Morgunblaðið - 21.12.2008, Side 39
heitins Þorleifssonar sem var einn
af eigendum Litla Fjalls og Grenja
að hluta, á „Fjalli“ Langár svoköll-
uðu. Gunnar Már segir eftirfarandi
sögu af Matthíasi Johannessen rit-
stjóra og skáldi: „Matthías var að
veiðum á „Fjallinu“ með syni sín-
um Haraldi, sem síðar varð rík-
islögreglustjóri, og Kristjáni son-
arsyni sínum. Voru þeir staddir við
Skriðufljót, en skilyrði voru afleit,
lítið vatn í ánni, sólskin og brak-
andi hiti. Það var mikið af laxi í
Skriðufljóti, það hafði gefið vel
fyrr um sumarið og laxar stukku
letilega í blíðunni.
Matthíasi var ekki veiðiskapur í
hug þegar þeir feðgar komu að
hylnum. Hann klæddi sig úr að of-
an og lagðist til hvílu á eyrinni.
Sagði hinum yngri að veiða eins og
þá lysti. Síðan ýmist dormaði rit-
stjórinn eða beinlínis svaf næstu
tvær klukkustundirnar á meðan
hinir köstuðu hverri flugunni af
annarri að löxunum. En þeir urðu
ekki varir.
En skyndilega settist Matthías
upp, svefndrukkinn, og horfði fyrst
út á ána, og síðan upp í bláan him-
ininn. „Blá áin, blár himinn,“
muldraði hann … blá fluga“, bætti
hann svo við. Opnaði fluguboxin og
leitaði í þeim. Það eina sem hann
fann var lítil þríkrækja sem líktist
Laxá blá, en var með einhverja
glimmerþræði í stélinu. „Þetta
merlar eins og áin,“ sagði ritstjór-
inn um leið og hann reis á fætur
og bað um stöngina, hann ætlaði
að skipta um flugu.
Hann hnýtti síðan bláu fluguna á
tauminn og rétti Haraldi stöngina.
Það var 5 pundari kominn á í
fyrsta eða öðru kasti. Honum var
landað og varla tveim til þremur
köstum síðar var annar kominn á
og uppá land skömmu síðar, 7
punda hængur. Þriðji laxinn tók
nánast strax, tók eða ekki tók, fer
eftir því hvernig það er skoðað.
Þegar laxinn var að brölta í flæð-
armálinu, 4-5 punda hængur, sáu
þeir að bláa flugan var krækt í
maðköngul sem sat fastur í kjaft-
viki laxins. Á síðustu sekúndunni
spyrnti laxinn við sporði í síðasta
skipti og náði að losa sig. Laxinn
synti frjáls útí á á ný, en upp kom
bláa flugan með maðköngulinn
hangandi á krókunum.
Þegar hér var komið sögu, vildi
Matthías kasta sjálfur. Var kominn
í stuð. Og það var ekki sökum að
spyrja, í fyrsta kasti var enn lax á.
Hálftíma seinna landaði hann stór-
glæsilegri 16 punda hrygnu, en
jafnvel þegar laxaseiðin af Þver-
árstofni voru að skila sér til baka
um árið voru svo stórir laxar fá-
séðir í Langá. Það jók enn á at-
burðinn í huga Matthíasar að
þremur dögum áður hafði hann
veitt í Þverá í Borgarfirði hluta af
vakt og sett í og landað 18 punda
laxi.“
Undir regnboganum
Gunnar Már kann fleiri sögur af
veiði í Langá:
„Uppáhaldsveiðistaður föður
míns í Langá var Hornhylurinn og
uppáhaldsflugan var Green Hig-
hlander. Toppurinn hjá honum var
að veiða í Hornhylnum á Green
Highlander. Einu sinni sagði pabbi
frá því að hann hefði verið að veiða
í Hornhylnum. Regnbogi blikaði
þar í nánd. Skyndilega færðist
regnboginn yfir hann svo að hann
stóð undir regnboganum! Faðir
minn var nú enginn ruglukollur og
raunsæismaður að eðlisfari. Það
kom mér því á óvart hvað hann
stóð fast á því að þetta hefði verið
svona. „Þetta er fræðilega ómögu-
legt,“ sagði ég, en honum varð
ekki haggað, svona var þetta. Eina
skýring mín er sú, að hann hafi
dreymt þetta og draumurinn verið
svo skýr í huga hans að honum
hafi fundist hann vera veruleiki.
