Morgunblaðið - 21.12.2008, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 21.12.2008, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008 Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins Æskilegt er að setja reglur um kerti og kertaskreytingar á vinnustöðum og að þær séu öllum starfsmönnum vel kynntar. Aldrei má skilja eftir logandi kerti eða kertaskreytingu í mannlausu herbergi s.s. í fundarherbergi eða á kaffistofu vinnustaðar. Munið að slökkva á kertunum HEILSUSTEFNAheilbrigðisráðuneytis er frábær aðgerð- aráætlun sem miðar að því að efla heilbrigða lífshætti og koma í veg fyrir heilsubresti hjá þjóðinni. Næring- arfræðingar/-ráðgjafar eru löggildar heilbrigð- isstéttir sem hafa sér- menntað sig í heilbrigði líkamans með tilliti til næringarinnar og geta því lagt hönd á plóginn með öðrum heilbrigðisstéttum við að styðja við einstaklinga þegar kemur að mataræði og heilbrigðum lífsstíl. Næringarfræðingar/-ráðgjafar telja að ef takast á að snúa þjóðinni af þeirri braut sem hún er á hvað varð- ar óheilbrigði og í átt til hollustu sé aðkoma þeirra einn af meginþáttum til þess bæta þekkingu landsmanna á mataræði. Þegar litið er til grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins, heilsugæsl- unnar, þá er ljós gríðarleg þörf fyrir næringarfræðinga sem sinna myndu forvörnum í samvinnu við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk. Í heilsu- gæslunni ætti að fræða unga fólkið sem er að taka sín fyrstu skref í upp- eldi og halda þannig áfram með hverja kynslóð upp í gegnum skóla- kerfið. Í heilsugæslunni er oftast fyrst komið auga á að í óefni stefnir hvað varðar holdafar s.s. offitu eða vannæringu svo einhver dæmi séu tekin. Næringarfræðingar/-ráðgjafar eru nauðsynlegur hlekkur í þeirri keðju sem sæi um að beina ein- staklingum inn á réttar brautir í mataræði. Enginn næringarfræð- ingur/-ráðgjafi starfar nú hjá Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðisins fyr- ir utan mæðraverndina. Þegar þegnar sam- félagsins greinast að lokum (því miður oft vegna vanþekkingar á mataræði og næringu) með sjúkdóma s.s. hjarta- og æða- sjúkdóma og sykursýki þá er sérþekking nær- ingarfræðinga/- ráðgjafa ennþá mikilvægari því mat- aræði er einn af grundvallarþáttum meðferðar þessara sjúkdóma. Það hafa ótal rannsóknir sýnt og má sjá í klínískum leiðbeiningum við meðferð sjúkdóma á vef Landlæknisembætt- isins.Nýútkomin Heilsustefna heil- brigðisráðuneytis felur sérstaklega í sér heilsueflingu einstaklingsins allt frá ungbarnavernd/leikskóla upp í framhaldsskóla og á öllum skólastig- um er mataræði og hollur lífsstíll nefndur sem einn af hornsteinum heilbrigðis. Sem starfsmenn heilsu- gæslunnar ættu næringarfræð- ingar/-ráðgjafar einnig að sinna fræðslu í leikskólum og grunnskólum og leggja þar með sitt lóð á vog- arskálarnar til þess að koma í veg fyrir óheilbrigði sem hlýst af röngu mataræði. Svo virðist sem margar aðrar heilbrigðisstéttir telji sig þess umkomnar að sinna næringarráðgjöf í stað næringarfræðinga/-ráðgjafa. Ein af ástæðum þess er líklega sú að öll borðum við mat og allir hafa skoðun á því hvað sé hollt og gott að borða og hvað ekki. Ráðleggingar leikmanna eru oft mjög misvísandi og villandi og næringarfræðingar/- ráðgjafar finna mjög ítrekað hversu brýnt það er að kenna einstaklingum að umgangast fæðu á réttan hátt. Auglýsingar og misgáfuleg skilaboð dynja á fólki úr öllum áttum en að baki þeim áróðri liggur ætíð gróða- sjónarmið en ekki umhyggja fyrir heilbrigði þjóðarinnar! Að gefnu til- efni skal ítrekað að næringarfræð- ingur og næringarráðgjafi eru lög- vernduð starfsheiti og enginn má bjóða upp á næringarráðgjöf nema hafa til þess leyfi frá heilbrigðisráðu- neyti. Þessar stéttir starfa að mestu leyti á sjúkrastofnunum landsins en fáir bjóða upp á næringarráðgjöf til almennings. Ástæða þess er að mestu leyti vegna kostnaðarins sem fellur eingöngu á þann sem ber sig eftir þjónustunni. Ríkið tekur engan þátt í þeim kostnaði sem við teljum að falli undir forvarnir gegn sjúk- dómum. Að endingu vilja næringarfræð- ingar/-ráðgjafar skora á ráðherra heilbrigðismála að sjá til þess að al- menningur geti leitað í heilsugæsl- una og fengið faglega fræðslu og að- stoð með tilliti til mataræðis og næringar. Næringarfræðingar og heilsu- stefna heilbrigðisráðuneytis Bertha María Ársælsdóttur skrifar um næringarráðgjöf »Næringarfræðingar og næringarráð- gjafar eru heilbrigð- isstéttir sem gjarnan myndu vilja sinna ráð- gjöf og forvarnarstarfi í heilsugæslu lands- manna. Bertha María Ársælsdóttir Höfundur er matvæla- og