Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 1
1 9. A P R Í L 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
104. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
KONUR Í SKUGGA ÖFGA»8 HUNDRAÐ Í HÆTTUNNI»8
Framverðir Barcelona, Eto’o, Henry og
Messi, hafa gert 85 mörk á yfirstand-
andi leiktíð og margt bendir til þess að
þeir muni rjúfa hundrað marka múrinn.
Sóknin hjá Börsungum er þung og
hefur skilað þeim 85 mörkum í 50 leikj-
um á öllum mótum. 87 í spænsku deild-
inni, 13 í bikarnum og 33 í Meistaradeild
Evrópu, að meðtöldum fjórum í und-
anrásum þess móts sl. haust.
Þremenningarnir sem höggva næst
skyttum Börsunga í Evrópu eru Ronaldi,
Rooney og Berbatov hjá Manchester
United, en þeir hafa skorað 51 mark.
Sjóðheitir
í sókninni
Konur í Afganistan og Pak-
istan eiga undir högg að
sækja og það frelsi
sem þær eygðu um
tíma virðist hafa
verið tálsýn. Nýlega
voru réttindi afganskra
kvenna skert með
lögum og íslamskur
réttur innleiddur að
hluta í Pakistan.
Talibanar eru í
sókn í báðum
löndunum.
Sókn talibana
ógnar konum
„VIÐHORFIÐ einkenndist lengi af
einangrun og vernd og fötluðu fólki
var markvisst haldið fyrir utan
samfélagið með því að loka það inni
á stofnunum. Sú var tíðin að börn
hlupu fram hjá Kópavogshælinu til
að smitast ekki. Vanþekkingin var
svo mikil,“ segir Hanna Björg
Sigurjónsdóttir, lektor í fötlunar-
fræði við Háskóla Íslands.
Fötlunarfræði er ung fræðigrein
sem hafnar einhliða læknis-
fræðilegum skilgreiningum á fötlun
en leggur þess í stað áherslu á fé-
lagslegan skilning og þátt menn-
ingar og umhverfis í að skapa og
viðhalda fötlun. Nemendur í fötl-
unarfræði hafa fjölbreyttan bak-
grunn svo sem heimspeki, tákn-
málstúlkun, bókmenntafræði,
sjúkraþjálfun, þroskaþjálfun, iðju-
þjálfun, guðfræði, hjúkrunarfræði,
félagsráðgjöf og uppeldis- og
menntunarfræði.
Betur má ef duga skal
Viðhorf til fatlaðra einkennist
ekki lengur af fáfræði og hræðslu,
en betur má ef duga skal, að sögn
Hönnu Bjargar. Hún segir fötlun
almennt skilgreinda sem frávik og
fyrir bragðið séu fatlaðir oft og tíð-
um álitnir minna virði en annað fólk
í samfélaginu. Hún bendir á að
þetta byggist ekki á mannvonsku,
heldur fáfræði. Algengt sé að komið
sé öðruvísi fram við fatlað fólk en
aðra. „Það er til dæmis alltaf jafn-
skrýtið að heyra fólk hækka róminn
þegar það ávarpar mann í hjólastól.
Í flestum tilvikum eru þetta ósjálf-
ráð viðbrögð.“
Húmor beittasta vopnið
„Fordómarnir eru ekki horfnir en
mín tilfinning er sú að þetta komi
allt með kalda vatninu,“ segir Eva
Þórdís Ebenezersdóttir þjóð-
fræðinemi. „Sjálf er ég heppin að
því leyti að mín fötlun sést ekki
mikið nema ég fari út í stuttu pilsi á
sumrin. Ég hef raunar voðalega
gaman af því að gera það og sjokk-
era fólk pínulítið,“ segir hún hlæj-
andi.
Hún segir húmorinn vera eitt
beittasta vopn fatlaðra. | 22
Betri við-
horf og
batnandi
Fordómar gegn fötl-
uðum á undanhaldi
Ég skal gefa þér ...
ef þú giftist, ef ...
Hvað hreyfir við kjósendum fyrir kosningarnar? Fólk var spurt
um sín hjartans mál, allt frá Flateyri til Fjarðabyggðar. »12
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
HASAR, GRÍN
OG HÁSPENNA
Í SUMAR
GENGISVÍSITALA
DOKTORS GUNNA
KVIKMYNDIR
ARFUR
í ull og
fötum
DANIR
velta fyrir
sér evrunni
SUNNUDAGUR