Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 28
28 Ferðalög MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarma starfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðakaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð K lukkan er fjögur að morgni í Mexíkóborg. Miguel, annars árs verkfræðinemi við UNAM-háskólann í borginni, hefur sig til fyrir fyrsta tímann sinn. Kennslustundin hefst klukkan sjö. Framundan er rúmlega tveggja klukkustunda bíltúr frá íbúð Miguels í norðurhluta borg- arinnar að háskóla hans sunnar í borginni. Bíltúr innan um fjórar milljónir annarra bifreiða í borg, sem sannarlega aldrei sefur. Verk- fræðinámið liggur honum mikið á að klára. Af hverju veltir maður fyrir sér. Hann lítur ekki svo á að verkfræðigráðan færi honum tæki- færi í heimalandinu, heldur vill hann komast burt. Hvert? Mér til mik- illar undrunar svarar hann: „Sví- þjóð.“ Ísland heillar hann ekki. Nafnið ÍS-land líklega fráhrindandi fyrir íbúa borgar, þar sem hitastigið að degi til fer nánast aldrei niður fyrir 20°C. Meira að segja í rúmri hæð Hvannadalshnjúks. Tuttugu milljónir í dalnum Borgin sjálf liggur ofan í dal kenndum við Mexíkó, umkringd fjöllum sem slíta þennan þétt- býliskjarna frá eyðimörkinni sem handan fjallanna liggur. Þessi fjöl- mennasti þéttbýliskjarni Vest- urheimsins, með 20 milljónir íbúa, hefur fyrir löngu sprengt sín nátt- úrulegu landamæri og er nú farinn að skríða upp í hæðirnar og hólana umhverfis borgina. Skriða sem myndað hefur magnaða sýn á sam- spil manns og náttúru þar sem byggðin teygir sig upp í áður ósnortna náttúruna umhverfis borg- ina. Lega borgarinnar, niðri í daln- um, gerir hana enn viðkvæmari fyr- ir eigin mengun, þar sem fjöllin mynda skjól fyrir veðri; líkt og Esj- an dregur fjallgarðurinn mjög úr úrkomu í borginni, úrkomu sem myndi sía loftið af ryk- og reyk- mengun. Sprungið samgöngukerfi, útblástur frá verksmiðjum og brennsla á jarðgasi og kolum til raf- orkuframleiðslu hefur gert Mexíkó að einu mengaðasta svæði heims. Kaldrifjuð afleiðing efnahagssögu landsins. Allt þetta nefnir hann Miguel sem ástæður fyrir yfirvofandi brottför sinni. Þó stendur ein ástæða ofar öðrum. Á hverjum degi eyðir hann fimm klukkustundum í ferðir í skól- ann og til baka. Ástandið á götum borgarinnar er orðið svo, að yfirvöld eru farin að reisa upphleyptar hrað- brautir ofan á þeim sem fyrir eru. Þrátt fyrir það hreyfist umferðin á annatímum nánast ekki neitt og stundum er talað um samgöngukerfi borgarinnar sem heimsins stærsta bílastæði. Á miðjum breiðgötum og hraðbrautum geta strandaglópar orðið sér úti um dagblað til afþrey- ingar á leið í eða úr vinnu, kalt vatn, heitar samlokur, snakk, gosdrykki, batterí og einhvers staðar sá ég glitta í límbandsrúllu til sölu. Út með tannkrem, inn með banka Á síðustu árum hefur Mexíkóborg gengið í gegnum gríðarlegar breyt- ingar, þungaiðnaður sem eitt sinn setti drungalegan svip á alla borg- ina hefur færst til úthverfanna og nágrannaborga. Nú starfa einungis um 15% borgarbúa við