Morgunblaðið - 21.12.2008, Page 28
28 Bloggari
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
J ó l a s ö f n u n
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur,
Hátúni 12b.
❄ ❄❄❄ ❄
❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄
❄ ❄ ❄❄ ❄
❄❄
❄
❄ ❄ ❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄ ❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄❄ ❄
Þjónusta á Þorláksmessu
og aðfangadag
Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli kl. 9:00 og 15:00 verða starfsmenn
að störfum í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði, Kópavogskirkju-
garði og Hólavallagarði og munu þeir leiðbeina eftir bestu getu.
Hægt er að nálgast upplýsingar um staðsetningu leiða á vefnum
www.gardur.is
Þjónustusímar:
Skrifstofan í Fossvogi, sími 585 2700 og skrifstofan í Gufunesi, sími
585 2770, eru opnar á Þorláksmessu og aðfangadag frá kl. 9:00 til 15:00
Ratkort er hægt að fá afhent á skrifstofunum eða prenta út á
www. kirkjugardar.is
Upplýsingar eru veittar í síma allan desembermánuð á skrifstofutíma.
Fossvogskirkja verður opin á aðfangadag frá kl. 9:00 til 12:00
Á aðfangadag frá kl. 9:00 til 15:00 er allur akstur um
kirkjugarðinn í Fossvogi óheimill, nema fyrir hreyfihamlaða.
Tilkynning frá Kirkjugörðum
Reykjavíkurprófastsdæma
Gleðilega jólahátíð
❄❄❄❄❄❄❄ ❄ ❄❄❄❄❄ ❄ ❄
❄ ❄❄❄ ❄❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄
❄ ❄❄ ❄
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma
www.kirkjugardar.is
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
J
enný Anna Baldursdóttir
hefur mánuðum saman verið
einn vinsælasti bloggarinn á
Moggablogginu og flettingar
á síðu hennar eru komnar
yfir tvær milljónir. „Ég byrj-
aði að blogga í febrúar 2007
því þá hafði ég allt í einu svo mik-
inn tíma,“ segir Jenný Anna. „Ég
var nýlega komin úr meðferð eftir
að hafa drukkið á mig sykursýki,
orðin sjúklingur og gat ekki unnið.
Ég hafði áður unnið mjög mikið og
var nú kyrrsett heima með þeim
afleiðingum að ég fór að blogga
eins og enginn væri morgundag-
urinn.
Upphaflega markmiðið var að
blogga um alkóhólisma minn og
hvernig ég tækist á við hann í
mínum hvunndegi. Í byrjun blogg-
aði ég stöðugt sem varð til þess að
fólk vissi af síðunni minni. Ég
blogga ekki lengur sérstakar alk-
afærslur en óvirkur alki er stöðugt
að takast á við sjúkdóminn og það
kemur óneitanlega fram í skrifum
mínum. Ég hef ekkert að fela og
það skiptir mig máli að hafa stað-
reyndir um líf mitt þarna úti á
veraldarvefnum. Það er aðhald
fyrir mig því ég sæki til dæmis
ekki AA-fundi.
Lifandi dauð bak við glugga
Jenný Anna talar mjög op-
inskátt um alkóhólisma sinn. „Ég
hóf að þróa hann með mér um það
leyti sem dóttir mín missti son
sinn fyrir ellefu árum. Hann dó í
vöggu. Það og fleiri persónuleg
áföll urðu til þess að það fór að
fjara undan mér og ég fór að eiga
erfitt með að höndla hvunndaginn
og líf mitt. Áfengisdrykkjan jókst
og þunglyndi herjaði á mig. Ég
var virkur alki í tíu ár og drakk
mjög illa síðustu þrjú árin. Ég át
líka róandi pillur og var lifandi
dauð bak við eldhúsglugga. Eftir
að ég hætti að drekka hefur þung-
lyndið rjátlast af mér. End-
urkoman er samt hæg. Þótt ég
geti tjáð mig í gegnum skrif er ég
enn töluvert til baka og ekki með
þá félagsfærni sem ég hafði fyrir
veikindin.“
Afskrifa ekki sjálfa mig
Jenný Anna vann lengst af sem
læknaritari en hefur ekki verið úti
á vinnumarkaði í nokkur ár. „Ég
hef aldrei litið á það öðruvísi en
svo að ég muni ná mér og fara aft-
ur út á vinnumarkaðinn,“ segir
hún. „Ég er að verða 57 ára gömul
og er í tiltölulega slæmu formi
miðað við það sem ég ætti að vera.