næring- arfræðingur og félagi í Matvæla- og næringarfræðafélagi Íslands, mni.is. Í MARS 1999 sam- þykkti Alþingi tillögu Arnbjargar Sveins- dóttur um að næstu jarðgöng yrðu milli Reyðarfjarðar og Fá- skrúðsfjarðar. Einu ári seinna kynnti fyrrver- andi samgöngu- ráðherra, Sturla Böðv- arsson, á blaðamannafundi jarð- gangaáætlun Vega- gerðarinnar sem eitt forgangsverk- efni fyrir Vestfirði, Norður- og Austurland. Öll rök mæla nú gegn því að Dýrafjarðargöng sem hefðu átt að vera í fyrsta áfanga með nýju Fáskrúðsfjarðargöngunum geti beð- ið mikið lengur. Fréttir af aurskriðum, grjóthruni og snjóflóðum norðan Súðavíkur og í Kirkjubólshlíð við Ísafjarðarflugvöll vekja spurningar um hvort und- irbúningsrannsóknum á jarð- gangagerð milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar hefði átt að hraða fyr- ir löngu. Hægt er að losna við snjó- flóðahættuna í Arnardal, Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð ef grafin verða 6 til 7 km löng veggöng úr Engidal sem kæmu út í Álftafirði í stað Eyrardals vegna snjóþyngsla. Fyrr á síðasta ári skrifaði ég nafn mitt til stuðnings heimamönnum sem söfnuðu undirskriftum til að fylgja þessu máli eftir. Svo slæmt er ástandið í samgöngumálum Vestfirð- inga að vegirnir í fjórðungnum standa alls ekki undir nútímaörygg- iskröfum sem gerðar eru í dag. Hug- myndin um að fresta framkvæmdum við jarðgöngin milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar og flýta þess í stað jarð- gangagerð milli Súðavíkur og Ísa- fjarðar er fjarstæðukennd og óraun- hæf án undirbúningsrannsókna sem fyrrverandi þingmenn hefðu fyrir löngu átt að flytja tillögu um á Al- þingi. Þetta vandamál verður ríkisstjórnin að leysa sem allra fyrst til að tryggja öryggi veg- farenda sem um þetta svæði keyra allt árið um kring. Jarð- gangamöguleikar í Súðavíkurhlíð og Arn- ardal koma aldrei í veg fyrir að grjóthrun, aur- skriður og snjóflóð hrelli vegfarendur í Skutulsfirði og í utanverðum Álfta- firði. Í samgöngunefnd Alþingis skulu allir þingmenn Norðvesturkjör- dæmis beita sér fyrir því að Súðavík- urgöng verði næst í röðinni að lokn- um framkvæmdum við Dýrafjarð- argöng sem brýnt er að ráðast í eftir eitt ár. Þá verður stigið fyrsta skref- ið til að tengja Vesturbyggð og Barðaströnd við Ísafjarðarsvæðið. Kröfunni um 2 km löng veggöng undir Hrafnseyrarheiði í 290 til 360 m hæð hefur nú verið vísað til föð- urhúsanna fyrir fullt og allt sem bet- ur fer. Þau tryggja aldrei örugga heilsárstengingu suðurfjarðanna við Ísafjörð þegar hafðar eru í huga hættur á snjóflóðum, grjóthruni og aurskriðum þótt grafin yrðu 12 til 16 km löng vegamótagöng undir Dynj- andisheiði. Samgöngubót í formi jarðganga sem tengir Hrafnseyri við Ísafjarðarsvæðið á 200 ára afmæli þjóðfrelsishetjunnar Jóns Sigurðs- sonar 17. júní árið 2011 væri verð- skulduð þjóðargjöf til Vestfirðinga. Þá verða framkvæmdir við göngin að hefjast í síðasta lagi árið 2009. Í framhaldi af þessu vantar fjöl- mörg styttri veggöng til að íbúar Barðastrandar og Vesturbyggðar fái líka heilsárstengingu við þennan sögufræga fæðingarstað Jóns for- seta í Arnarfirði. Þessar samgöngu- bætur í fjórðungnum snúast um hvort hægt verði á komandi árum að stytta landleiðina milli Patreks- fjarðar og Ísafjarðar um 40 til 50 km þótt framkvæmdir hefjist fyrst við Súðavíkurgöng sem heimamenn við Ísafjarðardjúp berjast fyrir á þessu og næsta kjörtímabili. Samhliða veg- göngunum til Bolungarvíkur munu þau styrkja Ísafjörð sem öflugt bú- setusvæði allt árið um kring þegar slysagildrurnar týna tölunni. Ástandið á bröttum, háum og snjó- þungum fjallvegum í 500 til 600 m hæð réttlætir ekki að íbúar Vest- urbyggðar og suðurfjarðanna keyri meira en 1000 km ef þeir ætla í versl- unarferð til Ísafjarðar og aftur heim. Næstu áratugina taka þeir því aldrei þegjandi að þurfa að keyra alla þessa vegalengd um 50 ára gamla vegi í Barðastrandasýslu sem eru opnir fimm mánuði á ári þegar vel viðrar, í gegnum Búðardal, Hólmavík og þaðan um 200 km yfir Þorskafjarðarheiði vestur í Djúp. Þingmenn Norðvesturkjördæmis skulu ásamt samgönguráðherra kynna sér þetta ástand í fjórð- ungnum og svara öllum spurningum heimamanna sem vilja vita hvernig þeir geti losnað við Kleifaheiði, Klettsháls, Dynjandisheiði og veginn í Mjólkárhlíð þegar framkvæmdum við Dýrafjarðargöng lýkur. Jarðgöng til Súðavíkur Guðmundur Karl Jónsson skrifar um samgöngumál » Svo slæmt er ástand- ið í samgöngumálum Vestfirðinga að vegirnir í fjórðungnum standa alls ekki undir nútíma- öryggiskröfum sem gerðar eru í dag. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.