Morgunblaðið - 21.12.2008, Page 12
12 Viðtal
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
H
ann hefur verið eins og
hvítur stormsveipur
upp vænginn á Ree-
bok-leikvanginum í
Bolton og öðrum völl-
um ensku úrvalsdeildarinnar. Spart-
verskt atgervi hans er með þeim
hætti að hann gæti líkast til hlaupið
svo dögum skipti – án þess að mæð-
ast. Og ekki kinokar hann sér við
hreinræktaðri enskri tæklingu.
Myndi á góðum degi reyna sig við
sjálfan Big Ben. Ógerlegt er að segja
til um hvor stæði uppréttur eftir þá
viðureign.
Grétar Rafn Steinsson hefur
sannarlega slegið í gegn í ensku
knattspyrnunni frá því hann gekk til
liðs við úrvalsdeildarlið Bolton
Wanderers í janúar síðastliðnum.
Hann hefur frá fyrsta degi eignað
sér stöðu hægri-bakvarðar og er alls
ekki á þeim buxunum að horfa um
öxl.
„Tímasetningin á þessum fé-
lagaskiptum var mjög góð. Ég var
alveg tilbúinn að taka þetta skref, að
fara úr toppliði í Hollandi og yfir til
Englands. Auðvitað eru hraðinn og
harkan meiri hérna en ég var undir
það búinn og þurfti fyrir vikið engan
aðlögunartíma,“ segir Grétar, spurð-
ur hvers vegna hann virki klæð-
skerasaumaður fyrir ensku úrvals-
deildina, sem af mörgum er álitin
sterkasta sparkdeild í heimi.
Kappinn er í símasambandi
frá heimili sínu í Bolton
enda ekki vænt-
anlegur hingað
upp á skerið
fyrr en á vormánuðum. Það er engin
miskunn hjá Magnúsi.
Við vistaskiptin lagði Gary Meg-
son, knattspyrnustjóri Bolton, upp
við Grétar að halda sínu striki.
„Ástæðan fyrir því að félagið keypti
mig var leikstíllinn og þeir sögðu
mér strax að halda uppteknum
hætti. Ég passaði vel inn í leik-
skipulag Bolton og það var í raun
bara um tvennt að velja: Að fara í
felur eða sýna sig og sanna. Ég valdi
seinni kostinn. Ég var búinn að spila
í tvö og hálft ár í toppliði í Hollandi
og hafði engu að tapa.“
Ekki blés byrlega fyrir Bolton
þegar Grétar kom til liðsins. Það var
í æðisgenginni fallbaráttu og var
vart hugað líf. „Þetta var feikilega
erfið barátta þar sem hver leikur var
upp á líf og dauða en sem betur fer
sluppum við fyrir horn. Eins gott,
það hefði verið reiðarslag fyrir félag-
ið að fara niður.“
Betur hefur gengið á yfirstand-
andi sparktíð. Bolton vermir nú 11.
sætið og hefur leikið hreint prýði-
lega á köflum. „Við erum með
sterkara lið en í fyrra en
deildin er mjög jöfn og
fyrir utan efstu fjögur
til fimm liðin er ómögu-
legt að segja hvernig
þetta fer. Höf-
uðmark-
mið
okkar er að hala inn stig jafnt og
þétt og tryggja stöðu okkar í deild-
inni.“
Grétar ber Megson knatt-
spyrnustjóra vel söguna. „Hann er
dæmigerður Breti. Lætur í sér
heyra og hefur skýrar hugmyndir
um það hvernig spila á fótbolta. Það
gengur vel að vinna með honum.“
Virðingin er gagnkvæm en í
samtali við Morgunblaðið segir
Megson Grétar hafa komið fót-
unum virkilega vel undir sig
hjá félaginu. „Hann er orð-
inn mikilvægur hluti af
vörn liðsins og hefur
fundið sig vel utan
vallar líka. Grétar er
vin- sæll meðal félaga
sinna og stuðningsmenn
bera hann á höndum sér vegna inni-
legrar nálgunar hans á velli,“ segir
Megson.
Lið Bolton hefur löngum verið
hart í horn að taka – karlmennskan
beinlínis drýpur af mönnum. Grétar
gengst fúslega við því að liðið sé ekki
það liprasta í deildinni. „Við erum
sannkallað karlalið og leikstíll okkar
einkennist af því að við erum lík-
amlega sterkari en andstæðingurinn.
Þjálfarinn hefur gott lag á liðum af
því tagi og ég sé engan tilgang með
því að spila einhvern Sambabolta
fyrst við erum betri í öðru.“
Þetta er frábrugðið því sem hann
átti að venjast í Hollandi. „Alkmaar
er eitt sterkasta félagið þar og fyrir
vikið stjórnuðum við oftar en ekki
gangi leiksins. Vissum að lékjum við
vel væru allar líkur á sigri. Deildin er
miklu sterkari hér í Englandi og við
býsna oft í því hlutverki að verjast.
Við fáum ekki mörg tækifæri til að
sækja og verðum að nýta þau vel.“
Það hefur Grétar sannarlega gert
sjálfur en enginn varnarmaður í
deildinni hefur lagt upp fleiri mörk á
yfirstandandi leiktíð, fimm að tölu.
„Mér er uppálagt að koma upp kant-
inn þegar færi gefst og sem betur
fer hafa félagarnir verið duglegir að
setja þessar fyrirgjafir í netið. Það
er skemmtilegur bónus.“
Ekki nóg með það. Grétar skoraði
eitt af mörkum ársins á fyrsta leik-
degi í haust. „Það var ekki leiðinlegt
að sjá þann bolta í netinu.“
Raunar gerði hann annað mark
fyrir skemmstu en sá bolti þótti
hafa strokist við Kevin Davies fé-
laga hans á leiðinni inn og var mark-
ið því skráð á hann. „Maður er að
hafa fyrir því að setja þessi mörk og
svo eru þau bara tekin af manni,“
segir Grétar sposkur en lofar að
bæta fleiri mörkum í sarpinn fyrir
vorið.
