Saga - 1952, Page 12

Saga - 1952, Page 12
270 ritning sanni. Segist höfuðsmaður því fyrir hönd hans hátignar konungsins skipa svo fyrir, að sóknarprestur skuli þrjá sunnudaga í röð áminna slíka forherta syndara af predikunar- stóli um, að þeir hverfi frá villu síns vegar og leiði sannleikann í ljós, og biðja fyrir þeim „eina kristilega bæn“. Ef þetta hrífur ekki, þá skyldi sýslumaður, þar sem slíkar „letfærdige" konur eru, kveðja til sín prófastinn og prestinn og sex góða menn til viðurvistar, og skyldi síð- an spyrja konuna með „jomfru“, eða klemmum á fingri, enda skyldi sýslumaður hvorki „lade bruge gunst eller gave“ (þ. e. hvorki sjá í gegn- um fingur við aðilja né taka við gjöfum af bamsmóður né öðrum) henni til linkindar. Skyldi svo bóka játningu hennar og innsigla. Segist höfuðsmaður loks ekki hafa getað feng- ið bréf konungs til þessarar ákvörðunar „udi denne besörgelige tid“, og á hann þar með við Kalmarstyrjöldina svonefnda milli Dana og Svía, sem stóð þessi árin. En þetta segir hann, að gilda skuli, þar til er konungur mæli öðru- vísi.1) Að landslögum var svo með farið, ef kona vildi ekki segja til faðernis barns síns: Skyldu kennimenn veita konunni áminningar. Ef þær hrifu ekki, þá mátti „setja hana út af sakra- menti“. Þóttu það auðvitað þungar búsifjar á þeim tímum, með því að það gat að trú almenn- ings varðað sáluhjálp aðilja, enda mikil minnk- un samkvæmt almenningsáliti þá. Ef þessar að- gerðir báru ekki árangur, þá gat komið til refs- ingar fyrir mótþróa við veraldleg og kirkjuleg 1) Alþingisb. íslands IV. 185-187.

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.