Morgunblaðið - 21.12.2008, Page 41
41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
1. Hvaða eiginleika metur þú mest í fari annarra?
Sanngirni, heiðarleika og skopskyn.
2. Ef þú ættir kost á að gefa ráðamönnum þjóðarinnar eitt ráð, hvað myndir
þú ráðleggja þeim?
Að þeir kappkosti að búa eldri kynslóðinni þau kjör sem þeir sjálfir vilja
búa við þegar þeir komast á efri ár.
3. Nefndu tvo helstu galla þína og tvo helstu kosti.
Það verða aðrir að dæma um, ég veit minnst um það.
4. Hvers vegna fórstu að vinna hjá Mæðrastyrksnefnd?
Af forvitni og áhuga á kjörum annarra.
5. Hvaða manneskju, lífs eða liðinni, dáist þú mest að – og hvers vegna?
Ég dáist mest að þeim sem bogna en brotna ekki en rísa aftur upp jafn
sterkir og áður.
6. Af hverju ert þú stoltust á starfsferlinum?
Þegar ég neitaði að skrifa undir kjarasamning í verkfalli BSRB 1984 nema
ákæra sýslumannsins á hendur talsímakonunum á Ísafirði yrði felld niður.
Það er kannski óþarfi að taka það fram, en við unnum fullan sigur.
7. Hvað finnst þér mest gefandi í starfi þínu hjá Mæðrastyrksnefnd?
Að fá tækifæri til að rétta hjálparhönd og vinna með því frábæra starfs-
fólki, konum og körlum, sem allt vinnur sem sjálfboðaliðar hjá Mæðrastyrks-
nefndinni.
8. Hefur þú sjálf upplifað fátækt?
Nei, ég get ekki sagt það. Ég hef aldrei soltið en ég hef heldur aldrei átt
milljarð!
9. Hvað fer mest í taugarnar á þér í dagsins önn og amstri?
Græðgi, hroki og tillitsleysi.
10. Ef þú endurfæddist til annars lífs, hver og hvar mundir þú vilja vera?
Útilegumaður í fjallakofa á Sprengisandi.
11. Hvaða áhugamál áttu utan vinnu?
Ferðalög um hálendi Íslands og lestur góðra bóka.
12. Hvaða rithöfundi hefur þú mest dálæti á?
Svövu Jakobsdóttur og Kristínu Marju Baldursdóttur.
13. Finnst þér samkennd fólks með þeim sem minna mega sín hafa aukist á
liðnu góðæri, eða er því öfugt farið?
Henni hrakaði í góðærinu, en hún er að ná sér aftur á strik nú í kreppunni.
Það merki ég á þeim fjölmörgu gjöfum og styrkjum sem hafa borist Mæðra-
styrksnefndinni.
Samkenndinni
hrakaði í góðærinu
Ragnhildur G. Guð-
mundsdóttir ólst upp á
Kópaskeri, Norður-
Þingeyjarsýslu.
Hún er dóttir Þóreyjar
Böðvarsdóttur, húsmóður og
söngkennara, og Guðmundar
Björnssonar, bónda og versl-
unarmanns, sem vann síðustu
árin hjá Fasteignamati rík-
isins.
Hún tók gagnfræðapróf frá
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar.
Eiginmaður hennar var
Ólafur Þórðarson, bakari og
tollvörður á Ísafirði. Hann lést
1990. Þau eignuðust fjóra
syni, þrír búa í Reykjavík og
einn á Ísafirði.
Ragnhildur starfaði hjá
Landssíma Íslands frá 1965 til
2000, var formaður FÍS, Fé-
lags íslenskra símamanna,
1984-1997 og varaformaður
BSRB 1988-1997. Fram-
kvæmdastjóri KRFÍ, Kvenrétt-
indafélags Íslands, 2003-
2005, og formaður Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur frá
2004.
LÍFSHLAUP
RAGNHILDAR
Maður eins og ég | Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar
Krabbameinsfélagsins
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
6
2
2
0
vinningar
Glæsilegir
Upplýsingar um vinningsnúmer í símum 540
1918 (símsvari) og 540 1900 og
á www.krabb.is/happ
Fjöldi útgefinna miða: 140.500
Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein
einhvern tímann á lífsleiðinni
1 Inneign hjá Öskju upp í
Mercedes-Benz að eigin vali
Verðmæti 4.000.000 kr.
1 Greiðsla upp í bifreið eða íbúð
Verðmæti 1.000.000 kr.
Úttektir hjá ferðaskrifstofu
eða verslun
Verðmæti 100.000 kr.
185
187 skattfrjálsir vinningar
að verðmæti 23.500.000 kr. Dregið 24. desember 2008
Vertu með og styrktu
gott málefni
Amma Margrétar Þórhildar Dana-
drottningar, Alexandrína drottning,
kynnti Dönum þann sið að hafa að-
ventukrans í jólamánuðinum.
Alexandrína þekkti siðinn frá
heimaslóðum sínum í Norður-
Þýskalandi. Hún giftist 1898 Krist-
jáni Danaprins, sem síðar varð
Kristján 10. Þegar hún var sest að í
Danmörku pantaði hún aðventu-
krans hjá blómasala í Árósum.
Og það var ekki að sökum að
spyrja. Hver einasta fín frú í Árós-
um pantaði eins aðventukrans,
grenihring með rauðum og hvítum
borðum og fjórum kertum, einu fyrir
hvern sunnudag í aðventu.
Siðurinn breiddist út um Dan-
mörku alla og auðvitað alla leið til Ís-
lands.
Núna eru aðventukransar ekki
endilega hnýttir úr greni, heldur eru
útgáfurnar nánast jafn margar og
heimilin sem þeir prýða.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fínu frúrnar
urðu að fá
kransinn