Morgunblaðið - 06.09.2009, Side 8
8 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur
rsv@mbl.is
R
éttarhöld standa nú yfir
í Suður-Afríku í máli
þriggja manna, sem
ákærðir eru fyrir að
hafa nauðgað og myrt
Eudy Simelane. Simelane var þekkt
knattspyrnukona, fyrirliði landsliðs-
ins um tíma og síðar knatt-
spyrnudómari. Hún var einnig
þekkt fyrir að berjast fyrir rétt-
indum samkynhneigðra.
Morðingjar hennar eru grunaðir
um að hafa valið hana sem fórn-
arlamb af þeirri einu ástæðu að hún
var lesbísk. Fjölmörg dæmi eru um
slík brot gegn lesbíum í Suður-
Afríku, enda virðist sú skoðun út-
breidd að unnt sé að „lækna“ lesbíur
af „ónáttúru“ sinni með slíku of-
beldi. Í umfjöllun bresku fréttastof-
unnar BBC fyrir skömmu um mál
Eudy kemur fram, að hugtakið
„leiðréttingarnauðgun“ sé notað til
að skýra hugarfar ofbeldismanna,
sem nauðgi lesbíum og telji sig nán-
ast í fullum rétti.
Lík Eudy Simelane fannst 28.
apríl í fyrra við skurð úti á akri.
Henni hafði verið nauðgað og hún
stungin með hnífi 25 sinnum. Hún
var 31 árs.
Tveimur dögum síðar voru fimm
karlmenn handteknir, grunaðir um
ódæðið.
Simelane var ekki fyrsta lesbían í
Suður-Afríku sem mætti þessum ör-
lögum. Þrjú þekkt dæmi höfðu kom-
ið til kasta lögreglunnar síðustu tvö
árin fyrir dauða hennar. Í engu
þeirra tilvika fundust morðingj-
arnir. Mannréttindasamtök segja
lögregluna vera gjarna á að „týna“
mikilvægum gögnum í slíkum mál-
um. Mál, sem varða brot gegn sam-
kynhneigðum, koma því sjaldan fyr-
ir dómara.
Þessi staða er í hróplegu ósam-
ræmi við þá staðreynd, að í stjórnar-
skrá Suður-Afríku er lagt bann við
allri mismunum á grundvelli kyn-
hneigðar og hjónabönd samkyn-
hneigðra eru leyfð.
Þegar frá leið morðinu á Eudy
var niðurstaða rannsóknar sú, að
fjórir menn á aldrinum 18-24 ára
voru ákærðir. Einn þeirra kaus að
bera vitni gegn hinum. Réttarhöldin
yfir honum vöktu mikla athygli.
Fjöldi manns hafðist við utan dóm-
hússins þá daga sem réttað var.
Maðurinn, Thato Petrus Mpithi,
játaði á sig morð og rán, en árásar-
mennirnir tóku farsíma Eudy og
strigaskó. Hann neitaði hins vegar
að hafa nauðgað Eudy, en lýsti sig
vitorðsmann í því broti, þar sem
hann hefði haldið henni niðri. Hinir
þrír, Khumbulane Magagula, Jo-
hannes Mahlangu og Themba
Mvubu, kváðust saklausir af öllum
ákæruatriðum.
Mpithi var dæmdur í 31 árs fang-
elsi fyrir brot sín. Dómarinn tók sér-
staklega fram, að ekki yrði séð að
kynhneigð Eudy Simelane hefði ráð-
ið nokkru um að á hana var ráðist.
Aðstandendur Eudy og baráttu-
menn fyrir mannréttindum voru
ósáttir við athugasemd dómarans og
vísuðu til þess að lesbíur ættu slíkar
árásir mjög á hættu þar í landi.
Þetta fólk hefur sjálft sætt hótunum
fyrir að fylgja máli Eudy eftir.
Dró framburð til baka
Þegar þremenningarnir komu
fyrir rétt bundu aðstandendur Eudy
vonir við að ofbeldi gegn lesbíum
yrði dregið fram í dagsljósið. Á
fyrsta degi réttarhaldanna, 29. júlí
sl., brá hins vegar svo við að vitnið,
hinn dæmdi Mpithi, lýsti því yfir að
hann hefði verið einn að verki og
þremenningarnir því allir saklausir.
Fyrri yfirlýsingar hans hefðu verið
lygi, en nú hefði hann fundið Guð og
vildi segja sannleikann.
Fáir leggja trúnað á þennan nýja
sannleika Mpithis. Ýmis sönn-
unargögn benda til sektar þremenn-
inganna, til dæmis fannst blóð úr
Eudy á buxum Mvubus þegar hann
var handtekinn. Réttarhöldin voru í
uppnámi og þeim var frestað fram í
lok ágúst.
Á fáum stöðum í heiminum eru
nauðganir algengari en í Suður-
Afríku og á meðal þeirra ríkja, sem
taka þátt í starfi alþjóðalöggæsl-
unnar Interpol, eru engin dæmi um
verra ástand. Samkvæmt tölum Int-
erpol kæra um 150 konur í Suður-
Afríku nauðgun á hverjum degi. Tal-
ið er að fjöldinn sé í raun miklu
meiri, þar sem margar kjósi að kæra
ekki. Ástæðurnar fyrir því eru
margvíslegar, rétt eins og í öðrum
löndum, en ein veigamikil er sú, að
konurnar vita að rannsóknir nauðg-
unarmála eru fjarri því að vera for-
gangsatriði hjá lögreglu. Komi mál-
in til kasta dómstóla á annað borð er
sakfelling ólíkleg, eða dómar vægir.