Lítill samgangur utan vinnu
Hann segir góðan anda ríkja með-
al leikmanna Bolton. „Annars er
þetta bara eins og hver önnur vinna.
Maður mætir á morgnana og fer
heim eftir hádegið. Það er gott and-
rúmsloft í búningsklefanum og við
vinnum vel hver fyrir annan en þar
fyrir utan hittumst við ekki mikið.
Ekkert frekar en aðrir vinnu-
félagar. Ég er nokkuð viss um að þú
tekur ekki blaðamanninn við hliðina
á þér heim í mat eftir langan vinnu-
dag.“
Egóin eru óvíða stærri en í ensku
úrvalsdeildinni. Grétar tekur undir
það. „Auðvitað bullsýður egóið í
okkur. Það fylgir þessu. Annars
væru menn ekki komnir svona
langt. Það er væn sletta af karl-
mennsku í hverjum og einum leik-
manni og sennilega nóg að hafa einn
slíkan í hverju húsi,“ segir hann
hlæjandi.
Grétar hefur sannarlega ekki ver-
ið utangátta á stærsta sparksviði í
heimi en þær eru ófáar vinnustund-
irnar sem liggja að baki. „Það er
mun meiri vinna að vera atvinnu-
Væn sletta af karlm
Grétar Rafn Steinsson hefur fallið að ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu eins og flís við
rass. Það er eins og Siglfirðingurinn hafi aldr-
ei gert annað en fara með hlutverk á þessu
stærsta sparksviði í heimi en hann hefur nú
verið í röðum Bolton Wanderers í tæpt ár.
En þetta hefur ekki komið af sjálfu sér, þrot-
laus vinna, agi og elja liggja að baki.
Í öndvegi Grétar Rafn segir fjölskylduna hafa algjöran forgang í sínu lífi. „Maður er ekki mikill maður án fjölskyld-
unnar,“ segir hann. Hér er hann með eiginkonu sinni, Manuelu Ósk Harðardóttur og syninum Jóhanni Grétari.
Landsliðið Grétar Rafn
er einn af lykilmönnum
íslenska landsliðsins.
Húðflúr hefur rutt sér til rúms í sparkheimum á um-
liðnum árum og ekki ómerkari menn en David Beck-
ham verið í fylkingarbrjósti. Grétar Rafn hefur held-
ur ekki látið sitt eftir liggja. „Ég byrjaði á þessu fyrir
nokkrum árum og þetta hefur smám saman undið
upp á sig. Ég hef gert þetta kerfisbundið undanfarin
tvö ár og allur hægri handleggurinn er nú húðflúr-
aður og góður partur af bakinu líka. Fyrst maður er
að þessu á annað borð er alveg eins gott að gera
þetta almennilega og láta það sjást.“
Á heimasíðu Bolton kemur fram að Grétar sé
styrktur af Húðflúrstofu Daves T. „Það er alveg
rétt,“ staðfestir hann. „Ég byrjaði að fara til Daves
eftir að við fluttum hingað og í dag erum við orðnir
góðir vinir. Hann sér um öll mín húðflúr og styrkir
þessa fíkn mína.“
Grétar segir þetta órjúfanlegan hluta af sínum
lífsstíl í dag. Hann fái stöðugt nýjar hugmyndir.
„Þetta er ekki neitt sem maður gerir út í loftið, held-
ur þjónar það allt tilgangi. Ég geri þetta vegna þess
að mér þykir það flott og fyrst og fremst er ég að
þessu fyrir mig og mína nánustu. Mamma hefur
reyndar ekki verið neitt sérstaklega hrifin af þessu
en hún hefur engan atkvæðisrétt í þessum efnum,“
segir Grétar sposkur.
Og skyldum við eiga eftir að sjá þessa listsköpun
þenja sig út í framtíðinni?
„Já, blessaður vertu. Ég er rétt að byrja.“
RÉTT AÐ BYRJA Í HÚÐFLÚRINU
Hátíð ljóss og friðar fer í hönd og
flestir eiga þá náðuga daga í faðmi
fjölskyldunnar. Það á ekki við um
knattspyrnumenn í Englandi,
sjaldan er meira álag en einmitt
um jólin.
Þetta er raunar að komast í
vana hjá Grétari en einnig er leikið
í Hollandi yfir jólin. „Auðvitað væri
gott að geta slappað af með fjöl-
skyldunni um jólin en þetta er ekki
stórkostleg fórn að færa. Það
verða örugglega haldin jól á Ís-
landi eftir að ég verð hættur að
spila fótbolta,“ segir hann æðru-
laus.
Þannig stendur á leikjum núna
að Grétar nær aðfangadegi heima.
Fjölskylda Manuelu, eiginkonu
hans, er væntanleg í heimsókn og
er fyrirhugað að halda ramm-
íslensk jól. „Spennan er að magn-
ast á heimilinu og það er gaman
að upplifa þetta allt upp á nýtt
gegnum litla pjakkinn.“
Á jóladag heldur Grétar sem
leið liggur með liðinu á hótel fyrir
leik gegn toppliði Liverpool á An-
field Road á öðrum degi jóla.
Tveimur dögum síðar tekur liðið á
móti Wigan á heimavelli. „Maður
verður að fara varlega í steikina.“
FER VARLEGA Í STEIKINA