Morgunblaðið - 21.12.2008, Qupperneq 63
Velvakandi 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
ÞÚ GETUR
EKKI
SANNAÐ
NEITT AF
ÞESSU
ÉG VEIT... EN VINUR
MINN ER Á LEIÐINNI,
OG ÞEGAR HANN KEMUR
ER LEIKURINN BÚINN
HANN ÞARF ENGAR SANNANIR!
HANN BARA VEIT HVAÐ ÞÚ
HEFUR GERT. HANN VEIT
HVORT ÞÚ HEFUR VERIÐ
ÞÆGUR EÐA ÓÞÆGUR
JÓLASVEINNINN
ER Á LEIÐINNI
SETJA Í
KÖRFU
KONAN MÍN
ER AÐ LÍTA Í
BÚÐARGLUGGANA
ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ
NOTA SÁPU HÉRNA!
ÉG MÁ EKKI KOMA ÚT
AÐ LEIKA. ÉG Á EFTIR
AÐ VERSLA Í MATINN
BJÖRN HAFÐI
HLAKKAÐ TIL AÐ
LEGGJAST Í HEITT
BAÐIÐ EFTIR
ERFIÐAN VINNUDAG,
EN MAÐUR FÆR
EKKI ALLAF ÞAÐ
SEM MAÐUR VILL
HVERT FÓR
ÍSBJÖRNINN?
Á Jólatónleikum Tónlistarskóla Seyðisfjarðar komu allflestir nemendurnir
fram og spiluðu ýmis jólalög. Nemendur skólans hafa leikið vítt og breitt
um bæjinn bæði fyrir leikskólann og sjúkrahúsið, en á Þorláksmessu mun
Lúðrasveit skólans spila við verslanir bæjarins.
Jólatónleikar á Seyðisfirði
Sigurstjarnan
VERSLUNIN „Sig-
urstjarnan“ var til húsa í
Faxafeni, einu af „bláu
húsunum“, rétt hjá versl-
uninni „Betra bak“. Hún
er nú hætt og kvenfata-
verslun komin í staðinn.
Af sérstökum ástæðum
er nauðsyn að komast í
samband við fyrrverandi
eiganda Sigurstjörn-
unnar. Ef einhver gæti
upplýst um nafn og síma-
númer fyrrverandi eig-
anda, sem ég held að
heiti Ásdís, væri það al-
veg frábært. Best væri ef
eigandinn hefði sjálf samband. Vin-
samlega hringið í síma 822-7799 eða
skrifið á eftirfarandi netfang: sigu-
ar@gmail.com.
Kata.
Vinsældir félags-
og tryggingamálaráðherra
Í Morgunblaðinu 11. des. er birt enn
ein könnunin um vinsældir og óvin-
sældir helstu ráðamanna. Enn og
aftur trónir félags- og trygginga-
málaráðherra á toppnum, en 64% í
könnuninni segjast treysta henni
best. Það er gott og blessað og allt
það. En samkvæmt því eru 36% sem
treysta henni ekki, og hverjir ætli
það séu? Ég skal svara því, það eru
að mestu leyti öryrkjar og aðrir líf-
eyrisþegar. Hvers vegna? Jú, í mínu
tilviki tala staðreyndirnar þannig að
á næsta ári munu örorkubætur mín-
ar skerðast um 15 þúsund á mánuði
vegna áætlana lífeyrissjóðstekna
ársins 2009. Örorkubætur annarra
lífeyrisþega sem eru einungis með
lífeyrissjóðstekjur munu skerðast
mismikið eftir því hvað þeir eru með
miklar lífeyrissjóðstekjur næsta ár
samkvæmt tekjuáætlun Trygg-
ingastofnunar. Þeir öryrkjar sem
geta unnið og eru á vinnumarkaði
mega hafa hundrað þúsund í mán-
aðarlaun án þess að örorkubætur
skerðist nokkuð. Þannig á það ein-
mitt að vera gagnvart þeim ör-
yrkjum sem geta ekki unnið eða fá
ekki vinnu. Það er réttlætiskrafa að
allir þeir öryrkjar sem eru eingöngu
með lífeyrissjóðstekjur hafi hundrað
þúsund króna frítekjumark gagn-
vart tekjutengingum Trygg-
ingastofnunar, að öðrum kosti er
verið að mismuna um 7-8 þúsund ör-
yrkjum verulega og félags- og
tryggingamálaráðherra, sem er svo
vinsæl, hefur margoft sagt í fjöl-
miðlum að það ætti við fyrsta tæki-
færi að afnema samspil lífeyristekna
og örorkubóta Tryggingastofnunar.
