Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.09.2009, Qupperneq 26
26 Kvikmyndir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is Þ að er ástæðulaust að tíunda heims- kreppuna og hvernig hún hefur látið kné fylgja kviði á flestum sviðum. Áhrif hennar eru þó misjafnlega áberandi, við finnum mest fyrir þeim þegar höndla þarf lífsnauðsynjar, aftur á móti gætir hennar minna á hvíta tjaldinu. Ástæðan að miklu leyti sú að þær myndir sem sýndar hafa verið á árinu voru komnar í framleiðslu áður en takið hertist á pyngjunni. Þess er þó ekki langt að bíða að afleiðingar fjármagnsskortsins fara að sýna sig á tjaldinu, með haustinu og í vetur verður frumsýndur mik- ill fjöldi íslenskra kvikmynda sem eru und- antekningarlítið ódýrar í framleiðslu. „Litlar“ gamanmyndir mjög áberandi og verður fjallað um þær síðar. Sömu sögu er að segja frá þeim löndum sem íslensku bíóin skipta mestmegnis við, þ.e. Bandaríkjunum og Bretlandi. Nokkrir, valinkunnir leikstjórar hafa snúið sér að „ódýr- ari“ viðfangsefnum en þeim sem þeir eru fræg- astir fyrir. Þeir hafa rekið sig á að peningaaustur tryggir ekki sjálfkrafa meiri gæði, en takmarkað fjármagn getur hinsvegar þýtt betri myndir og nýjar áskoranir. Þessar tvær meginástæður vega þungt að baki því að þessir ágætu menn hafa lækkað seglin og ef vel tekst til sigla örugg- lega fleiri af stórleikstjórum samtímans í kjöl- farið. Nokkur þessara verka eru nýkomin eða væntanleg í íslensk kvikmyndahús á næstu vik- um. Ang Lee, Sam Mendes og allir hinir Eitt leikstjóranafnanna er Bretinn Sam Men- des, sem á m.a. að baki Road to Perdition (́02) og Jarhead (́05) , sem báðar kostuðu um 80 millj. dala á sínum tíma. Hann líkir gerð „lítilla“ mynda við það að aka smábíl í umferðinni, þeir beri mann e.t.v. ekki jafn hratt og tryllitækin en ökuferðin sé skemmtilegri þar sem þeir eru meðfærilegri og liprari í snúningum. Auk þess nýtur hann tækifærisins til að vinna hratt og skipulega. Mendes er um þessar mundir að leggja síðustu hönd á Away We Go, sérstaka en gamansama vegamynd um flæking ungra hjóna (John Krasinbski og Maya Rudolph), í leit að hentugum stað til að setjast að, eignast barn og og heimili. Mendes er ekki einn um að njóta frelsisins sem er því samfara að vinna fyrir lítið fjármagn á hraðvirkan hátt. Sumarið 0́9, státar að vísu af rándýrum metaðsóknarmyndum á borð við Engla og djöfla, Transformers og Star Trek, en jafnframt af hræódýrum verkum leikstjóra í efsta gæðaflokki, sem hafa snúið baki við dýru stórmyndunum sem gerðu þá fræga – og reynd- ust þeim stundum fjötur um fót. Fyrir suma þeirra eru myndirnar farseðill á vit sköp- unarfrelsis sem er fylgifiskur sparnaðar og minni væntinga auk þess sem þær eru sann- kölluð blessun til handa uppbelgdum og lang- stressuðum iðnaði í fjárþröng. Aðrir einfaldlega þrá að breyta til. Nokkrir fylgja sögulegu fordæmi, líkt og Francis Ford Coppola, sem snýr aftur til smá- mynda á borð við Rumbling Fish og The Outsid- ers, eftir vandræðin sem fylgdu One From the Heart og Apocalypse Now. Í sumar var frum- sýnt spennudramað Tetro, við góðar móttökur gagnrýnenda. Myndin fjallar um bræðraleit (sá yngri leitar þess eldri, rithöfundar sem hvarf í Argentínu.) Tetro kostaði ámóta mikið og fimm mínútur af The Godfather III. Steven Soderbergh hvíldi stórvirkin með gerð Bubbles (́05), sem kostaði smáaura og státar ekki af neinum þekktum leikara, en hann var að frumsýna The Girlfriend Experience, með klám- myndastjörnunni Söshu Carey, og virkar eins og svaladrykkur eftir ofvöxtinn sem hljóp í Che (248 mín., og kolféll), og Ocean-þrennuna með sínu endalausa, illþolandi stjörnuflóði. Eftir þrennuna um Spider-Man – Kónguló- armanninn (og þá fjórðu á teikniborðinu), sneri Sam Raimi sér skyndilega að upphafinu í hroll- vekjugeiranum. Afraksturinn var Drag Me To Hell, besta hrollvekja sem sést hefur um