Saga - 1952, Page 35

Saga - 1952, Page 35
293 inu og Yngvildur hafði losnað undan taum- haldi föður síns. Halldór fór þá utan ásamt öðrum nafngreindum manni, sem erft hafði mikið fé, en var lausingi í háttum. ,,Ok er þeir komu um haf, réðust þeir til suðrferðar ok önduðust báðir“, segir Sturlu saga. Þorgils Oddason andaðist vorið 1151, en vet- urinn áður hafði Oddi sonur hans andazt. Oddi var lærður maður og vitur og manna snjall astur í máli. Þótti að honum mikill mannskaði. Einar bróðir hans tók nú einn við goðorði og ættaróðalinu Staðarhóli. Ekki er unnt að segja með vissu, hve gömul Yngvildur var á þessum tímum, sem svo mikil- vægar breytingar urðu á högum hennar og aðstöðu. Hjúskap hennar var slitið, og hún átti á bak að sjá mikilsvirtum bróður og föður, og ennfremur einni systur. Höfðingi ættarinn- ar var orðinn annarr bróðir hennar, sem, eftir líkum að dæma, hefur verið henni óskapfeldur og hún ekki borið traust til. Sennilegast er, að Yngvildur hafi verið fædd um 1130, og ef hún hefur ekki verið fædd það ár, þá fremur eftir það en fyrir. Guðrún systir Yngvildar er í Sturlu sögu talin síðust dætra Þorgils, en hún átti dóttur, sem orðin var gjafvaxta um 1151 og giftist um það leyti, er hingað spurðist lát Halldórs Bergssonar. Röð systranna í sögunni er því alls ekki miðuð við aldur þeirra, því að vissulega hefur Yngvildur verið yngri en Guð- rún og líklega yngst systranna. Um sömu mundir og Þorgils Oddason fór til Þingeyra, keypti Sturla Þórðarson Gilssonar Hvamm í Hvammsveit af Böðvari Barkarsyni,

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.