Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009
Gengisvísitala
Doktors Gunna
Segja má að Gunnihafi náð jarð-
tengingu á sínum tíma
með Abbababbplötunni,
en Ununarútstáelsið
reyndi eðlilega nokkuð á.
Platan, sem var öðrum
þræði nett kaldhæðið
flipp, öðlaðist strax langt
framhaldsslíf og varð
þaulsætin í eyrum jafnt
barna sem fullorðinna.
Árið 2007 var settur upp söngleikur, byggður á plötunni, og varð hann með
eindæmum farsæll og hlaut Grímuna sem barnasýning ársins.
6
Þessir fyrstu opinberutónleikar Gunna fóru fram
12. apríl og báru þeir yfirskriftina
„Heilbrigð æska“. Einnig léku
stórpönksveitirnar Fræbbblarnir
og Utangarðsmenn, og hin löngu
gleymda Colossus. Nokkrum
mánuðum síðar er hann kominn
í F/8 og svo taka þær við ein af
annarri, Geðfró, Beri-Beri og
svo loks S.H. Draumur, sem átti
aldeilis eftir að setja mark sitt
á íslenska neðanjarðartónlist
næstu árin.
Árið 1988 var æði an-nasamt hjá Doktornum.
T.a.m. lék hann með Ham í
nokkra mánuði, þegar hann
var á milli S.H. draums
og Bless. Eins og nærri
má geta rúmuðust tveir
tónlistarrisar, þ.e. hann og
Sigurjón Kjartansson, ekki
lengi innan eins og sama
bandsins. Gunni lék eitt sinn á tónleikum með sveitinni, þann 6.
október 1988 á Tunglinu, og náði Björg Sveinsdóttir með-
fylgjandi ljósmynd af þessum einstaka viðburði. Þar var ABBA-
ábreiðan „Voulez-Vous“ m.a. frumflutt.
Bless var gríðarlega þétt sveit og það verður að teljast með miklumólíkindum að nánast ekkert efni sveitarinnar er til á geisladiskum.
Það er þjóðþrifaverk að bæta úr því. Sveitin tók þátt í miklu útrásarverk-
efni Smekkleysu ásamt fleiri sveitum, Ham og Risaeðlunni m.a., og
túraði m.a. um Bandaríkin. Eftir það hætti upprunaleg útgáfa sveitarinnar
eða eins og Gunni segir í
sínum napra og kerknislega
stíl: „Við komum þunnir
heim, erum ekki heims-
frægir ennþá og Ari og
Birgir nenna þessu ekki
lengur. Gums kemur loksins
út í janúar og gerir lítið enda
bandið dautt.“
321
Gunni hefur ekki dregið fjöður yfir það að Unun átti að „meika“það. Herjað var á útlönd með tónleikum og útgáfum og sveitin var
lengi dregin á asnaeyrum af misvitru bransafólki. Unun endasendist á
milli skólaballa á Íslandi,
rokkbúlla í Bretlandi,
Hróarskelduhátíðar-
innar og árið 1997 er
bókstaflega allt að gerast.
Unun spilar meira að
segja á Wembley og
kemur fótbrot Gunna
ekki að neinni sök og lék
hann tónleikana í gifsi
– og í hjólastól.
4
Gunna er lagið að finna sér og skapa ný verkefni og virðistalltaf vera með tvö, þrjú járn í eldinum á sama tíma. Blaðaskrif,
útvarpsmennska, tónlistarstúss og bara hitt og þetta. Þetta ár var
hljómsveitin Dr. Gunni
stofnsett og ári síðar kom út
platan Stóri hvellur. „Stóri
hvellur er algjör draumur
- og þessi draumur er í lit,“
sagði Skarphéðinn Guð-
mundsson í umsögn sinni
um plötuna og fór eiginlega
fram á það að Doktorinn
einhenti sér í tónlistina og
ekkert annað.
5
Gr
af
ík
:M
or
gu
nb
la
ði
ð/
El
ín
Es
th
er
‘80 ‘81 ‘82 ‘83 ‘84 ‘85 ‘86 ‘87 ‘88 ‘89 ‘90 ‘91 ‘92 ‘93 ‘94 ‘95 ‘96 ‘97 ‘98 ‘99 ‘00 ‘01 ‘02 ‘03 ‘04 ‘05 ‘06 ‘08‘07 ‘09
Frægur
Þekktur
Þekktur í
sinni kreðsu
Óþekktur 1
1980: Fimmtán ára gamall
kemur Kópavogsbúinn Gunnar
Lárus Hjálmarsson (hér eftir
Dr. Gunni eða bara Gunni) fyrst
fram á sviði, með hljómsveitinni
Dordinglar.
1982: S.H draumur keppir á fyrsta keppnis-
kvöldi Músíktilrauna en hefur ekki erindi
sem erfiði. Voru þetta fyrstu hljómleikar
sveitarinnar. Á fjögurra banda kvöldi hafnaði
sveitin í þriðja sæti en Sokkabandið og
Reflex komust áfram, en söngvari í þeirri
síðarnefndu var Heimir Már Pétursson.
Lögin fjögur voru „Engin ástæða“,
„Hunangsmaðurinn“, „Snjór“ og „Zeja“.
1983: Fyrsta útgáfa
Erðanúmúsík, hvers heimilis-
fang er „hægri rassvasi
Gunnars Hjálmarssonar“ lítur
dagsins ljós. Um er að ræða
ljósritaða ljóðabók, Tíu göt
á hausinn eða blóðbolla?
