Saga - 1952, Síða 56
314
biskup hefur ekki þekkt þetta handrit, en það
er prentað í fyrsta sinn í Viðbæti við útgáfu
Jóns Sigurðssonar af Landnámu 18431). Sýni-
lega hefur P. A. Munch og Jón Þorkelssyni,
sem gaf út sitt rit um Guzur Þorvaldsson árið
1868, báðum sézt yfir þenna Viðbæti við Land-
námu. Ef þeir hefðu kynnt sér ætt Klængs
biskups þarna, mundu þeir vissulega ekki hafa
fullyrt, að þau Yngvildur hafi gengið í hjóna-
band. Einnig má ráða af tilvitnuðum ummæl-
um B. Th. Melsted og dr. Jóns Helgasonar
biskups, að þeir hafa ekki haft í minni ætt
Klængs biskups.
Lítill vafi getur á því leikið, að höfundur
Hungurvöku, sem nafngreinir Gizur Hallsson
meðal heimildarmanna sinna, hefur kunnað góð
skil á framætt Klængs biskups, en af ásettu
ráði ekki hirt að fræða menn um það efni. Og
hann forðast af góðum og gildum ástæðum að
minnast á kynni biskupsins og Yngvildar. Af
sömu ástæðum segir höfundur engin deili á
föður Klængs biskups og hagar orðum eins og
um sé að ræða óþekktan norðlenzkan mann,
sem átt hafi son, að nafni Klængur. En svo
var háttað, að faðir þessa norðlenzka Klængs
og faðir Yngvildar Þorgilsdóttur voru systra-
synir, svo sem sjá má af þessu ættartölubroti:
Ari Þorgilsson á Reykhólum
Þorkatla & Am. Klængss. Hallbera & Oddi Snæriss.
I I
Þorsteinn Þorgils
I I
Klængur biskup Yngvildur
1) íslendingasögur I. 356 og 361.