árabil og var frumsýnd í sumar. Ódýr, vel gerð og skil- aði vænni fúlgu í kassann. Og Ang Lee snýr sér í fyrsta skipti í áratug frá dýrum stórvirkjum með hinni litlu og lau- fléttu Taking Woodstock, þar sem hippa- og sýruveislan mikla frá 6́9, er skoðuð í fersku og gamansömu ljósi. Hreinsunareldur Soderbergh kallar þessi kvikmyndalegu frá- vik, „hreinsunarelds-myndir“, þær virki líkt og afvötnun. Það sé auðvelt að venja sig á gerð stór- mynda þar sem leikstjórarnir eiga þess að vænta að allt sé lagt upp í hendurnar á þeim. Þetta er þægilegt ferli og engin ástæða til að hafa einhver ósköp fyrir hlutunum. Hann telur jafn nauðsyn- legt að sleppa frá þessum aðstæðum og valdi Mendes sér nýja áhöfn; kvikmyndatökustjóra, klippara og framleiðsluhönnuð, er hann hóf gerð 17 millj. dala gamandramans Away We Go. Auk minnkandi fjármagns er Hollywood að skera niður risavaxinn auglýsinga- og kynning- arkostnað og gera framleiðsluna vistvænni. Í því skynir eru sýnishornin og auglýsingaherferðir látlausari og áhafnirnar aka um á Prius- blendingum. Afraksturinn aukin sparnaður og lítil yfirbygging. Mendes finnst hann ekki leng- ur keisari í veldi sínu og hefur minni sekt- arkennd þar sem hann er að spara mannskap og fjármagn. Away We Go þýðir vel þeginn flótta hjá Men- des á vit rómantískra gamanmynda, eftir ára- langa viðveru í hjónabandsmartröðum á borð við Revolutionary Road. Hann er alsæll með að handritshöfundarnir, Dave Eggers og Vendela Vida, eru hamingjusöm og harðgift hjón. Þau elska hvort annað – líkt og hjónin í myndinni. Líkt og persónurnar í Revolutionary Road, þrá þau að flýja á brott og nú tekst þeim það. Hann segir að unga parið í Away We Go, túlki mun betur hans eigið lífsviðhorf en Wheeler-hjónin í Revolutionary Road. Hann segist ekki hafa dá- læti á skáldinu Richard Yates, en hráslagaleg heimssýn hans þótti setja mark sitt á myndina. Ang Lee segir að Taking Woodstock sé svar hans við að hafa legið yfir gerð sex harmleikja í röð, síðustu 13 árin. Lust, Caution (́07), síðasta mynd hans á undan, fjallar um meðlim í kín- versku andspyrnuhreyfingunni sem fær það verkefni að tæla æðsta mann japönsku leyni- þjónustunnar á meðan á hernámi þeirra stóð í síðari heimsstyrjöldinni. Hinn taívansk-ættaði Lee hefur sagt að myndin hafi verið síðasta hálmstráið, ekki aðeins kynlífsþátturinn, heldur hefði yfirþyrmandi atburðarásin og manndrápin verið honum nánast um megn. Myndin storkaði föðurlandsást kínversks samfélags og leikstjór- inn varð var við mikinn, utanaðkomandi þrýst- ing, flest hefði gengið of langt og hann staðið uppi í lokin sem hálfgerð taugahrúga. Kínverska kvikmyndaeftirlitið krafðist þess að sú útgáfa Lust, Caution, sem sýnd var á meg- inlandi Kína, yrði stytt um heilar sjö mínútur og aðalleikkonunni, Tang Wei, var bannað að koma fram til að kynna myndina í kínverskum fjöl- miðlum. Deilurnar lögðust þungt á Lee, hann þurfti á andlegri og líkamlegri afslöppun að halda og gera eitthvað ljúft og fallegt. Í Taking Woodstock lyftir hippabyltingin frá ofanverðum 7. áratugnum og kætir hugi áhorf- enda. Hér er ekki um tónlistarmynd að ræða og inniheldur ekki einn filmubút frá hinni einstöku, rösklega fertugu tómlistaruppákomu. Þess í stað segir Lee sögu af Elliot Tiber, skylduræknum, samkynhneigðum syni sem reynir að bjarga fjárhag foreldra sinna með því að halda þriggja daga tónlistarveislu á landi þeirra í Catskills. Þar á friður, ást og samheldni að ráða ríkjum undir stanslausu, dúndrandi rokki. Með kostnað upp á 30 milljón dala, telst verð- miði Taking Woodstock mjög svo penn í augum kvikmyndaveranna, þó helmingi dýrari en Brokeback Mountain, og liggur hækkunin eink- um í geysilegum fjölda aukaleikara (extras), sem töldu í kringum 500 manns, í fullum skrúða hippaáranna. Þó var samsetning myndarinnar létt og leikandi, öndvert við hin vel kunnu, háal- varlegu drömu Lees. „Að öllu jöfnu áttu þess kost í dramatískum verkum að stilla upp per- sónum og átökum, að þessu sinni var hann ekki til staðar,“ hefur leikstjórinn látið hafa eftir sér. „Woodstock-tónleikarnir lögðu undir sig þorpið og samfélaginu tókst að þrauka þá áfallalítið af. Það er töfrum líkast, tilviljun sem gerir kvikmyndagerðarmönnunum erfiðara fyrir því slíkt er ekki venjulegt ástand heldur mjög óhefð- bundið. Þetta þýddi áskorun sem ég tók feig- insamlega.