Stundum þarf að dópa hana
Hópnauðganir eru algengar, svo
algengar að til er hugtak yfir þann
sem finnur fórnarlambið, „marha-
simani“. Ungur maður útskýrði
hlutverkið þannig, í samtali við
BBC: „Marhasimani er sá sem fer á
klúbb, kaupir nokkra drykki fyrir
konu og fer svo með henni og hann
og vinir hans eiga mök við hana.“
Vinirnir fela sig gjarnan í sama
herbergi og marhasimani og stúlk-
an. Þegar sá fyrsti er búinn að hafa
mök við hana taka þeir við. „Það er
dimmt í herberginu og stelpan veit
ekki einu sinni að þetta er annar
náungi,“ sagði viðmælandi BBC.
Þegar fréttamaður reyndi að leiða
honum og félaga hans fyrir sjónir að
hegðun þeirra jafngilti hópnauðgun,
neituðu þeir harðlega. „Þetta snýst
ekkert um stelpuna. Við kaupum
drykki fyrir hana. Og þeir eru dýrir.
Þetta er ekki hópnauðgun. Ókei,
stundum þurfum við að dópa hana
og allt, en það gerist ekki alltaf.“
„Leiðréttingar-nauðganir“
Lesbíur í Suður-Afríku hafa ástæðu til að óttast ofbeldi. Nauðganir eru óvíða algengari og í
mörgum tilfellum er ráðist á lesbíur með því hugarfari að „lækna“ þær af „ónáttúrunni“.
Mannréttindi Fjöldi manns fylgist með
málaferlunum yfir meintum morðingjum
Eudy Simelane. Mál hennar hefur kveikt
miklar umræður um fjölda nauðgana í Suð-
ur-Afríku og endurteknar árásir á lesbíur.
Í HNOTSKURN
»Einn af hverjum fjórumkarlmönnum í Suður-
Afríku viðurkennir að hafa ein-
hvern tímann nauðgað konu.
»Um 150 konum er nauðgaðá degi hverjum.
»Árið 2006 voru rúmlega 54þúsund nauðganir kærðar
til lögreglu.
»Lesbíur eru í sérstakrihættu, þar sem sú trú virð-
ist útbreidd að hægt sé að „leið-
rétta“ kynhneigð þeirra með
nauðgun.
Suðurafrísku samtökin Triangle, eða
Þríhyrningur, berjast fyrir réttindum
samkynhneigðra. Í samtali við BBC
sagði talskona samtakanna, Sharon
Fox, að 31 lesbískri konu hefði verið
nauðgað og þær myrtar þar í landi
frá árinu 1998. „Leiðréttingar-
nauðganir“ séu fjölmargar, þar sem
ætlun árásarmannanna sé að breyta
kynhneigð fórnarlambanna. „Við-
horfið er, að það þurfi aðeins einn
góðan karl til að lækna konur af
samkynhneigð,“ sagði Sharon í
samtali við BBC.
Sorg Sambýliskona Eudy, Sibongile
Vilakazi og ættingjar gráta örlög
hennar. Innfellda myndin er af
Eudy Simelane.
Í hverri viku ber-
ast baráttu-
samtökunum Tri-
angle fregnir af
um 10
„leiðréttingar-
nauðgunum“. Þrátt fyrir þann fjölda
segir Sharon Fox að aðeins tvö „leið-
réttingarmál“ hafi komið til kasta
dómstóla hingað til. Annað þeirra
leiddi til sakfellingar. Hún kveðst
hins vegar vongóð um að athyglin,
sem beinst hefur að máli Eudy Simel-
ane, sem myrt var nærri Jóhann-
esarborg, sem og öðru máli sem rek-
ið er í Cape Town, muni breyta
viðhorfi fólks. „Ef sakfellt verður í
þessum málum mun það verða mikið
framfaraskref fyrir mannréttindi,
kvenréttindi og réttindi samkyn-
hneigðra.“
Hugsanlega er hugarfarið að breyt-
ast. Mál Eudy Simelane hefur vakið
athygli langt fyrir utan landsteinana.
Ákveðið hefur verið að Heimsmeist-
arakeppnin í knattspyrnu verði hald-
in í Suður-Afríku á næsta ári. Margir
heimamenn óttast, að skuggi kunni
að falla á mótið, ef sekt sannast á
þremenningana og dómstólar verða
uppvísir að því að taka vægt á þeim.
Stiklur
Hjá FORTIS starfar samhentur hópur lögfræðinga með víðtæka reynslu af lögmannsstörfum.
Við leitumst við að veita persónulega og alhliða þjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar og
sérhæfum okkur í skaðabótamálum vegna umferðar- og vinnuslysa.
Höfum áratuga reynslu af uppgjöri slysabóta.
Átt þú rétt á
bótum eftir slys?
Gylfi Thorlacius hrl.
Svala Thorlacius hrl.
S. Sif Thorlacius hdl.
Kristján B. Thorlacius hdl.
Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl.
www.fortis.is
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K
Laugavegi 7 • 101 Reykjavík • Sími: 520 5800 • fortis@fortis.is
Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum þér að kostnaðarlausu!