Saga - 1952, Side 87
345
rauf þau ráð öll á sínum dögum, sem hann vissi
að ólögum ráðin vera, hvárt sem lut áttu í meiri
menn eðr minni“1).
Rök hníga að því, að hinir ónefndu vinir
Klængs biskups, sem urðu á vegi Þorláks bis-
upsefnis í Skálholti fyrir páskana 1175 og hon-
um til skapraunar þá, hafi, er tímar liðu, einnig
orðið vinir hans. Ef hann hefur ekki fyrir
hjónaband Þorvalds Gizurarsonar haft náin
kynni af Yngvildi og dóttur hennar, þá hafa
þau kynni tekizt eftir það án efa, og orðið á
þann veg, sem sagt var.
Þegar rennt er huganum yfir það sem vitað
er, að drifið hefur á daga Yngvildar Þorgils-
dóttur, samskipti hennar og Klængs biskups og
síðan kynni af Þorláki biskupi, verður að telja
það vafalítið, að þetta hefur á efri árum mark-
að djúpt hug og háttu þessarar fyrrum örlyndu
konu af ætt Reyknesinga. Sennilega hefur Yng-
vildi verið líkt farið eftir dauða Klængs bisk-
ups — ef ekki fyrr — og Guðrúnu Ósvífurs-
dóttur eftir drukknan Þorkels Eyjólfssonar.
Hún hefur gerzt, eins og Laxdæla segir um
Guðrúnu, „trúkona mikil“ og verið „löngum
um nætr at kirkju á bænum sínum“.
Vér vitum ekki, hvenær Yngvildur dó, en öll-
um heimildum ber saman um, að Jóra biskups-
dóttir hafi andazt árið 1196, og hefur hún þá
verið, eftir því sem hér hefur verið leitazt við
að sýna fram á, rúmlega þrítug að aldri. Ald-
urs vegna gat því Yngvildur hafa lifað þessa
dóttur sína. En ef svo hefur verið, virðist fátt
1) Bisk. I. 107.