Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009
BÆJARSTJÓRI
Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi, Gunnar
Ingi Birgisson, skrif-
ar grein í Morg-
unblaðið laugardag-
inn 11. apríl. Grein
hans er uppfull af
rangfærslum. Við teljum það
skyldu okkar gagnvart bæjarbúum
að svara þessum rangfærslum, þó
svo að skrif af þessu tagi séu varla
svaraverð.
Í grein sinni segir Gunnar að
árvissir menningardagar hafi verið
samþykktir í fjárhagsáætlun fyrir
árið 2009. Það er rétt hjá Gunnari
en jafnframt var samþykkt að
fjárhagsáætlun yrði endurskoðuð
eftir þrjá mánuði. Í ljós hefur
komið að forsendur fjárhagsáætl-
unar voru í bjartsýnni kantinum
og því hefði verið eðlilegt að bíða
með ákvörðun um framkvæmd
menningardaga eftir að endur-
skoðun fjárhagsáætlunar væri lok-
ið.
Gunnar segir að það sé rangt að
hann hafi sniðgengið nefndir bæj-
arins varðandi ákvörðun um ferð
sína til Írlands. Hið rétta er að
Gunnar ákvað þetta einn og sjálf-
ur, engin nefnd hefur fjallað um
málið. Það er hægt að sannreyna
með því að fara yfir fundargerðir
nefnda bæjarins.
Gunnar segir að hann hafi gert
bæjarráði grein fyrir því að menn-
ingardagar yrðu tileinkaðir Írum
að þessu sinni. Þetta er rangt.
Gunnar hefur aldrei tekið málið
upp í bæjarráði. Það kom ekki til
umræðu í bæjarráði fyrr en und-
irrituð spurðust fyrir um ferð
bæjarstjórans til Írlands. Þetta
má sjá með því að skoða fund-
argerðir bæjarráðs.
Gunnar segir að niðurskurður í
grunnskólum sé rúmlega 1%. Það
er rangt. Niðurskurður á rekstr-
arfé grunnskólanna er 4-5%.
Gunnar segir að við viljum að
ákveðnum aðilum sé greitt úr bæj-
arsjóði til að minnka fjárhags-
legan skell þeirra af því að höfða
mál á hendur bænum og tapa því
fyrir dómstólum. Gunnar svífst
einskis í málflutningi sínum og
hikar ekki við að vega að saklausu
fólki ef hann þarf að draga athygl-
ina frá gagnrýni sem hann á erfitt
með að svara. Þegar þetta erindi
kom fyrir bæjarráð óskuðum við
eftir því að málinu yrði frestað um
viku þannig að okkur gæfist tóm
til að kynna okkur það og afla
frekari gagna. Gunnar vildi af-
greiða málið á staðnum. Málið hef-
ur ekki komið aftur til bæjarráðs
né heldur hafa verið umræður um
það. Afstaða okkar hefur aldrei
komið fram. Fullyrðing Gunnars
er því algjörlega úr lausu lofti
gripin.
Gunnar minnist á vin sinn verk-
efnisstjórann sem hann réð til
bæjarins á sínum tíma án þess að
staðan hefði verið auglýst. Hann
fullyrðir að staðan hafi verið aug-
lýst og sá hæfasti ráðinn. Hið
rétta er að áður var maðurinn bú-
inn að starfa hjá bænum í heilt ár
og ekkert auglýst fyrr en eftir að
við undirrituð höfðum gagnrýnt
þetta ráðslag harðlega.
Rangfærslur Gunnars
Inga Birgissonar
Hafsteinn Karlsson
og Guðríður Arn-
ardóttir skrifa um
bæjarstjórnarmál í
Kópavogi
» Við teljum það
skyldu okkar gagn-
vart bæjarbúum að
svara þessum rang-
færslum, þó svo að skrif
af þessu tagi séu varla
svaraverð.
Hafsteinn Karlsson
Höfundar eru bæjarfulltrúar Sam-
fylkingarinnar í Kópavogi.
Guðríður Arnardóttir
Hotel and Tourism Management Studies
Iceland/Switzerland
For further information please call
Árni Valur Sólonsson Tel: 896-2204 or Baldur Sæmundsson Tel: 594-4000
The Passport to your future!
Year 1: Joint Certificate programme
Hospitality and Culinary School of Iceland
Year 2 & 3 : Bachelor of International Business
University Centre "César Ritz" in Switzerland
One Year: Master Degree programmes
University Centre "César Ritz" in Switzerland
Next starting dates:
25th August 2009 - Iceland
13th July 2009 - Switzerland
PROMOTIONAL SEMINAR
Radisson SAS, Hotel Saga
22. April / 17:00 - 19:00
Conference room Princeton II
www.ri
tz.edu
Hospitality and Culinary
School of Iceland
Á Suðurlandi er mikið og öflugt atvinnulíf enda
er Suðurland víðfeðmt og fjölmennt. Iðnaður
á ýmsum sviðum, allt frá ýmiss konar smá-
iðnaði upp í orkuiðnað, ylrækt, garðyrkja, að
ógleymdri ferðaþjónustu og tengdum greinum.
Fallegar sveitir leggja grunn að blómlegum
landbúnaði og matvælaframleiðslu og á
Suðurlandi eru ein stærstu fyrirtæki landsins
á sviði matvælaiðnaðar. Í blaðinu verður víða
borið niður og fjallað um atvinnulífið á opinn
og skemmtilegan hátt. Fjölbreytni, framsækni,
hefðir og nýsköpun, allt þetta einkennir at-
vinnulífið á Suðurlandi.
Suðurland
tækifæranna
– atvinnulífið á Suðurlandi
Aukablað Viðskiptablaðsins 23. apríl
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn
Karlsdóttir í síma 569-1134 / 692-1010
eða sigridurh@mbl.is
– meira fyrir áskrifendur
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift
eða í síma 569 1122
Auglýsingasími 569 1134