stóriðju, tala sem árið 1970 stóð í 52%. Hugvís- indaiðnaður, á við samskiptatækni, fjármálastarfsemi, trygginga- starfsemi og ýmiss konar þjónustu- iðnað, hafa á undanförnum árum verið að taka borgina yfir. Fjár- málahverfið Santa Fe er mið- punktur fjármálastarfsemi landsins. Nokkurs konar Wall Street Mexíkó sem hefur á einungis nokkrum ár- um losað sig við Colgate-tann- kremsverksmiðju sem eitt sinn prýddi borgarhlutann og fengið til sín í staðinn háhýsi, höfuðstöðvar fjármálarisa, mexíkanska olíurisans og fimmta stærsta fyrirtæki heims, PeMex, auk ýmissa annarra stórfyr- irtækja, með tilheyrandi jakkafata- flóði og innrás evrópskra og norður- amerískra merkjavörufyrirtækja, sem sjá starfsmönnum Santa Fe fyrir nauðsynlegum fylgihlutum slíkra borgarhluta. Annar minnisvarði um uppsveiflu síðustu ára er miðbærinn. Svæði sem minnti mig skemmtilega á stræti New York-borgar. Innan um sögufrægar byggingar og nýreist háhýsi er þar að finna dýrar merkjavöruverslanir, Ferrari- umboð, og jú, meira að segja Star- bucks-kaffihús. Eins og nafnið gefur til kynna, Centro Historico, er þar einnig gríðarlega sögu að finna. fá lýst. Þessi svæði virðast hafa horfið algjörlega úr minni þeirra sem hafa stýrt uppgangi annarra hverfa og svæða borgarinnar, því þau hafa verið óbreytt í áratugi. Það er þó ekki þar með sagt að vandamál borgarinnar séu ein- angruð á þeim svæðum. Ekki alls fyrir löngu tilkynnti vatnsskömmt- unarráð borgarinnar að vegna lít- illar úrkomu síðustu regntímabila væru vatnsbirgðir borgarinnar hættulega litlar. Var því ákveðið að grípa til 110 daga vatnsskömmtunar og vatnsflæðið sumstaðar skorið niður um helming. Verkfræðinem- inn Miguel kunni vissulega ráð við því. Hann sýndi mér m.a. múrstein sem hann hafði sett í vatnskassann á klósetti sínu. Þetta sparar vatn í hvert skipti sem sturtað er niður. Uppvaskið er sparað, pappadiskar og glös notuð eins oft og hægt er, vatninu eftir uppvaskið skvett út á trén og þvottavélin ekki sett í gang fyrr en hún er full. Hver einasti dropi nýttur. Miguel er þó ekki eini borg- arbúinn sem virðist vera búinn að fá nóg af vatnsskorti, hækkandi glæpatíðni, rafmagnsleysi, umferð- arhnútum og koltvísýringsútblæstri. Borgir umhverfis stórborgina hafa á undanförnum árum verið áfangastaður gríðarlegs fólksflótta íbúa Mexíkóborgar sem fengið hafa sig sadda af heimkynnum sínum. Querétaro hefur til dæmis marg- faldast að stærð á einungis 15 árum. Þangað hafa þó ekki einungis íbúar flutt, heldur hafa framleiðslufyr- irtækin Ford Motors, Bombardier og þýski vörubílarisinn MAN ný- lega flutt verksmiðjur sínar þangað. Querétaro, líkt og þjóðin í heild, reiðir sig á verslun við Bandaríkin. Verslun sem hefur gert borgina að einni þeirri ríkustu í landinu. Þar var fyrsti alþjóðlegi flugvöllurinn lagður árið 2004, sem kveikti enn meiri áhuga fjárfesta á svæðinu. Grunnstoðirnar eru framleiðsla og iðnaður henni tengdur, oft í beinni eigu bandarískra stórfyrirtækja. Vegna þessara sterku tengsla hefur borgin, og landið í heild