Ég gæti sagt að líkurnar á því að
ég fari út á vinnumarkað væru
ekki miklar en ég harðneita að af-
skrifa sjálfa mig.“
Bloggfærslur Jennýjar Önnu
bera með sér að þar fer afar skoð-
anaglöð kona. Hún segir að þar sé
þó ekki allt sem sýnist því stund-
um skrifi hún beinlínis til að ögra
og fá sterk viðbrögð. „Ég er
örugglega skoðanaglöð en samt
ekki jafnmikið og ætla mætti.
Stundum skrifa ég eins og
ákveðnir atburðir í þjóðfélaginu
hafi sett líf mitt úr skorðum en
það er ekki þannig. Ég er nokkuð
yfirveguð þótt ég láti í bloggs-
krifum eins og himinn og jörð séu
að farast. Kannski er það púkinn í
mér sem gerir að verkum að ég
fer stundum meðvitað yfir mörkin
og nota orð sem ég nota ekki dag-
lega bara af því mig langar til að
kalla fram viðbrögð. Ég reyni þó
að fara ekki yfir mörkin. Ég fæ oft
gríðarlega margar athugasemdir
við skrif mín, þær hafa komist í
rúmlega þrjú hundruð, og það ger-
ist þegar ég skrifa um umdeild
mál eins og vændi, súlustaði og
pabbaherbergi í Hagkaup.“
Les mig í gegnum lífið
Jenný Anna, sem skrifar mikið
um stjórnmál, segist ekki lengur
vera flokkspólitísk. „Ég var um
tíma skráð í vinstri-græna en tók
þá ákvörðun fyrr á árinu að ég
ætlaði aldrei aftur að vera í flokki.
Mér finnst flokkakerfið úr sér
gengið. Svo er ég ekki kona sem
hleypur á fundi. Ég er pólitískur
hippi. Ég vil að við hjálpumst að
og hugsum vel hvert um annað.
Ég veit ekki hvort slíkar skoðanir
eiga heima í einhverjum einum
flokki. Við Íslendingar sváfum
værum svefni of lengi og skorti
samfélagslega vitund og vegna
þess er allt hrunið í kringum okk-
ur. Núna er jarðvegur fyrir gras-
rótina. Þar er fólk með alls konar
hugmyndir og ég hef trú á því
fólki. Við eigum ekki sífellt að
benda á stjórnmálamenn og segja
þeim að sjá um hlutina, enda hafa
síðustu atburðir sýnt fram á að
þeim er ekki alls kostar treyst-
andi. Við verðum sjálf, hvert og
eitt okkar, að vera meðvituð um
ábyrgð okkar í þjóðfélaginu.“
Þessi dugmikli og aðsópsmikli
bloggari á eitt áhugamál öðru
fremur en það er bóklestur. „Ég
hef mikið yndi af bókum. Bækur
eru svo stór hluti af lífi mínu að ég
get ekki skilgreint mig án þeirra.
Ég hef lesið mig í gegnum lífið.
Bækur eru mín lífsgæði. Allt sem
er gott í lífinu tengist þeim,“ segir
Jenný Anna.
Morgunblaðið/Golli
Beinskeytt Bloggið skiptir hana máli. Jenný Anna Baldursdóttir dregur ekkert undan í skrifum sínum.
Pólitískur hippi