Morgunblaðið - 21.12.2008, Qupperneq 30
30 Tengsl
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
nú á því að hafa þurft að velja sér
starf þar sem væri klappað fyrir
honum!
Hann velur þetta einyrkjastarf
sem síðan er fólgið í miklum fé-
lagslegum samskiptum. Þegar
kemur að samskiptum er hann líka
drjúgur. Hann á góða vini og það
fólk sem hann velur að umgangast
er óskaplega vandað fólk og það er
gaman að kynnast því. Hann hefur
góð félagstengsl og ræktar þau.
Leyfir lífinu að koma til sín
Árni Heiðar hefur mikla tækni-
lega færni, efnislega færni sem
einkum hefur komið fram í fjöl-
breyttum áhugamálum hans. Í
fyrra var hann til dæmis ásamt
Maríu Kristínu konu sinni á köf-
unarnámskeiði suður í Asíu! Síðan
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Bjarni: „Þegar Árni Heiðar fæddist
var ég 12 ára gamall. Ég var yngst-
ur af þremur bræðrum og allt í
einu var komið ungbarn á heimilið.
Það er mikil menntun í því fólgin að
fylgjast með manneskju frá fæð-
ingu til fullorðinsára. Tilkoma hans
inn í lífið hjá mér útvíkkar þannig
lífsreynslu mína. Það eru mikil við-
brigði þegar ungbarn kemur inn á
heimilið, veröldin er ný af því að
barn fæðist. Merkilegt að hugsa til
þess einmitt núna þegar við erum
með hugann við jólaguðspjallið.
Fljótlega kom í ljós að það er
hans eðli að skynja lífið á mörgum
bylgjulengdum í einu. Hann sér
alltaf svo víða og stóra mynd hvar
sem hann er, þannig er hans
göngulag í lífinu og nálgun við
menn og málefni. Það er algjörlega
ómetanlegt fyrir mig sem prest,
sem er að reyna að skilja sam-
félagið, að hafa aðgang að Árna
Heiðari, því hann er í tengslum við
kynslóð sem ég er ekki hluti af. Ég
ber oft undir hann það sem ég er að
hugsa og græði mikið á því að tala
við hann. Hann hefur svo breitt
sjónarhorn á lífið, er vel lesinn og
hefur haldgóða heimspekiþekkingu.
Þegar ég var að skrifa meist-
araritgerðina mína var hann einn af
þeim sem ég bar undir hvað ég var
að hugsa og við áttum mörg og löng
samtöl. Árni Heiðar er mikill hugs-
uður og í raun flókið að lýsa honum
sem karakter.
Í mörgu í einu
Þegar hann var krakki var hann
að læra á píanó og óbó, hann var í
barnaheimspeki, með fastan pistil í
barnaútvarpi og var að bera út
blöð. Hann var í svo mörgu í einu
og hafði til viðbótar ekkert fyrir
skólanum því hann er svo mikill
námsmaður. Svo var hann í svif-
flugi og stundaði seglbretti og æfði
bæði sund og karate. Honum gekk
vel í öllu en hann hættir ekki fyrr
en hann nær árangri. Hann virðist
sækja í einyrkjaviðfangefni. Þú ert
einn í sviffluginu, í sundinu, við pí-
anóið og einn að hugsa.
Eldri bræður hans eru tveir
læknar og svo einn prestur. Við
ætluðumst náttúrulega til að hann
færi í lögfræðina. Það hefði verið
fullkomið fyrir fjölskyldumyndina!
En hann ákvað að verða píanóleik-
ari. Við bræðurnir stríddum honum
hefur hann hugmyndafræðilega
getu, getu til að leika með hugtök.
Það má segja að hann sé flinkur
jafnt á sviði efnis og anda, sem er
sjaldgæft, en píanóleikurinn sem er
hans aðalfag sameinar þetta
tvennt.
Hann leyfir sér það að fara ekki
formlegar og viðurkenndar leiðir
heldur taka slaginn við lífið og lifa
af listinni og vera akademíker.
Hann er alltaf að hugsa um og
rannsaka lífið.
Ef til vill er höfuðeinkenni Árna
bróður það að hann skynjar lífið
fagurfræðilega en til þess að gera
það verður maður að standa annars
vegar í heimi efnis og forms og hins
vegar í heimi hugtakanna. Hann
tekur sér stöðu og lifir sem rann-
sakandi, leyfir lífinu að koma til
sín. Þannig upplifi ég hann.
Eitt af því góða sem foreldrar
okkar gáfu okkur í uppeldinu var
það að þau höfðu trú á okkur og
gáfu okkur það frelsi að fara okkar
eigin leiðir. Þau hvöttu okkur til að
taka sjálfstæðar ákvarðanir og láta
ekki tíðarandann stjórna okkur.
Árni Heiðar er mjög ljúfur ein-
staklingur þótt hann geti verið
óvæginn við sjálfan sig. Hann hefur
grundvallandi góðvilja og er sann-
leiksleitandi. Hann ætlar ekki að
sigra heiminn heldur að rannsaka
hann. Hann er ekki gráðug sál.
Hann hefur kjarkinn til að leyfa
hugmyndunum að liggja í loftinu og
skoða þær frá öllum hliðum. Það
versta sem kemur fyrir í lífi guð-
fræðings og prests er að vera
þröngsýnn og Árni Heiðar hefur
alltaf ögrað mér til að skoða alla
skapaða hluti frá mörgum sjón-
arhornum og ítrekað fengið mig til
að endurskoða það sem fyrir mér
hafa verið heilög sannindi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víðsýnn einyrki og hugsuður
‘‘HANN ER SANNLEIKS-LEITANDI. HANN ÆTLAREKKI AÐ SIGRA HEIMINNHELDUR AÐ RANNSAKA
HANN. HANN ER EKKI
GRÁÐUG SÁL.
Bræðurnir Bjarni og
Árni Heiðar Karlssynir
eru andlega sinnaðir
pælarar, þótt þeir hafi
valið sér ólíkan starfs-
feril. Annar stendur í
prédikunarstól á meðan
hinn situr við píanóið.
TB
W
A\
R
EY
KJ
AV
ÍK
\S
ÍA
\0
83
86
8
Allir sem eiga miða í desember 2009 geta átt von á sérstökum 75 milljóna
króna vinningi sem dreginn verður út í seinni útdrætti þann mánuðinn.
Númerið fer einu sinni í pottinn fyrir hvern greiddan mánuð, þannig að sért
þú með strax frá upphafi árs, getur þú tólffaldað möguleikana.
Nú fást miðar í sérstakri gjafaöskju á afmælissýningu okkar í Smáralind, hjá
aðalumboði og umboðsmönnum um allt land.
Gleddu vin og stuðlaðu um leið að uppbyggingu Háskólans. Svo getur þú
auðvitað keypt einn fyrir þig í leiðinni! Nánari upplýsingar á sölustöðum,
í síma 800 6611 eða á hhi.is.
vænlegast til vinnings
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Gefur þú stærstu jólagjöfina í ár?