Saga - 1952, Page 34

Saga - 1952, Page 34
292 tilskilið,. að Guðrún skyldi ein ráða fyrir fé Þorvalds, er þau kæmu í eina rekkju, og eiga helming alls„ hvort sem samfarir þeirra yrðu lengri eða skemmri. Þá skyldi Þorvaldur kaupa gripi til handa henni, svo að engi jafnfjáð kona ætti betri gripi. Guðrún var hér að engu spurð, og er hún vissi þessi ráð, lét hún sér fátt um finnast. Brúðkaup var síðan haldið í Garps- dal síðla sumars. „Lítt unni Guðrún Þorvaldi", og var erfið í gripakaupum. Engar gersemar voru svo miklar á Vestfjörðum, að henni þætti eigi skaplegt, að hún ætti, og galt fjandskap Þorvaldi, ef hann keypti eigi, hversu dýrar sem metnar voru. Þar kom, að Þorvaldur kvað Guðrúnu ekki kunna hóf um gripakaupin og sló hana kinnhest. Leiddi þetta til skilnaðar þeirra, svo sem nánar greinir í Laxdælu, og hafði Guðrún helming alls fjár. „Tvá vetr höfðu þau ásamt verit“. Sumum finnst, að hér sé sögð hreinlega sagan af festarmálum og hjúskap Halldórs Bergs- sonar og Yngvildar, þótt það verði ekki sannað, eins og nokkur tilvik önnur, þar sem Laxdæla bersýnilega notar atvik, sem Sturla saga skýr- ir frá. Lítill vafi getur á því leikið, að um Hall- dór hefur verið eins farið og Þorvald, að hann hefur verið fjáður maður og þessvegna fengið Yngvildar, og sennilega að henni fornspurðri. Samkvæmt Sturlu sögu voru þau Halldór og Yngvildur saman meðan Þorgils, faðir hennar „var við“, en hann gekk í Þingeyra- klaustur árið 1150, og af hinum tilvitnuðu orð- um er það helzt að ráða, að þau hafi slitið samvistir, þegar Þorgils var vikinn úr hérað-

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.