Morgunblaðið - 06.09.2009, Page 16

Morgunblaðið - 06.09.2009, Page 16
16 Menntun MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 BOOT CAMP G.I. JANE HATHA YOGA FIT PILATES MÖMMU FIT PILATES NÝTT! NÝTT! BARNA YOGA Vertu í topp formi með Stúdíó Fitt í allan vetur! Seljavegi 2, 101 R Sími 578 3488 studiofitt@studiofitt.is www.studiofitt.is Skráning er hafin í síma 578 3488 eða ástudiofitt@studiofitt.is 386 Fjölgun nýnema í Háskóla Íslands milli ára Ís le ns ku -o g m en ni ng ar de ild 46,8% La ga de ild S ál fr æ ði de ild Fé la gs rá ðg ja fa de ild S ag nf ræ ði -o g he im sp ek id ei ld Lí f- og um hv er fis ví si nd ad ei ld H jú kr un ar fr æ ði de ild Ið na ða rv er kf ræ ði -, vé la ve rk fr æ ði -o g tö lv un ar fr æ ði de ild Ja rð ví si nd ad ei ld S tj ór nm ál af ræ ði de ild R au nv ís in da de ild 16% 46,1% 25% 149,4% 104% 29,4% 85,5% 35,6% 28,1% 13% 263 293 204 192 89 99 129 76 101 96 54 340 298 240 222 202 167 141 137 61 123 Heimild: Háskóli Íslands Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Umsóknum um nám við Há-skóla Íslands á haustmiss-eri fjölgaði um 20% miðaðvið sama tíma í fyrra. Þar fyrir utan fjölgaði nemendum við skólann um 10% þegar hann svaraði ákalli stjórnvalda og tók um fjórtán hundruð nýja nemendur inn um síð- ustu áramót. Fram að því hafði sá fjöldi aldrei farið yfir þrjú hundruð. Eftir þessa fjölgun og samein- inguna við Kennaraháskóla Íslands á liðnu ári leggja um fjórtán þúsund nemendur stund á nám við skólann. 73% stúdenta eru í grunnnámi, 24% í meistaranámi og 3% í doktorsnámi. Samkvæmt lögum hefur Háskóli Íslands ekki heimild til að vísa um- sækjendum frá, hafi þeir á annað borð réttindi til að stunda nám á há- skólastigi, nema í fögum þar sem fjöldatakmarkanir eru, svo sem læknisfræði og sjúkraþjálfun, en þar eru þreytt inntökupróf. Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, veltir fyrir sér í tilefni af þessari miklu fjölgun hvort endurskoða þurfi lög um skólann og takmarka fjölda stúdenta, ekki síst í ljósi þess að stefnt er að því að skera niður um 8,5% á háskólastiginu á næsta ári. „Fjölgun nemenda og niðurskurður útgjalda fara vitaskuld ekki vel sam- an. Stækkunin er það mikil að þetta setur skólann í mikinn vanda. Við gerum okkur hins vegar vonir um að tekið verði tillit til þessarar miklu fjölgunar í niðurskurðinum, þegar endanlega verður frá honum gengið, vegna þess hve mikið er í húfi.“ Búið að hagræða nú þegar Kristín segir að gripið verði til víð- tækra aðgerða á hverju fræðasviði og í hverri deild til að mæta þessari miklu fjölgun nemenda en hún legg- ur áherslu á, að brýnt sé að standa vörð um gæði kennslunnar. „Við er- um að velta fyrir okkur hvernig við getum hagrætt svo það komi sem allra minnst niður á kjarnastarfsemi skólans. Það má hins vegar ekki gleyma því að við erum þegar búin að hagræða heilmikið á þessu ári. Það hefur verið skorið niður um einn milljarð króna. Það eru engir smá- aurar. Starfsfólk skólans hefur þegar tekið á sig auknar byrðar,“ segir Kristín. Niðurskurðurinn hefur enn sem komið er ekki bitnað á grunnlaunum en Kristín segir óhjákvæmilegt að kjör starfsfólks rýrni í þeim mikla niðurskurði sem stendur yfir jafn- framt því sem álagið í starfi aukist. „Vonandi tekst okkur að ganga í gegnum tímabundna erfiðleika í sem mestri sátt, en þetta mun óhjá- kvæmilega snerta alla starfsmenn skólans.