Morgunblaðið - 21.12.2008, Page 62
62 Dagók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
7 5 9
3 2 8 7
6 5 1
4 1 5 6
4 3 5 6 7 8
6 9 7 3
1 8 3
8 3 5 7
4 9 8
5 3 9 2 6
7 4
1 7
5 1 2 7
6 5 9 4
3 1 7 5
8 1
1 4
3 9 7 8 5
2 4 8 6
7 4
9 7 1
6 9 5 7
9 2 4 8
7 1 8 9
8 9 4
9 3
2 5 6 9
6 7 2 4 8 3 5 1 9
3 9 8 5 1 7 2 4 6
5 1 4 9 2 6 3 8 7
2 4 7 8 5 9 1 6 3
1 5 6 7 3 4 8 9 2
9 8 3 1 6 2 4 7 5
8 3 9 2 7 1 6 5 4
7 6 5 3 4 8 9 2 1
4 2 1 6 9 5 7 3 8
1 5 8 3 9 7 4 2 6
4 7 2 6 5 8 3 9 1
6 9 3 4 1 2 7 8 5
3 4 9 8 7 1 6 5 2
2 6 1 9 4 5 8 3 7
5 8 7 2 6 3 9 1 4
7 1 6 5 8 9 2 4 3
9 2 4 1 3 6 5 7 8
8 3 5 7 2 4 1 6 9
9 7 3 6 4 5 8 2 1
5 1 2 7 8 3 4 6 9
4 6 8 1 9 2 7 5 3
7 4 1 3 2 8 6 9 5
2 8 5 9 6 7 1 3 4
3 9 6 4 5 1 2 8 7
6 5 7 2 1 9 3 4 8
8 3 4 5 7 6 9 1 2
1 2 9 8 3 4 5 7 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 21. desember,
356. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víkverji hefur kolfallið fyrir lag-inu Pabbi minn er ríkari en
pabbi þinn eftir Braga Valdimar
Skúlason sem er á geisladisknum
Gilligill. Textinn, þar sem tvö börn
rífast um það hvor pabbinn sé ríkari,
er hreint óborganlegur. Ríku pabb-
arnir eiga til dæmis marmarahöll í
Paradís, egypskan faraó í frystinum
og órangútanskó. Flytjendurnir fara
á kostum: Björgvin Halldórsson,
Egill Ólafsson, Magga Stína og Sig-
ríður Thorlacius. Það heyrist á söng
þeirra og áherslum hvað þeim hefur
fundist stórkostlega skemmtilegt að
flytja lagið. Víkverji er rétt skriðinn
yfir fimmtugt en keypti sér samt
diskinn þrátt fyrir að hann sé ætl-
aður börnum. Síðustu daga hefur
Víkverji spilað þetta uppáhaldslag
sitt á hverjum degi í vinnunni til að
koma sér í rétta gírinn. Hann hefur
einnig hlustað á önnur lög á disknum
og þau eru sannarlega fín og góð en í
huga Víkverja jafnast ekkert lag á
við Pabbi minn er ríkari en pabbi
þinn.
x x x
Víkverji er eins og margir aðrirorðinn hundleiður á allri nei-
kvæðninni í þjóðfélaginu. Ástandið
er vissulega ekki gott en það skánar
sannarlega ekki ef þjóðin ætlar að
týna sér í bölmóð upp á hvern ein-
asta dag. Allir vitja hversu mikil þol-
raun það er að eiga vinnufélaga sem
nöldra og tuða allan daginn eða
ganga um öskureiðir. Þeir sem
þannig láta eru að nýta orku sína til
niðurrifs. Og þegar heil þjóð er farin
að láta þannig þá er ekkert sérlega
gaman að tilheyra henni. Bjartsýnin
verður að fá að blómstra og það er
aldrei meiri nauðsyn á henni en ein-
mitt þegar útlitið er ekki sem allra
best.
x x x
Víkverji hlakkar óumræðilega tiljólanna. Hann er búinn að
draga fram bækur sem hann ætlar
að lesa og DVD myndir sem hann
ætlar að horfa á. Matseðillinn er
sömuleiðis tilbúinn. Engir dagar í
lífinu eru eins yndislegir og jóladag-
arnir. Gott að þeir koma á hverju
ári! víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hraustmenni,
8 útgerð, 9 skjálfa, 10
forskeyti, 11 tígrisdýr,
13 líkamshlutann, 15
karlfugl, 18 ólmur, 21
blóm, 22 andvarps, 23
gleðin, 24 álf.
