Saga - 1952, Side 77

Saga - 1952, Side 77
335 hafði staðið viðureign Einars á Staðarhóli og Hvamm-Sturlu, og komu prestar þar drjúgum við sögu og tóku þátt í bardögum og vígaferl- um. Vígaferli presta áttu sér einnig stað annars staðar í landinu. Sturlu saga ber einnig vitni um það, að til voru vígðir menn meðal höfð- ingja, sem sýndu litla hæversku í kvennamál- um. Má þar nefna Pál Þórðarson, prest og goðorðsmann í Vatnsfirði. Hann kom að Helga- felli um nótt, gengur með mönnum sínum í skálann og hóf Hallgerði, perstskonuna á staðn- um, úr hvílu sinni og bar út, en menn hans héldu á meðan prestinum manni hennar, svo og föður hennar, sem var göfugur kennimaður og höfuðklerkur. Páll flutti konuna síðan heim til sín í Vatnsfjörð. En geta má þess, að þessar aðfarir munu hafa verið með ljúfu samþykki Hallgerðar, en hún „var kvenna vænst ok merki- legust ok mestr skörungr at öllu“, segir sagan. Næsta sumar á alþingi fékk Jón Loftsson talið svo um fyrir Hallgerði, að hún hvarf aftur til bónda síns að Helgafelli. — Þessi dæma sýna, að Eysteinn erkibiskup hafði nokkuð fyrir sér, er hann vandaði um siðferði presta og höfð- ingja. Allar líkur mæla gegn því, að Klængur biskup hafi nafngreint og kært fyrir erkibiskupi nokk- urn vígðan mann eða höfðingja fyrir fjöllyndi og ókristilegt framferði í ástamálum, þótt erki- biskup fullyrði, að honum séu nöfn manna kunn. Af orðunum „mér er til eyrna komið“ virðist hins vegar mega ráða, að einhver annar maður hafi munnlega borið erkibiskupi fréttir um þessi efni og skýrt honum frá framferði

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.