Saga - 1952, Page 46

Saga - 1952, Page 46
304 honum borizt til eyrna, að Þorvarður ætti ein- hverjum sökum að svara, og ekki viljað baka sér ábyrgð með flutningi hans. En Þorvarði varð svo við fund þeirra, að hann laust Jón svo rækilega með öxi sinni, að hann braut hana af skafti, en Jón hlaut áverka af högginu og dó næsta vetur. Máli Þorvarðs út af þessu lyktaði þannig, að hann gerðist hirðmaður Inga kon- ungs. Við Yngvildi tók Gregorius Dagsson. Hann var sverð og skjöldur Inga konungs og mestur höfðingi lendra manna í þeirra manna minn- um, er þá voru uppi, og hinn mesti vinur Is- lendinga1). Hefur Yngvildur notið hér að ein- hverra mikilsháttar manna eða haft meðferðis skilríki um, til hverskonar manna hún átti að telja. Sennilega hefur hún einnig borið það með sér,, jafnvel í klæðum og skartgripum, að hér var engin farandkona á ferð. Þegar fréttist um utanför Þorvarðs og Yng- vildar, magnaðist af nýju sá orðrómur, að þau mundu vera foreldrar meyjarinnar Sigríðar, sem fæddist að Ballará haustið 1157. Sagt var, að skírslan hefði verið villt og hjónin í Hvammi, Sturla og Ingibjörg hefðu verið í vitorði og jafnvel í ráði með Þorvarði um allt framferði þeirra Yngvildar. Einar á Staðarhóli snýst nú með fjandskap gegn Hvamm-Sturlu og kvað hann hafa vafið sig í mikil vandræði og býr mál á hendur hon- um fyrir þessa óhæfu og stefndi til alþingis 1) Snorri Sturluson: Heimsk. Hákonar s. herði- breiðs, kap. 14.

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.