“ Engar stjörnur Tetro, Taking Woodstock, Away We Go, The Girlfriend Experience og Drag Me to Hell, státa ekki af rótgrónum stjörnum af þeirri stærðar- gráðu sem jafnan lenda á stuttum óskalista kvik- myndaveranna. Í Taking Woodstock, leitaði Lee til uppistandarans Demetris Martin til að fara með aðalhlutverkið og bað aðra leikara að temja sér náttúrulegan leikstíl hans. Eftir þrjár, risa- vaxnar, stjörnum prýddar metaðsóknarmyndir, leitaði Raimi einfaldleikans við gerð Drag Me to Hell, sem kostaði „litlar“ 30 milljónir dala, með Alison Lohman (Matchstick Men), í aðal- hlutverki, nafni sem almenningur kveikir ekki samstundis á. Raimi skildist að hann hefði ekk- ert að gera við öll þau nöfn, brellur og leikföng sem prýtt hafa myndir hans að undanförnu, það eina sem hann þarfnaðist var góð leikkona. Í The Girlfriend Experience, sem lýsir dag- legu lífi háklassa-gleðikonu, samdi Soderbergh sögu í kringum klámdrottninguna Grey. Hann telur að þegar kemur að því að nýta krafta ómenntaðra leikara þá þurfi að skapa þeim al- gjöran vinnufrið til að fá það sem þeir luma á undir niðri. Það sé einkar skemmtilegt því leik- stjórinn verði að reyna á hvað þeir geta gefið af sér án þess að þvinga þá. Mendes segist nota ólíka leikara fyrir ólík hlutverk. John og Maya þurftu á trausti að halda hjá leikstjóranum, en það sama hefði verið uppi á teningnum hjá Kate Winslet og Leonardo Di- Caprio í Revolutionary Road. Away We Go er afslappaðri, þarfnast spuna og tjáningarfrelsis. „Ef þú vinnur sífellt með smásjá þá glatarðu yfirsýninni,“ segir leikstjór- inn. „Myndin snýst um yfirsýnina og leyfir per- sónunum að hrærast í landslaginu.“ Viðbrögðin við myndunum hafa verið blönduð. Drag Me to Hell, hlaut mjög góða dóma en þokkalega aðsókn; Taking Woodstock virtist fara fyrir brjóstið á gestum Cannes kvik- myndahátíðarinnar í vor, sökum þess að ekki var um tónlistarmynd að ræða. Það má vera að þess- ar smámyndir hefðu hlotið betri móttökur væru þær gerðar af minni spámönnum. Og þó. Away We Go, hefur þegar hlotið afbragðs dóma – frá Mendes, sem segist hafa unun af því að horfa á myndina sem endurspegli ánægjulegt samstarf hans og aðalleikaranna. „Ég er tvímælalaust upprifinn,“ segir Mendes, sem snýr sér næst að gerð myndar um ofurhetjuna Preacher og Lee er á svipuðum nótum en nýja myndin hans, The Hands of Chang-Chi, er byggð á teiknimynda- fígúru frá Marvel hasarblaðaútgáfunni. Soder- bergh heldur sig aftur á móti við smámyndirnar, The Informant, 20 milljón dala mynd með Matt Damon, kemur á markaðinn í haust. Raimi er að undirbúa ódýra endurgerð The Evil Dead en Coppola er greinilega farinn að taka því rólega í leikstjórahlutverkinu. Leikstjórar lækka seglin Away we go Hjónakornin eru leikin af þeim John Krasinski og Mayu Rudolph. Drag Me To Hell Alison Lohman í vondum málum. Leikstjóri Sam Mendes nýtur frelsisins í kvik- myndagerðinni. Leikstjóri Sam Raimi hvarf aftur til upprunans í hryllingnum. Girlfriend experience Daglegt líf háklassa-gleðikonu. Leikstjóri Steven Soder- bergh hvílir stórvirkin. Taking Woodstock Demetri Martin leikur unga manninn sem blæs til hippa-hátíðarinnar. Tetro Alden Ehrenreich leitar bróður síns í Argentínu. Leikstjóri Francis Ford Coppola hefur líka vikið frá rándýrum myndum. Leikstjóri Ang Lee stýrði hippa-og sýruveislunni um Woodstock.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.