Lóðrétt | 2 alfarið, 3 eld-
ar, 4 stóð við, 5 notaði, 6
ójafna, 7 skora á, 12 ekki
gömul, 14 aðstoð, 15
sæti, 16 voru í vafa, 17
grasflöt, 18 biðjum um,
19 raklendið, 20 bráðum.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hnáta, 4 hnupl, 7 ýlfur, 8 afnám, 9 ill,
11 ilma, 13 erja, 14 súpum, 15 hopi, 17 meis,
20 ósk, 22 úðinn, 23 refur, 24 ansar, 25 tuðra.
Lóðrétt: 1 hlýri, 2 álfum, 3 akri, 4 hjal, 5 unn-
ur, 6 lemja, 10 lepps, 12 asi, 13 emm, 15 hnúta,
16 prins, 18 erfið, 19 sárna, 20 ónar, 21 kryt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Dd6 4. d4
Rf6 5. Rf3 a6 6. g3 g6 7. Bf4 Dd8 8. Bg2
Bg7 9. O-O O-O 10. De2 c6 11. Hfe1
He8 12. Re5 Be6 13. Had1 Rd5 14. Bd2
Rxc3 15. Bxc3 Rd7 16. d5 cxd5 17.
Bxd5 Bxd5 18. Hxd5 Bxe5 19. Bxe5
Dc8 20. Bc3 Dc6 21. Hed1 Rf6 22. He5
Kf8 23. Bb4 Rg8 24. Hd3 Hac8 25. c3
b6 26. Hd4 a5 27. Ba3 Hc7 28. Hed5
Kg7 29. Db5 Rf6 30. Dxc6 Hxc6 31.
He5 e6 32. c4 Hec8 33. b3 H8c7 34. Bb2
Rg8
Staðan kom upp á opnu alþjóðlegu
móti sem lauk fyrir skömmu í Belgrad í
Serbíu. Snorri G. Bergsson (2340)
hafði hvítt gegn Mladen Knezevic
(2167). 35. Hd6! Kf8 36. Hd8+ Kg7 37.
Hxe6+ f6 38. Hxc6 Hxc6 39. Hd7+
Kh6 40. Bd4 Kg5 41. Hg7 Rh6 42.
Be3+ Kh5 43. h3 f5 44. g4+ og svartur
gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
100% svíning.
Norður
♠Á1098
♥742
♦653
♣K54
Vestur Austur
♠53 ♠42
♥ÁKG98 ♥10653
♦Á987 ♦DG10
♣63 ♣G987
Suður
♠KDG76
♥D
♦K42
♣ÁD102
Suður spilar 4♠.
Sagt er að svíning sé 50%, en það er
mikil einföldun. Sumar svíningar eru
vonlausar og aðrar fullkomlega örugg-
ar.
Vestur spilar út ♥Á og kóng. Suður
trompar, tekur tvisvar spaða og fagn-
ar 2-2 legunni í huganum, enda er jöfn
tromplega nauðsynleg fyrir þá ráða-
gerð sem sagnhafi hefur í huga. En
hún er þessi: Að trompa þriðja hjart-
að, taka tvo efstu í laufi og svína
lauftíunni í þriðju umferð. Svíningin
má fara á hvorn veginn sem er. Í
þessu tilfelli heppnast hún og einn tíg-
ull í borði fer niður í ♣D. En vestur
mátti líka lenda inni á ♣G, því þá
hefði hann þurft að gefa slag á ♦K.
Svíningar eru augljóslega æði mis-
jafnar. Þessi er svo pottþétt að hún
heppnast jafnvel þótt hún misheppn-
ist.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Nú er komið að því að fjárfesta
arðinn af erfiði þínu. Ef þú stendur sjálfa
þig að dagdraumum um ótilgreinda eyju í
hitabeltinu skaltu snúa tilbaka.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það gæti komið sér vel fyrir þig að
ræða málin við vinkonu þína í dag. En
með smá breytingu á framlagi þínu verð-
ur það viðeigandi og sjálfstraust þitt
eykst.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú þarft að taka áhættu vegna
þess að þú veist ekki hvernig hlutirnir
eiga eftir að þróast. Vertu bara þú sjálfur
og njóttu þess sem gefur lífinu lit.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú getur komið miklu í verk á
heimilinu í dag. Samræður við aðra, hópa
eða vini, leiða mjög sennilega til misskiln-
ings og óvissu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér sárna ummæli sem falla í samtali
innan fjölskyldunnar. Kauptu eitthvað
sem fegrar heimili þitt og gerir það að
notalegri dvalarstað.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Glímdu við verkefni á heimilinu
sem þú hefur forðast að undanförnu.
