Saga - 1952, Qupperneq 58
316
stóli hér á landi. í framhaldi af frágögjiinní um
kjör hans til biskups lýsir höfundur Hungur-
vöku honum á þessa leið: „Klængur var vænn
maður að áliti, og meðalmaður að vexti, kvik-
legur og skörulegur, og hinn mesti lærdóms-
maður. Hann var málsnjallur og öruggur að
vinfesti, og hið mesta skáld"1). Gunnlaugur
munkur, sem hafði séð Klæng, ræðir nokkuð
um dvöl hans á Hólum og segir: „varð hann
hinn bezti klerkur, og var lengi síðan sæmi-
legur kennimaður í Hólakirkju, hinn mesti
uppihaldsmaður kristninnar, predikandi fagur-
lega guðs orð undir stjórn og yfirboði tveggja
Hólabiskupa: Ketils og Bjarnar; hafði hann
marga vaska lærisveina undir sér, ritandi bæk-
ur margar og merkilegar,. þær, sem enn sjást
að Hólum og víða annarstaðar"2). Af þessum
orðum Gunnlaugs munks virðist bert, að Klæng-
ur hafi verið höfuðklerkur á Hólum og kenn-
ari þar alla tíð, þangað til hann var kjörinn
biskup í Skálholti. Fór hann utan til vígslu
árið 1151, sama árið og hann var kosinn, og
kom út árið eftir. Þá kom með honum Gizur
Hallsson, sem kom „allt utan úr Bár“, og „áttu
þá menn að fagna tveim senn hinum beztu
manngersemum á Islandi“3).
Eftir að Klængur biskup settist á biskups-
stól er honum lýst í Hungurvöku meðal annars
á þessa leið: Hann varð þegar svo vinsæll við
alþýðu, að jafnvel unnu honum þeir menn hug-
1) Bisk. I. 80.
2) Bisk. I. 240—241.
3) Bisk. I. 81.