Morgunblaðið - 21.12.2008, Síða 45

Morgunblaðið - 21.12.2008, Síða 45
inu til, því Claus var mest í íbúðinni í New York. Þar lifði hann á tæplega fjórtán milljóna króna framfærslu eiginkonu sinnar á ári og fór ekki dult með ástarsamband sitt við Alexöndru Isles, fegurðardís og sápuleikkonu. Hún var af auðugu fólki komin og var honum svo dýr í rekstri að hann átti í mesta basli með að láta enda ná saman. Loks setti hún honum þá úrslitakosti að skilja við eiginkonu sína og kvænast sér, ella væri hún út úr myndinni. Sunny var ekki á þeim buxunum að gefa manni sínum eftir skilnað og Claus var tvístígandi, peningamálin efalítið eitthvað að vefjast fyrir hon- um. Ekki var annað vitað en þau væru skilin að skiptum þegar von Bülow- fjölskyldan kom saman á setri sínu á Rhode Island í desember 1979. Vel virtist fara á með þeim hjónum, Claus og Sunny. Á jóladag var þó allt með öðrum brag, húsmóðirin lá veik í rúminu allan daginn, en hún hafði kennt sér slappleika eftir að þau Alexander, sonur hennar, höfðu fengið sér drykk saman kvöldið áð- ur. Þjónustustúlka Sunny, Maria Schrallhammer, hafði áhyggjur af heilsufari frúarinnar og leist ekkert á blikuna þegar hún, þrátt fyrir blátt bann eiginmannsins, leit inn til hennar. Þar sá hún Claus liggja pollrólegan við hlið konu sinnar og lesa, þótt hún væri rænulaus að sögn Mariu. Þrátt fyrir áeggjan hennar þverskallaðist Claus við að kalla á lækni og lét ekki undan fyrr en um síðir að áeggjan Alexanders, en hann hafði farið út strax um morguninn og því ekki vitað hvers kyns var. Ekki mátti tæpara standa því þegar læknirinn kom kastaði Sunny upp og hætti að anda. Hann hreinsaði öndunarveginn og hóf hjartahnoð og fylgdi henni á sjúkra- hús þar sem hún fékk viðeigandi meðferð og rankaði við sér um síðir. Hörmuleg jól Engin eftirmál urðu í þetta skipt- ið. Hinn 21. desember 1980, þegar fjölskyldan hugðist enn á ný eyða saman jólunum, utan Annie-Laurie, sem var í Evrópu með eiginmanni sínum, gerðist Sunny æ veiklulegri. Alexander bar hana inn í svefn- herbergi og þráspurði hvort hún hefði tekið svefn- eða verkjapillur, sem hún neitaði staðfastlega. Þegar hann leit til hennar skömmu síðar fann hann móður sína þar sem hún reyndi að skríða frá baðherberginu að rúminu. Alexander taldi þó öllu óhætt því stjúpfaðir hans var kom- inn inn í herbergið, kvaddi móður sína og fór að hitta vini sína á bar í nágrenninu. Claus, Alexander og Cosimu þótti Sunny óvenjulega sein í morgunverð daginn eftir og úr varð að Claus að- gætti hverju sætti. Þegar hann kom að konu sinni rænulausri og blæð- andi á baðherbergisgólfinu kallaði hann á Alexander. Hún var í vægast sagt hörmulegu ástandi; með skurð á vör, veikan púls, náttkjólinn í kuðli um mjaðmirnar auk þess sem hún lá í eigin þvagi. Hringt var á sjúkrabíl, en strax í bráðamóttökunni í New- port-sjúkrahúsinu þurftu læknar að endurlífga hana eftir hjartastopp. Síðan var hún send á sjúkrahús í Boston þar sem úrskurðað var að hún væri í dái, sem ekki væri í mannlegu valdi að vekja hana af. Auersperg-systkinin grunuðu stjúpföður sinn um morðtilraun og fólu fyrrverandi saksóknara í New York-sýslu að rannsaka málið. Hann aflaði nægra sönnunargagna