Sagan var alþekkt í fjölskyldunni
en virðingin fyrir gamla manninum
var slík, að þetta var ekki haft í
flimtingum.
Það var svo mörgum árum eftir
lát pabba að við Hörður sonur
minn vorum að veiða í Hornhyln-
um. Ég var búinn að fara yfir hyl-
inn með flugu og óð í land. Hörður
beið á bakkanum, tilbúinn að taka
við. Þá er mér litið upp eftir ánni.
Þar blikaði regnbogi yfir Sveðju-
koti og Sveðjukletti. „Sjáðu regn-
bogann,“ sagði ég við Hörð og við
brostum báðir kankvíslega. „Hvaða
flugu ertu með?“ spurði ég. Hann
opnaði lófann. Hann hafði hnýtt
Green Highlander á tauminn.
Bókin um Langá á Mýrum er
gefin út af Litrófi.
herrar í Langá
Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson
39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
Ábyrg umræða um Evrópustefnu Sjálfstæðisflokksins
þar sem þitt álit skiptir máli.
Mánudagur 22. desember kl. 12:00 - 14:00
Verkhópur Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins sem fjallar um náttúruauðlindir
Íslands fundar í Valhöll. Á fundinum er fjallað um eftirfarandi efni:
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, ræðir um framtíðarstöðu Íslands og samstarf
við ESB, ef Ísland gengur ekki í sambandið.
Högni S. Kristjánsson, skrifstofustjóri Evrópuskrifstofu Utanríkisráðuneytissins, fjallar
um Lissabonsamninginn og áhrif hans á framtíð ESB og hugsanlega aðild Íslands.
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, gerir grein fyrir helstu hindrunum á
vegi aðildar Íslendinga að Evrópusambandinu vegna stefnu sambandsins í
sjávarútvegsmálum og yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni.
Fyrispurnir og athugasemdir að loknu hverju erindi.
Taktu þátt í að móta framtíðina
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Nánari upplýsingar um fundina og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
frumsýnd 1939. Mjallhvít og dverg-
arnir sjö er ennþá meðal tíu tekju-
hæstu kvikmynda Bandaríkjanna.
Stór Óskar og sjö litlir
Við gerð þessarar 83 mínútna
löngu teiknimyndar þróaðist ýmiss
konar tækni, sem enn í dag er not-
uð við gerð teiknimynda. Lögin í
myndinni, t.d. Some Day My
Prince Will Come og Whistle While
You Work, urðu afar vinsæl og
komu ásamt öðrum út á hljómplötu
um leið og myndin var frumsýnd –
markaðssetning, sem ekki hafði áð-
ur þekkst.
Teiknimyndin var fyrst end-
urgerð 1944 til að afla fjár fyrir
Disney-kvikmyndaverið í seinni
heimsstyrjöldinni. Eftir það skap-
aðist sú hefð að endurgera Disney-
teiknimyndir á sjö til tíu ára fresti.
Síðasta útgáfa Mjallhvítar og
dverganna sjö kom í kvikmyndahús
1993.
Árið 1997 valdi Bandaríska kvik-
myndastofnunin myndina sem
bestu teiknimynd allra tíma. Sjálf-
ur tók Walt Disney við sérstökum
heiðursverðlaunum Bandarísku
kvikmyndaakademíunnar 1939 fyrir
Mjallhvít og dvergana sjö, með
þeirri umsögn að myndin markaði
tímamót, hefði heillað milljónir
manna og verið brautryðjandi fyrir
nýja og stórkostlega afþreyingu.
Barnastjarnan Shirley Temple af-
henti honum einn stóran Óskar og
sjö litla.
Tímamótamynd Mjallhvít og dvergarnir sjö var fyrirrennari átján teiknimynda í fullri lengd úr smiðju Walt Disney.