Morgunblaðið - 06.09.2009, Síða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
unni að halda upp á afmælisdaga og í Feyki, fréttablaði á
Norðurlandi vestra, segir Karl í tilefni þess að Bangsi var
kjörinn Norðvestlingur ársins 2008, að Bangsi hafi haldið
upp á afmælisdaginn sinn með stæl. „Fyrst bauð hann börn-
unum og bauð upp á harðfisk, gos og fleira gott og um kvöld-
ið kom fullorðna fólkið og þá jókst nú fjörið. Ég man eftir
því að hafa dansað niður úr sokkaleistunum í afmæli hjá
Bangsa. En meginreglan var sú að þegar karlarnir færu að
syngja þá væri tímabært fyrir börnin að fara heim.“
Og nú bætir Karl við: „Bangsi hefur aldrei látið græðgina
ná tökum á sér. Hann er mikill lífskúnstner, hvers manns
hugljúfi og er allra vinur, barna sem fullorðinna. Hann er
snillingur en miklast ekki. Hann segist oft ekki vera neitt, en
hann er allt.
Gælunafnið Bangsi hefur fylgt honum frá bernsku og segir
sitt um þennan mjúka og hlýja mann, sem allir vilja eiga að
vini.“
„Hvunndagshetja á Hvammstanga“
Hvunndagshetju á Hvammstanga kallaði Feykir Bangsa,
þegar blaðið tilkynnti val hans sem manns ársins, sem hann
deildi með yfirlögregluþjóninum á Sauðárkróki; Stefáni
Vagni Stefánssyni. Bangsi horfir í gaupnir sér, þegar ég
spyr hvort honum hafi ekki þótt til um upphefðina. „Æ ég
veit ekki,“ tautar hann svo. „Veizt þú hvað er hvunndags-
hetja?
-Er það ekki hversdagshetja?
„Jæja. Ég er ósköp hversdagslegur maður. En skjalið sem
þeir afhentu mér hef ég ekki heima við. Það er bezt geymt
úti í bókasafni.“
Árni Sæberg var búinn að hafa mörg orð um harðfiskinn
og hákarlinn hans Bangsa. Það sýndi sig að hann hafði ekki
sagt um of. Bangsi herðir fisk og verkar grásleppu og hákarl
og húsmæðurnar á Vatnsnesi segjast ekki geta án hans ver-
ið. Þær halda rómað fjöruhlaðborð í Hamarsbúð einu sinni á
ári og þar er margt á boðstólum úr smiðju Bangsa; súrsuð
selseistu og ýmislegt annað. Hann horfir bara kíminn til hafs
þegar ég spyr hann út í matseðilinn. Og það kennir ýmissa
grasa í hjallinum hans hjá Hamarsbúð.
Krakkarnir eru enn á bryggjunni þegar við komum í land.
Hann talar við þau eins og fullorðið fólk og þá auðvitað um
sjóinn. Og köllin fylgja okkur upp eftir: Bangsi, Bangsi. Hve-
nær fæ ég að fara með þér á sjó?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Síld, síld Komið að á kjaftfullum báti af síld.
Snúinn Hákarl losaður frá síðunni.
Úr myndasafni Bangsa
Bátasmiðurinn Karlinn setur tvo niður.
Hvammstangi Bangsi liggur í blíðamorgni.