“ Svo sem gefur að skilja verða mörg námskeið í HÍ fjölmennari en áður á komandi vetri og eflaust eru einhverjir kennarar farnir að kvíða því að fá yfir sig mörg hundruð rit- gerðir um sama efnið. Kristín segir ljóst að kennarar verði fyrir auknu álagi því ekki verði hægt að fjölga í hópi fastráðinna kennara á næstunni. Hins vegar muni lausráðnum kenn- urum fjölga eitthvað til að koma til móts við fjölgun nemenda. Stúdentum við Háskóla Íslands hefur fjölgað verulega eftir að efnahags- kreppan skall á og háskólarnir í Reykjavík og á Bifröst hafa líka bætt við sig nemendum. Enda þótt uppbyggilegra sé að sitja á skólabekk en atvinnu- laus heima hefur þessi fjölgun ákveðinn vanda í för með sér fyrir skólana, ekki síst í ljósi þess að niðurskurður blasir við í útgjöldum á háskólasviðinu. ‘‘VONANDI TEKST OKKURAÐ GANGA Í GEGNUMTÍMABUNDNA ERFIÐ-LEIKA Í SEM MESTRI SÁTT, EN ÞETTA MUN ÓHJÁKVÆMILEGA SNERTA ALLA STARFS- MENN SKÓLANS. Ágúst EinarssonKristín Ingólfsdóttir Mun fjöldinn há skólunum? Styrkist við stækkunina Enda þótt blikur séu á lofti er Kristín hvergi bangin – hlutverk Há- skóla Íslands hafi sjaldan verið mik- ilvægara. „Auðvitað þarf að leysa vandamálin sem hljótast af fjölgun stúdenta en á móti kemur að skólinn styrkist við það að stækka. Við tök- um hlutverk okkar mjög alvarlega í kreppunni, Háskóli Íslands verður að geta tekið vel á móti fólki við þessar erfiðu aðstæður í þjóðfélaginu og lagt af mörkum við að tryggja að hér verði þekkingarknúið atvinnulíf í framtíðinni og eftirsóknarvert fyrir velmenntað fólk að starfa. Það starf sem unnið verður hér á komandi ár- um skiptir gífurlega miklu máli fyrir framtíðina. Það hefur sennilega aldr- ei verið brýnna að skapa tækifæri fyrir vel menntað fólk á Íslandi.“ Rektor nefnir fleiri jákvæða þætti, svo sem fjölgun erlendra stúdenta. Þeir sæki m.a. í auknum mæli í dokt- orsnám. „Það er ekki að sjá að nei- kvætt umtal um Ísland hafi áhrif á erlenda nemendur. Þeim heldur áfram að fjölga.“ Kristín heimsótti einmitt Fræða- setur HÍ á Húsavík í vikunni en það hefur átt í gagnvirku samstarfi við Háskólann í St. Andrews í Skotlandi um meistaranám í sjávarspen- dýrafræðum. „Alþjóðlegt samstarf er gríðarlega mikilvægt fyrir vís- indamenn okkar og nemendur. Vís- indastarfið á Húsavík og sameig- inlegt meistaranámskeið með St. Andrews er gott dæmi um gjöfult samstarf þar sem báðir aðilar njóta góðs af og ná auknum árangri með því að sameina sérfræðiþekkingu og krafta.“ Hvergi slegið af kröfum Það er ekki bara Háskóli Íslands sem fundið hefur fyrir auknum áhuga fólks á námi á undanförnum mánuðum, nemendum hefur líka fjölgað í Háskólanum á Bifröst. Heldur fleiri nemendur munu leggja stund á nám við Háskólann á Bifröst í vetur en á liðnu skólaári, eða ríflega þrettán hundruð manns. Ágúst Einarsson, rektor skólans, segir nemendum raunar hafa fjölgað strax eftir hrun bankakerfisins í fyrra og aftur um áramótin. „Við höf- um líka verið að taka við nemendum utan venjulegs inntökutíma, auk þess sem boðið var upp á öflugt sum-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.