Bókin var seld í innan við 100
eintökum á meðal skólafélaga
Gunna og í hinni goðsagna-
kenndu plötubúð Gramminu.
2
1989: S.H. draumur kvaddi í enda árs ‘88 með stutt-
skífunni Bless. Eða þá að Bless heilsaði með stutt-
skífunni S.H. draumur? Nokkuð meira á eftir að kveða að
Bless en Draumnum, út á við alltént. Gunnar hefur nú
skipt úr bassa yfir í gítar en um bassaleik sér Ari Eldon.
Biggi Baldurs er á trommum eins og var með Drauminn.
Þetta árið kemur hin frábæra Melting út, sem m.a.
inniheldur hin frábæru lög „Aleinn í bíó“ og „Ástfangi“.
1986: Gunni er nú skriðinn
yfir tvítugt og nú skal tækla
bóhemalífið með glans. Hvað er
þá annað að gera en að fara til
Frakklands? Sest er að í Lyon,
og einu stykki skáldsögu (eða
nóvellu eins og Gunni vill hafa
það), 20 árum of seinn í bíó, er
hent upp. Sagan er óútgefin.
Ennfremur er meistaraverkið
Goð samið að mestu leyti
þarna úti.
1988: Þegar hér er komið sögu
er Gunni búinn að vera mjög
mikilvirkur í útgáfu- og hljóm-
sveitastarfsemi. Sveit hans,
S.H. draumur toppar í byrjun
árs þegar breiðskífa hennar Goð
kemur út hérlendis, en platan
er títtnefnd sem eitt helsta
þrekvirki íslenskrar rokksögu.
1991: Bless reynist
tiltölulega stuttlíf og þetta
árið kemur eina breið-
skífa sveitarinnar, Gums,
út. Textar eru allir á
ensku, eitthvað sem
Gunni segist harma í dag.
Hann byrjar að skrifa um
tónlist í Þjóðviljann og
á eftir að vekja allnokkra
athygli sem popppenni
næstu árin.
3
1994: Í desember þetta ár
kemur fyrsta breiðskífa
Ununar, æ, út. Í hljómsveitinni
eru m.a. Þór Eldon og Heiða.
Neðanjarðarrokkarinn fær náð
fyrir eyrum útvarpsstöðva og
fáir standast ofurgrip laga eins
„Lög unga fólsins“ og „Ást í
viðlögum“.
1993: Það var árið 1988 sem Gunni
byrjaði að koma fram einn sem Dr.
Gunni. Gítar og rödd var í umsjá Gunna
en annar Doktor, trommuheilinn Dr.
Rhythm, sá um að slá taktinn. Nokkrar
sjötommur koma út með Dr. Gunna og
nýtur hann mikillar hylli í Finnlandi, og
er gefinn út af svalasta merki þessara
brúnaþungu frænda okkar, Bad Vugum.
1997: Ætlar Unun að meika það
eða ekki? Í ergelsi og bið eftir
einhverju sem aldrei gerist setur
Gunni saman barnaplötuna
Abbabbab ásamt vinum og
félögum. Platan slær í gegn, og
þá sérstaklega „Prumpulagið“.
1996: Unun reynir fyrir sér á
erlendri grundu af miklum þrótti
en árangurinn er endasleppur.
Sveitin heldur tónleika í
Bretlandi og á meginlandi
Evrópu, æ er gefinn út á
alþjóðamarkaði og svei mér þá,
ef það glittir bara ekki smávegis
í heimsfrægðina.
4
2001: Voldug bók
eftir Gunna, Eru ekki
allir í stuði? Rokk á
Íslandi á síðustu öld,
kemur út fyrir jólin á
vegum Forlagsins þar
sem rokksaga Íslands
er tekin fyrir í máli og
myndum.
2002: Spurningaþátturinn
Popppunktur fer í loftið á Skjá
einum og öðlast óðar miklar
vinsældir. Felix Bergsson sér
um að spyrja spjörum úr undir
grandvöru eftirliti Doktorsins
sem semur spurningar og sér
um dómgæslu. Þátturinn fer
aftur í loftið í sumar á RÚV.
5
2007: Gunni hefur haldið úti
öflugu bloggi á heimasíðu sinni,
allt síðan 2001, og þetta árið fer
hann að skrifa um neytendamál
á undirsíðu sem kallast
einfaldlega OKUR! Rokkarinn
verður fljótlega einn af helstu
neytendafrömuðum landsins og
er verðlaunaður sem slíkur af
viðskiptaráðuneytinu.
6
2009: Ný plata, Dr. Gunni
inniheldur..., kemur út. Gefin
út sem forláta diskur í 300
eintökum þar sem með fylgir
72 blaðsíðna bæklingur eða
þá sem niðurhal. Pakkningar
og umsýsla minnir sumpart á
forna tíma og að sjálfsögðu er
útgefandinn Erðanúmúsík.
Ferill fjöllistamannsins Dr. Gunna er orðinn býsna fjölskrúðugur. Hann er að mörgu leyti tákngerv-
ingur einyrkjans sem gerir sitt með sínu lagi, hvað sem tautar og raular. Auk þess að hafa verið einn
af helstu og áhrifamestu neðanjarðarrokkurum landsins hefur hann sinnt blaðamennsku, ritstörf-
um, söngleikjagerð og sjónvarpsmennsku svo fátt eitt sé talið. Á síðustu árum hefur hann og komið
fram sem skarpur samfélagsrýnir og er öflugur baráttumaður fyrir réttmætum kjörum til handa al-
menningi í gegnum okursíðu sína.