Saga - 1952, Page 3
Sifjaspjallamál Tómasar Böðvarssonar
og Þórdísar Halldórsdóttur.
Brot úr réttarfarssögu 17. aldar.
Árið 1608 hefst mál í Hegranessþingi, sem
hefur hlotið að vekja mikið umtal í héraði. Það
sýnist hafa hrundið af stað algerlega löglaus-
um aðgerðum af hálfu danska valdsins hér, sem
áður hafa verið óþekktar. Þetta mál er líka speg-
ill af lagaframkvæmd hér á landi um þá tíma.
Og það sýnir einnig refsilög þeirra tíma í fram-
kvæmd og viðleitni manna til undankomu und-
an inum hörðu og ómannúðlegu refsilögum.
Loks er það nokkur vottur um galdratrú almenn-
ings um þær mundir.
Þegar mál þetta hófst, voru ríkastir menn í
Hegranessþingi Guðbrandur biskup Þorláksson
á Hólum, inn mikilhæfasti og aðsópsmesti allra
biskupa þar í lúterskum sið, og Jón lögmaður
Sigurðsson á Reynistað, þá sýslumaður í Hegra-
nessþingi, vitur maður, harðsnúinn og kallaður
nokkur undirhyggjumaður. Þessir höfðingjar
voru lengstum litlir vinir, þó að frændsemi væri
nieð þeim. Þeir voru skyldir að þriðja manni og
fjórða, talið frá Solveigu ríku Þorleifsdóttur,
þannig: