Saga - 1952, Side 29

Saga - 1952, Side 29
287 allt að því, að hann hafi seilzt inn á valdsvið konungs. Meðal kæruatriðanna er það eitt, að hann hafi gefið út bréf um það, að konur, sem ekki vildu góðviljuglega segja til faðernis barna sinna, skyldi pína til sagna, enda hafi almenn- ingur rökstutt það með bréfi þessu, að menn nytu ekki íslenzkra laga, og væri það einnig andstætt Stóradómi, sem Friðrik konungur 2. hafi staðfest.1) Sjálfir voru nefndardómendur í þeirri sök, að þeir héldu það sjálfsagt vera lög hér, sem ekki var það, en þeirri skuld reyna þeir að koma á Herluf Daa, enda hefur þessi sök hans, auk annars, verið allmikil í þeirra augum. Kæruskjal sitt hafa nefndardómendur svo sent konungi. Þann 3. sept. 1618 svarar Herluf Daa kæruatriðunum. Um þetta atriði getur hann auðvitað ekki komizt hjá því að viður- kenna ina heimildarlausu útgáfu bréfs síns, en hann réttlætir hana með tvennu móti. í fyrsta lagi með því, að lauslátar konur vilji ekki segja til faðernis barna sinna og dylji þar með blóð- skömm og annað syndugt líferni sitt. Segir hann, að biskupar, lögmenn og sýslumenn hafi beðið sig að útvega bréf konungs til aðgerða gegn slíku guðleysi og slíkri óhæfu. Segir hann og, að bréf sitt hafi þegar gert mikið gagn í þessa átt, enda hafi áður verið venja að refsa slíkum óguðlegum konum með 3 marka sekt, sem alls ekki hafi hrifið. í öðru lagi afsakar Herluf Daa sig með því, að sér hafi ekki verið unnt að ómaka konung um þetta í styrjöldinni, og fyrir því hafi hann tekið það ráð að gefa út skipun sína um pyndingar gagnvart oftnefnd- 1) Alþb. ísl. IV. 460-461.

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.