fyrir saksóknara Rhode Island til að fara með málið fyrir ákærudómstól, sem í júlí 1981 ákærði Claus von Bülow fyrir tvöfalda morðtilraun. Réttarhöldin Réttarhöldin hófust í febrúar 1982 og vöktu gríðarlega athygli. Ákæru- valdið leiddi að því líkum að kærði hefði myrt konu sína í auðg- unarskyni. Það ásamt vitnisburði þjónustufólks, m.a. Mariu Schrall- hammer, lækna, fyrrverandi ást- konu Claus, Alexöndru Isles, auk sönnunargagna á borð við svarta lyfjatösku og notaða sprautunál með leifum af insúlíni, sem fannst í íbúð Claus, nægði til að hann var dæmd- ur í þrjátíu ára fangelsi. Í rétt- arhöldunum var margt misjafnt dregið fram í dagsljósið, t.d. að Sunny notaði reiðinnar býsn af verkja- og róandi lyfjum og meira áfengi en góðu hófu gegndi. Það breytti þó engu um að virtur sér- fræðingur bar fyrir dómi að heila- skaðinn væri óyggjandi afleiðing in- súlínsprautu. Claus von Bülow áfrýjaði dómn- um og fékk málið tekið fyrir aftur 1985. Milljarðamæringurinn J. Paul Getty er sagður hafa verið hinum gamla starfsmanni sínum innan handar í hremmingunum. Ekkert var til sparað, stjörnulögfræðing- urinn Alan Dershowitz tók málið að sér, en hann skrifaði seinna bók um það, Reversal of Fortune, sem sam- nefnd kvikmynd var gerð eftir 1990 með Jeremy Irons og Glenn Close í aðalhlutverkum. Almenningur fylgdist með framvindunni í sjón- varpinu eins og hverri annarri sápu- óperu. Fjölmiðlafárið var gífurlegt, alls konar frægt fólk kom Claus Bü- low til varnar í réttarhöldunum, t.d. rithöfundurinn Truman Capote og Joanne, eiginkona þáttastjórnand- ans Johnnys Carsons. Breskir vinir Claus létu sig heldur ekki muna um að koma vestur um haf í sama til- gangi, þar á meðal lafði Lond- onderry, sem var gift tónlistar- manninum George Fame. Í stórum dráttum gekk vörnin út á að sýna fram á að inntaka annarra lyfja, t.d. valíums og þunglynd- islyfja, gæti leitt til þeirrar röngu niðurstöðu að viðkomandi hefði fengið insúlín. Ekkert insúlín = enginn glæpur. Sú vitneskja að Sunny hefði gleypt meira en eitt hundrað aspiríntöflur tveimur vik- um áður en hún féll í dá og þar áður dottið niður meðvitundarlaus og framkallað hjá sjálfri sér heiftarleg uppköst í kjölfarið styrkti málsvörn von Bülows. Einnig fimm málsmet- andi og sprenglærðir sérfræðingar, sem vitnuðu um að ástand Sunny helgaðist af því að hún hefði tekið inn of stóran kokteil lyfseðilsskyldra lyfja og þjáðist af krónísku glúk- ósaóþoli. Hrókar alls fagnaðar í samkvæmislífinu Claus von Bülow var fundinn sýkn saka 10. júní 1985. Tvær konur höfðu staðið eins og klettar við hlið hans, dóttirin Cosima og Andrea nokkur Reynolds, sem varð kærasta hans eftir að hún og þriðji maður hennar, Sheldon Reynolds sjón- varpsmyndaframleiðandi, skrifuðu honum bréf og sögðust trúa sakleysi hans. Þrenningin mælti sér mót og lagði á ráðin um að Reynolds yrði umboðsmaður von Bülows vegna fyrirhugaðrar ævisögu, sem mein- ingin var að gera sjónvarpsþætti eftir. Von Bülow stakk upp á að Ro- Stjörnulögfræðingur Alan Dershowitz. Fjölskyldan Von Bülow-hjónin ásamt börnum Sunny, Alexander og Annie Laurie, nokkrum árum eftir að þau fluttust til Bandaríkjanna. Kvikmynd Reversal of Fortune var byggð