Byrjaðu á því að rýma til í kringum þig
með því að henda því sem þú notar ekki
og þarft ekki á að halda.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú er tilfinningalega heiðarlegur, fé-
lagslega þroskaður og umhverfislega
meðvitaður. En mundu að taka bara eðli-
legt gjald, græðgi leiðir bara til illinda.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hlustaðu ekki á þá sem segja
að þér sé fyrir bestu að sitja með hendur í
skauti. Persónuleg þjáning er góð fyrir
sköpunarkraftinn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Gefðu þér tíma til að leysa
málin áður en þau vaxa þér yfir höfuð.
Láttu til skarar skríða en gættu þess þó
að fara ekki of hratt yfir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú færð einhverjar meirihátt-
ar fréttir sem lyfta þér upp í hæðir.
Eins og tileinka hjarta þitt einni mann-
eskju.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ferð fremst í flokki og ert al-
veg í sjónlínunni. Plönin þín eru göldrótt –
um leið og þau komast á hreint, laða þau
að sér réttu áhrifin.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Einhver ringulreið leggst yfir um-
hverfi þitt í dag og þú átt fullt í fangi með
að hafa þitt á hreinu. Strikaðu orðin „von“
og „ætti“ út úr orðaforða þínum.
Stjörnuspá
21. desember 1945
Ölfusárbrú við Selfoss var
opnuð til umferðar, „stærsta
og mesta brú sem byggð hefur
verið hér á landi,“ að sögn Al-
þýðublaðsins. Þetta er 134
metra löng hengibrú sem
leysti af hólmi brú sem tekin
var í notkun 8. september
1891 en skemmdist haustið
1944.
21. desember 1949
Eldur kom upp í breskri Con-
stellation-farþegaflugvél sem
var að undirbúa flugtak á
Keflavíkurflugvelli. Farþeg-
arnir, sem voru 24, renndu sér
til jarðar á björgunarkaðli og
slösuðust sumir þeirra.
21. desember 1952
Kveikt var á fimmtán metra
háu jólatré á Austurvelli í
Reykjavík. Þetta var fyrsta
tréð sem Oslóarbúar gáfu
Reykvíkingum. Lýsingin á
trénu var „með afbrigðum til-
komumikil,“ sagði í Morg-
unblaðinu.
21. desember 1965
Kveikt var á jólatré sem félag
fréttaritara í Hamborg hafði
gefið Reykjavíkurhöfn.
21. desember1999
Þingsályktun um fram-
kvæmdir við Fljótsdalsvirkjun
var samþykkt á Alþingi með
39 atkvæðum gegn 22. Sjón-
varpið sagði þetta „eitt um-
deildasta mál síðari ára“. Síð-
ar var fallið frá áformum um
þessa virkjun, sem kennd var
við Eyjabakka.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Þótt áttræðisafmæli sé varla tilefni til mikils
fagnaðar, þá teljum við rétt að þakka fyrir að hafa
náð þessum áfanga með því að gleðjast með stór-
fjölskyldunni og vinum í Setrinu að Grand Hótel
Reykjavík kl. 17 til 19 í dag. Raunar er engum
formlega boðið, en við hjónin vonum að ættingjar
og vinir hafi tíma til að líta þar við,“ segir Rafn
Hafnfjörð ljósmyndari sem er áttræður í dag.
Rafn er kunnur fyrir störf sín við ljósmyndun í
yfir sex áratugi en segja má að hann hafi byrjað
ferilinn við fermingu þegar honum áskotnaðist
fyrsta myndavélin að gjöf. Síðan hefur Rafn feng-
ið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir ljósmyndir sínar sem m.a.
hafa birst á forsíðum þekktra erlendra og íslenskra tímarita.
Þrátt fyrir að vera kominn af léttasta skeiði er Rafn ekki af baki
dottinn við ljósmyndunina og hélt t.a.m. tvær ljósmyndasýningar á
árinu sem er að líða. Í ár kom einnig út ljósmyndabókin Focus on Ice-
land með yfir 600 ljósmyndum frá Íslandi eftir Rafn. Kona hans er
Kristín Björg Jóhannsdóttir og áttu þau sjö börn, en misstu eitt. Af-
komendahópurinn er því að vonum stór og telur auk barna og tengda-
barna fimmtán barnabörn og tíu barnabörn. ben@mbl.is
Rafn Hafnfjörð ljósmyndari er 80 ára
Vill þakka fyrir áfangann
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is