Saga - 1952, Side 31

Saga - 1952, Side 31
Móðir Jóru biskupsdóttur. í Sturlungu er getið margra kvenna, en það, sem um þær er ritað eða frá þeim sagt, tekur ekki mikið rúm, þótt lagt væri saman og öllu haldið til skila. Konurnar eru nafngreindar yfirleitt af ættfræðilegum ástæðum sökum frændsemi eða sifja við þá karla, sem við sög- una koma. Þó er það ekki sjaldan, að höfund- ur kryddar sögu sína með því að lýsa konu með einni eða tveimur einkunnum, af því að honum þykir betur fara á því eða gera sögu sína skilmerkilegri um atvik, sem sagan greinir í því sambandi. Nokkrar konur eru samt nefndar í Sturlungu vegna eigin athafna þeirra, sem urðu annað- hvort upphaf að atburðarás eða voru hlekkur í atburðakeðju. Þegar þetta ber við, læt- ur höfundur að jafnaði aðeins „verkin tala“, og konan hverfur af sviðinu með öllu, er hún hefur lokið því verki eða verkum, sem nauð- syn þótti að skýra frá. í tölu þessara kvenna er Yngvildur Þorgilsdóttir frá Staðarhóli, er kemur við sögu Hvamm-Sturlu. Ekki hirðir höfundur að lýsa konu þessari, hvorki hið ytra né innra, en fræðir oss um nokkrar athafnir hennar. Ef vér vissum það eitt um Yngvildi, sem Sturlu saga greinir, mundum vér að lík- Saga . 19

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.