á bók lögfræðings Claus. Feðgin Cosima, dóttir Sunny og Claus, trúir á sakleysi föður síns. Vitni Alexander og Annie Laurie von Auersperg, börn Sunny af fyrra hjóna- bandi, Alexandra Isles, fyrrum ástkona Claus, og þjónustustúlkan Maria Schrallhammer, báru Claus von Bülow ekki vel söguna fyrir rétti. Kærastan Andrea Reynolds var mikið í sviðsljósinu í seinni réttarhöldunum. bert Duvall léki sig. Allar áætlanir fóru þó út um þúf- ur þegar Reynolds, sem hafði brugðið sér af bæ, las um framhjá- hald konu sinnar með söguefninu í slúðurblaði. Frúin lét hafa eftir sér að hún hefði verið vanrækt og óham- ingjusöm í hjónabandinu. „Ef Claus þarf að giftast Andreu á hann eftir að óska þess að hann hefði verið sakfelldur,“ var það eina sem bóndi hennar sagði. Eftir þetta fóru þau ekki dult með samband sitt. Þau bárust mikið á, bjuggu í glæsiíbúð Sunny í New York, þar sem þau héldu dýrðleg kvöldverðarboð fyrir hið svokallaða fína fólk borgarinnar, og urðu fljót- lega hrókar alls fagnaðar í sam- kvæmislífi borgarinnar. Þau virtust kunna ljómandi vel við sig í sviðs- ljósinu. Andrea ku hafa tekið miklu ást- fóstri við Cosimu, sem hálfsystkinin vildu ekkert af vita sökum stuðnings hennar við föður sinn. Til þess var tekið að á átján ára afmælisdegi hennar buðu faðir hennar og Andrea henni á fínasta veitingastað, sem völ var á í New York, ásamt herskara frægs fólks úr kunningjahópi sínum, en engum á hennar reki. „Á meðan þau taka Cosimu með sér borgar sjóður hennar brúsann,“ hvíslaði ónefndur að Dominick Dunne hjá Vanity Fair. Sjálfum þótti Dunne þau skötuhjú í svo miklu uppnámi yfir að móðuramma Cosimu hafði gert hana arflausa að jaðraði við þráhyggju. Og svo … Auersperg-systkinin, sem voru og eru ennþá sannfærð um sekt Claus og jafnframt að móðir þeirra hafi ætlað að skilja við hann slyppan og snauðan, höfðuðu einkamál til að tryggja að hann fengi aldrei eyri af auðæfunum. Claus von Bülow féllst á að skilja við Sunny, afsala sér öll- um kröfum í eignir hennar – og sór að halda sér saman. Á móti sam- þykktu systkinin að greiða Cosimu arfinn eftir móðurömmu þeirra, rúman hálfan milljarð íslenskra króna. Þau feðginin búa í Knightsbridge í London og þar hefur ekki væst um þau. Claus fluttist þangað 1991, eftir að þau Andrea Reynolds skildu að skiptum, og dóttirin skömmu síðar. Hann hefur síðan starfað sem lista- og leikhúsgagnrýnandi, en hún er gift ítölskum greifa og á með honum þrjú börn. Henni kippir í kynið að því leyti að kvöldverðarboð hennar eru rómuð meðal mektarfólks borg- arinnar. Boð pabbans eru sam- kvæmt telegraph.co.uk ögn smærri í sniðum, en engu að síður eru veit- ingarnar af fínustu sort; eðalvín og gæsalifur. Ekki að ósekju að hann var 2001 valinn af tímaritinu Tatler í 46. sæti yfir vinsælasta samkvæm- isgestinn. Aðlaðandi, gáfaður og kurteis, sögðu bresku blöðin þegar þau rifjuðu upp lífshlaup hans í tengslum við lát fyrrverandi eig- inkonu hans. Sekur eða saklaus? Þeirri spurningu verður aldrei svar- að. Málið er dautt. Vettvangur glæps? Clarendon Court, glæsivilla í gregorískum stíl á Rhode Island, þar sem fjölskyldan kom saman jólin 1980. 45 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.