sinni, ekki farið varhluta af efnahagsástandi nágranna þeirra í norðri undanfarið ár eða svo. Minna fé úr norðri Þjóðin sjálf hefur fengið sinn skerf af efnahagskreppum. Sú síð- asta reið yfir 1994, en ástandið núna virðist ætla að reynast enn erfiðara. Helsta útflutningsafurð landsins er olía, sem flutt er yfir landamærin til Texas. Þar er hún unnin og afurð- irnar, plast, bensín, terpentína, gas o.fl., fluttar beint aftur yfir landa- mærin til notkunar í Mexíkó. Fyr- irkomulagið hefur verið harðlega gagnrýnt af almenningi og benda margir á spillingu í kringum olíu- risann PeMex og ýmsar kenningar eru um tengsl nýkjörins forseta landsins við olíurisa Bandaríkjanna. Önnur helsta erlenda tekjulind Mexíkó eru peningar, beinharðir seðlar sendir heim, suður yfir landa- mærin frá ættingjum og vanda- mönnum starfandi í Bandaríkj- unum. Flestir löglega, þó svo að milljónir séu þar ólöglega að störf- um. Peningasendingar hafa á einu ári fallið um 2,2%, sem samsvarar rúmum milljarði Bandaríkjadollara. Milljarður dollara, sem eitt sinn hýsti, fæddi og klæddi fátæka ætt- ingja vinnandi Mexíkana í norðri. Olíuverðið hríðlækkar og bandaríski bílamarkaðurinn hefur hrunið, sem hefur mikil áhrif í Mexíkó, þar sem framleiðsla fyrir bílarisana er mikil. Allt þetta hefur sett efnahag lands- ins á heljarþröm og hann stendur nú á brauðfótum. Landamæraborgirnar sem liggja að landamærum Mexíkó og Banda- ríkjanna eru mikilvægir hlekkir í viðskiptum landanna. Um landa- mærin í Júarez í Mexíkó og El Paso í Texas streyma til dæmis um tvær milljónir manna mánuð hvern. Önn- ur mikilvæg landamæraborg er La- redo, þar sem um 8.000 vörubílar streyma í gegn dag hvern, 12 millj- ónir tunna af olíu, ásamt tugþús- undum sjónvarpa, dvd-spilara, hundruðum tonna af matvælum, meðal þeirra 500 tonn af jalapéno- pipar og 8.000 lítrar af tequila. Um helmingur allra vöruskipta Bandaríkjanna við Mexíkó fer um þessa einu landamærastöð. En tequila, olía og tabasco-sósa er ekki það eina sem hér streymir í gegn. Annar blómstrandi iðnaður landsins á upptök sín fyrir sunnan syðri landamæri Mexíkó. Inn um nánast óvarin landamærin í suðri streyma ólöglegir innflytjendur. Flestir á leið þvert yfir fjalllendið og áfram yfir Rio Grande-ána yfir landamærin til Bandaríkjanna. En aukið áhyggjuefni vestrænna þjóða er kókaínið, efni sem framleidd eru í fjalllendum Bólivíu, Kólumbíu og annarra nágrannaríkja landsins í suðri. Fíkniefnin ferðast í gegnum Mexíkó á leið sinni til Bandaríkj- anna, sem er heimsins stærsti markaður efnisins. Þessi straumur fíkniefna er iðnaður sem illa hefur tekist að uppræta. Undanfarin tvö ár hafa verið skipaðir yfir 45.000 hermenn og 10.000 nýir lög- reglumenn í baráttunni gegn þess- ari þjóðfélagsvá, stríði sem eitur- lyfjakóngarnir heyja með vopnum keyptum löglega í Bandaríkjunum. En baráttunni fylgja ýmis vanda- mál, eins og ofbeldisaldan sem hefur gengið yfir landið undanfarið, en er þó hvað sýnilegust í landamæra- borgunum Ciudad Júarez, Tijuana, Nuevo Laredo og Culiacán. Borg- irnar, sem