Björg-
ólfur Guðmundsson á prentsmiðjuna. Og ég svo
sem er ekkert nojaður yfir því. Ég bara berst við
þann djöful og hann mun, þú veist … við munum
taka hann niður og þá verður allt miklu heilbrigð-
ara en það var ….
Þú verður að athuga að það eru svo margir
áhrifavaldar á líf okkar. Björgólfur Guðmundsson
með annars vegar veð í bréfunum og hins vegar
prentun á blaðinu. Á meðan hann er með … eitt-
hvert lífsmark er með honum mun hann reyna að
drepa okkur. En við höfum svo sem pönkast á hon-
um út í það óendanlega.“
Þurfum við frekari vitnanna við? Það talar eng-
inn ritstjóri með snefil af sómatilfinningu á þann
veg sem Reynir Traustason talaði við blaðamann
sinn til fimm mánaða. Hann er ekkert annað en
ómerkilegur leigupenni, sem tekur að sér, fyrir
orð eigenda sinna, að leggja suma í einelti, „pön-
kast“ á þeim, svo notuð séu hans eigin orð; hann
talar um að taka mann niður, sem er léleg þýðing á
ensku, „to take someone down“ sem þýðir að
drepa einhvern og á þar að sjálfsögðu við Björgólf
Guðmundsson.
Ég vona að Guð og Glitnir í sameiningu forði
okkur á Morgunblaðinu frá að lenda í klóm manna
eins og þeirra Jóns Ásgeirs og Hreins.
agnes@mbl.is
Agnes segir …
Litli ritsóðinn tekinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ritsóðinn Það talar
enginn ritstjóri með
snefil af sóma-
tilfinningu á þann
veg sem Reynir
Traustason talaði.
Jón Bjarki
Magnússon
En Gordon [Brown, for-
sætisráðherra Breta]
þurfti að gera eitthvað
ómerkilegt til að sýnast
hæfur, svo hann réðst á
minnimáttar. Það var ekki
kinnhestur heldur
grimmilegt spark.
A.A. Gill blaðamaður, í grein í Sunday Tim-
es um ástandið á Íslandi.
Vegna þess að ég tel að á meðan Ís-
lendingar halda áfram að versla við
þessa menn [Jón Ásgeir Jóhannesson
og Jóhannes Jónsson] haldi ballið
áfram.
Jón Gerald Sullenberger skýrði frá því í
Silfri Egils í Sjónvarpinu að hann
undirbyggi stofnun lágverðsversl-
ana á Íslandi.
Það er hrópandi ranglæti að
þeir sem féflettir hafa ver-
ið með eignatilfærslum
beri kostnað við að
vernda eignir fjár-
plógsmanna.
Ragnar Önundarson við-
skiptafræðingur, banka-
maður og fjármálaráðgjafi, í
grein í Morgunblaðinu um
gjald fyrir verndun eign-
arréttar.
Við stóðum bara and-
spænis, þú veist, þessum
hroðalegu örlögum, að
keyra á þessu eða þurfa
þess vegna að pakka sam-
an. Af því að okkur er ógnað
einhvers staðar að skilurðu
[…] Þarna eru bara öfl sem munu stúta
okkur.
Reynir Traustason, ritstjóri DV, í samtali
þeirra Jóns Bjarka Magnússonar, fyrrv.
blaðamanns DV, sem tók samtalið upp, en
það var spilað í Kastljósi. JBM hafði skrif-
að frétt sem RT vildi ekki birta og til-
greindi ástæðuna í fyrrnefndu símtali.
Mér hefur svo sannarlega tekist að
hrista upp í þjóðinni í heimsókn minni
og það sem brennur nú á vörum flestra
á klakanum eru varirnar á mér.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta, sem
býr í Búlgaríu og heldur úti bloggsíðunni
asdisran.blog.is, þar sem hún birtir leið-
beiningar um hvernig megi gera varir sem
fallegastar.
Þetta er bara allt ein heljarlygi.
Bernard Madoff, kaupsýslumaður í
New York, eftir að uppvíst varð að
hann hafði svikið minnst 50 millj-
arða dollara út úr viðskiptavinum
sínum.
Þessi ríkisstjórn hefur ekki
viðurkennt vanmátt sinn og
að hún sé ófær um að
stjórna lífi sínu og landinu.
Nei, í gildi er sú gamla aðferð
að ráðast á skúringakonuna en
hlífa auðmanninum.
Einar Már Guðmundsson rithöf-
undur, í grein í Morgunblaðinu.
Þetta er kattarþvottur hjá rík-
isstjórninni þó hún sé að stíga
örlítið skref.
Ögmundur Jónasson, þingmaður
VG, í umræðum um eftirlauna-
frumvarp ríkisstjórnarinnar.
Ummæli
’
Reuters
Er ósanngjarnt að spyrja hverskonar siðferði þrífist innan end-
urskoðunarfyrirtækisins KPMG?
ÍMorgunblaðinu í gær var sagt fráþví að tveir starfsmenn KPMG
væru ákærðir fyrir brot á lögum
um einkahlutafélög og falsanir.
StarfsmennKPMG hafi
reynt að ná fé-
laginu af við-
skiptavini sínum.
Aðkoma Sig-
urðar Jónsson, forstjóra endur-
skoðunarfyrirtækisins, vekur
spurningar um viðskiptasiðferði
innan KPMG.
Sami Sigurður var samstarfs-maður Aðalsteins Há-
konarsonar, nú deildarstjóra rík-
isskattstjóra, áður en hann hætti
vegna blekkingarleiks innan
KPMG.
Aðalsteinn kaus að vinna hjá rík-inu í stað þess að vera hluthafi í
einu stærsta endurskoðendafyrir-
tæki landsins á uppgangstíma.
Sá sem tengdist þeim blekking-arleik var Stefán Hilmarsson,
sem var endurskoðandi Baugs inn-
an KPMG. Hann var sýknaður fyrir
sína aðkomu í Baugsmálinu.
Tryggvi Jónsson, fyrrverandi eig-andi KPMG, var hins vegar ekki
sýknaður. Hann notfærði sér vin-
skap við Aðalstein Hákonarson til
að leyna eignarhaldi Fjárfars.
Tryggvi fór frá KPMG til Baugsáður en Símon Á. Gunnarsson,
endurskoðandi hjá KPMG, var
ákærður í skattsvikamáli Jóns
Ólafssonar.
Hvað er í gangi hjá KPMG?
Viðskiptasiðferði KPMG
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
!
!
"
"#"# !
"
"#"# !
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
$ %
"
"
:
3'45;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@).? & &
&
&
'& &
&
& &
&
& &
&'
&
*$BCD
!" !# !
$
!!
% !% ! &
!
*!
$$
B *!
( $)*#
#)
# % +
<2
<! <2
<! <2
( *
"#, !-#."/
DC -
5!
2!
' ! $ !" (#! ! !
6
B 8
)!!!"
(
$! "
* !
+ &, !-
B
.
&
&
+!/
01""#$#22
"
%$#3 %#, !
4 &#
#
&#'&5
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
VEÐUR