Saga - 1952, Page 4
262
Solveig
— Pétur Loftsson — Ragnheiður á
rauðum sokkum — Sigurður Jóns-
son — Jón lögmaður.
— Jón Sigmundsson lögmaður —
Helga — Guðbrandur biskup.
Um þessar mundir bjuggu að Sólheimum í
Sæmundarhlíð hjón nokkur. Hét bóndinn Tóm-
as og var sonur Böðvars prests Jónssonar að
Myrká og síðari konu hans Guðrúnar Gísladótt-
ur,1) sem Böðvar prestur festi sér árið 1575.2)
Kynni Guðrún sú að háfa verið dóttir Gísla
prests Finnbogasonar ins sterka og móðir Stein-
unnar Guðbrandsdóttur biskups, enda var Guð-
brandur biskup sjálfur fyrstur festingarvotta.
Ef Tómas hefur verið sonur þessarar Guðrún-
ar, sem líklegt sýnist, þá verður hlutur Guð-
brands biskups í máli Tómasar Böðvarssonar
auðskilinn. En hvernig sem í því liggur, þá hef-
ur Guðbrandur biskup sýnilega verið hliðhollur
Böðvari presti að Myrká, föður Tómasar, enda
mun fátítt, að biskup sjálfur hafi verið meðal
votta að gerningum. Tómas Böðvarsson er þá
eigi fæddur fyrr en 1576 og sennilega rúmlega
þrítugur að aldri, þegar mál það, sem hér verð-
ur rakið, hefst.
Kona Tómasar var Bergljót Halldórsdóttir.
Faðir hennar var Halldór bóndi á Eyrarlandi
Sigurðsson Jónssonar príors á Möðruvöllum í
Hörgárdal Finnbogasonar lögmanns Jónssonar.
Bergljót var því fjórði maður frá Finnboga lög-
manni og Málmfríði konu hans, dóttur Torfa
1) P. E. Ól. Æfiskrár fsl. I. 292-293.
2) Bréfabók Guðbr. biskups bls. 120-121.