liggja á rúmlega 3.000 km löngum landamærum Mexíkó við Bandaríkin í norðri, voru eitt sinn blómstrandi áfangastaðir bandarískra ferðamanna í leit að góðri kvöldstund, með kúbuvindil og mexíkanska margarítu, en eru nú í blóðugri herkví eiturlyfjasmyglara. „Gringó“ fær sér bjór En Mexíkó hefur alltaf verið og mun alltaf vera Mexíkó. Heillandi áfangastaður, þar sem fallegustu baðstrendur heims leynast, þar sem matargerðarlistin náði nýjum hæð- um, þar sem Marilyn Monroe drakk sína fyrstu margarítu, þjóðardrykk landsmanna. Veðurfarið er him- neskt og andrúmsloftið afslappað. Þrátt fyrir svörtu blettina á landinu þrífst þar menning sem alltof fáir fá að njóta. Þeir sem gera það gleyma því aldrei. Á lokagöngutúr í gegnum Azca- potzalco-hverfi Mexíkóborgar sett- ist ég ásamt hópi heimamanna á veitingastað. Tveir barþjónar viku sér undan áður en sá þriðji af- greiddi hvíta manninn með bjór. Einn barþjónanna heyrðist segja að það ætti að kenna „gringóinum“ að tala spænsku. Þá útskýrði ég fyrir þeim, að hér væri á ferðinni Íslend- ingur. Eftir að þeir höfðu fullvissað sig um að Ísland væri ekki í Banda- ríkjunum átti ég í mesta basli við að komast út. En það hafðist að lokum. Eftir óumbeðið tequila-skot og kaldan bjór í veganesti. Í boði hússins. Heillandi menning og mengunarský Sölukona Hún er með fangið fullt af hlutum sem hún ætlar að koma í verð. Eftir Heimi Hannesson Götusala Sölumennirnir hlaupa á milli bíla og bjóða allt milli him- ins og jarðar; til dæmis matvæli, dagblöð og jafnvel hljóðfæri. ‘‘ÞJÓÐIN SJÁLF HEFURFENGIÐ SINN SKERF AFEFNAHAGSKREPPUM.SÚ SÍÐASTA REIÐ YFIR 1994, EN ÁSTANDIÐ NÚNA VIRÐIST ÆTLA AÐ REYNAST ENN ERF- IÐARA. Sögu sem nær allt aftur til tíma Az- tekanna sem eitt sinn byggðu þenn- an dal. Má þar enn finna leifar horf- ins heims. Heims sem að miklu leyti var þurrkaður út við komu spænsku trúboðanna, sem byggðu kaþólskar kirkjur ofan á eitt sinn stórglæsi- legum píramídum og indíánahofum. Situr dómkirkja landsins meðal annars yfir gömlu hofi og grafhýsi Aztekanna. Ýmsar tilraunir borg- aryfirvalda til að grafa upp horfinn menningarheim Aztek-indíánanna hafa runnið út í sandinn og liggja nú ýmsar ómetanlegar fornminjar óvarðar gegn áreiti tuttugu milljóna íbúa, mengunar og almennt slæmr- ar umgengni í borginni. Miðbærinn er að miklu leyti byggður á vatns- grunni og fenjasvæði. Eru því margar helstu byggingar miðbæj- arins, á við forsetahöllina og áð- urnefnda dómkirkju, að sökkva í fen undir borginni. Sumar byggingar um allt að tvo sentimetra á ári. Gleymdu íbúarnir Ekki hafði ég verið lengi í Mexíkó þegar mér var gerð grein fyrir hinu óskrifaða farbanni til ákveðinna svæða borgarinnar. Þrátt fyrir glæsilegan miðbæ skammt frá og bersýnilegar framfarir síðustu ára eru stórir hlutar borgarinnar, með íbúatölu margfaldri þeirrar ís- lensku, án rafmagns, rennandi vatns og annarrar grunnþjónustu. Hverfi, sem í áratugi hafa barist við fátækt og örbirgð svo hrikalega, að fá orð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.