Hvenær þetta verður gert segir hún
ekki, það verður allavega ekki fyrir
áramót. Á sama tíma og öryrkjar
horfa upp á skerðingu örorkubóta
nú strax í janúar eru allir almennir
launþegar í landinu
að hækka í launum
um 20 þúsund krón-
ur á mánuði strax í
janúar. Eftir því sem
ég best veit áttu ör-
yrkjar að fylgja
tekjuhækkunum á
almenna vinnumark-
aðnum og fá 20 þús-
und króna hækkun 1.
jan. en félagsmála-
ráðherra breytti
þeim vinnureglum 1.
febrúar 2008. Fyrir
þetta fær hún vin-
sældir 64% að-
spurðra í skoð-
anakönnunum. Ég
skora á þá sem gera þessar skoð-
anakannanir að hringja eingöngu í
okkur öryrkjana í landinu næst og
þá skulum við sjá til hvað félags- og
tryggingamálaráðherra er virkilega
vinsæl.
Lífeyrisþegi.
Söngurinn gleður og göfgar
VIRKNI í félagsstarfi er flestum
viss nauðsyn og þá ekki sízt þegar
æviárum fjölgar og aldurinn segir til
sín á svo margvíslegan máta. Sam-
veran ein, samkenndin um leið, það
að deila einhverju með öðrum er
andlega holl heilsubót og gefur fólki
mikið. Áhugamálin eru mörg og
margvísleg, það sem einum hentar
hæfir ekki öðrum svo sem raunin er
almennt í lífinu. Einmanakenndin á
ekki að eiga neitt griðland í raun, því
hið fornkveðna gildir ætíð að maður
sé manns gaman og aldrei eru þessi
sannindi augljósari og þýðing-
armeiri en þegar heilsu hrakar og
fótur fúnar.
Þarna gegna félög eldri borgara
þýðingarmiklu hlutverki og FEB í
Reykjavík lætur sitt ekki eftir
liggja. Aðeins skal vikið að einum
hinna ótalmörgu þátta í starfi félags-
ins. Sagt er að söngurinn gleðji
hjartað og göfgi hugarfarið. Ég
hygg að þetta séu allmikil sannindi
og svo mikið er víst að það ágæta
fólk sem syngur með okkur Sigurði
Jónssyni annan hvern miðvikudag
frá hausti til vors færir okkur ærna
hamingju í hjarta og við vonum
sannarlega að hið sama gildi um þá
tugi er þarna koma saman hvern
söngvökudag og eiga sér gleðistund í
tærum tónum.
Við sendum öllu þessu ágæta fólki
sem og ljómandi starfsfólki FEB
hugheilar óskir um gleðileg jól og
gnótt gæfu á komandi ári og þökk-
um gjöfular samverustundir.
Hinn 7. janúar fögnum við svo
nýju ári með svellandi glöðum söng.
Helgi Seljan.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Félagsvist mánudag kl. 13, stund í kirkj-
unni miðvikudag kl. 11, súpa í hádeginu,
brids kl. 13, bridsaðstoð fyrir dömur
föstudag kl. 13.
Hraunbær 105 | Þorláksmessuskata,
munið að panta í skötuna fyrir hádegi á
mánudag. Sigmundur Ernir hitar upp
fyrir skötuna og les upp úr bók sinni
Magneu kl. 11.30.
Korpúlfar, Grafarvogi | Ganga frá Eg-
islhöll á morgun kl. 10.
Vesturgata 7 | Starfsfólk Félagsmið-
stöðvarinnar á Vesturgötu 7 óskar gest-
um og velunnurum gleðilegra jóla og far-
sæls nýs árs.