Morgunblaðið - 16.01.2010, Side 44

Morgunblaðið - 16.01.2010, Side 44
44 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 2010 Sudoku Frumstig 1 3 9 2 4 6 4 3 5 8 5 5 8 6 2 9 2 4 2 6 3 1 5 1 8 4 3 9 5 3 5 9 6 9 5 7 8 7 9 4 5 3 3 2 2 4 7 3 6 3 6 7 7 8 6 1 8 2 3 6 5 7 1 3 3 2 6 5 6 2 9 5 8 1 1 5 2 6 7 4 2 8 9 1 5 6 3 8 6 5 7 4 3 9 1 2 1 3 9 2 6 5 7 4 8 4 2 6 1 5 7 3 8 9 3 5 1 9 2 8 6 7 4 9 7 8 6 3 4 2 5 1 5 9 3 4 8 6 1 2 7 2 8 7 5 1 9 4 3 6 6 1 4 3 7 2 8 9 5 4 8 1 2 3 6 7 5 9 7 5 2 1 9 8 3 6 4 3 6 9 5 7 4 8 1 2 8 1 6 7 5 9 4 2 3 5 7 3 4 8 2 1 9 6 2 9 4 6 1 3 5 7 8 1 2 8 3 6 7 9 4 5 6 3 7 9 4 5 2 8 1 9 4 5 8 2 1 6 3 7 8 7 6 1 5 4 2 3 9 1 9 4 3 2 7 8 5 6 5 2 3 6 8 9 4 1 7 2 8 1 4 7 5 9 6 3 7 6 9 8 3 2 1 4 5 3 4 5 9 1 6 7 2 8 4 1 8 5 9 3 6 7 2 6 5 2 7 4 8 3 9 1 9 3 7 2 6 1 5 8 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 16. janúar, 16. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yð- ur, því að þér trúið ekki þeim, sem hann sendi. (Jóh. 5, 38.) Bókstafir eru ólíkindatól og hegðasér með mismunandi hætti eftir því í hvaða tungumáli þeir eru not- aðir. Örlítill blæbrigðamunur á framburði þeirra getur líka ráðið því hver merking orðanna er. Þess vegna er varasamt að reyna að tala erlend tungumál eins og innlendir, en útrýma íslenska hreimnum. Hann fer okkur Íslendingum ágætlega og skilar merkingu orðanna vel. Vík- verji lendir í það minnsta sjaldan í því að enskumælandi fólk skilji ekki skerandi skýra ísl-enskuna. x x x En sumir reyna þó að dulbúa sigsem innfædda, þegar þeir tala ensku. Einn þeirra er Björgvin Hall- dórsson, stórsöngvari og sjónvarps- kynnir á Stöð 2. Hann er góður í ensku, það verður ekkert af honum tekið, en stundum kemur hann upp um sig. Til dæmis hefur hann ótal sinnum sagt áhorfendum að þátt- urinn „American Idle“ sé næstur á dagskrá. Þar á hann auðvitað við American Idol, en takmarkar fram- burðinn á o-inu of mikið. Eyðir því alveg. Merkingin í því sem hann seg- ir verður því „amerískur aðgerða- laus“. Ofvöndunin verður okkur Ís- lendingum oft að falli. Á íslensku ofvöndum við auðvitað villt og galið, segjum merkingarlaus orð eins og „þettað“ og „svog“. En ofvöndunin á sér ekki síður stað á enskunni. Til dæmis hafa Íslendingar mjög sterka tilhneigingu til að vera aðeins of westrænir þegar þeir bera fram „v“. Þegar Íslendingur kveðst vera mjög þreyttur segir hann kannski „I am wery weary.“ Þá vita kanar og tjall- ar ekkert hvað hann á við. x x x Þess vegna er ágætt að ætla sérekki um of á erlendri tungu, viðurkenna bara að þetta er ekki manns eigið móðurmál og tala með hreim. Ef orðaforðinn og málfræðin er rétt gengur það upp. Þetta hafa tveir íslenskir stjórnmálamenn gert ágætlega, þeir Geir H. Haarde og Ólafur Ragnar Grímsson, hvað svo sem fólk vill annars segja um afrek þeirra á pólitíska sviðinu. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 prest, 8 bál, 9 bolmagnið, 10 spil, 11 blunda, 13 stal, 15 æki, 18 sjá eftir, 21 nytjaland, 22 hamingju, 23 kynið, 24 grindverkið. Lóðrétt | 2 lýkur, 3 kroppa, 4 venslamenn, 5 reikningurinn, 6 álít, 7 elskaði, 12 nagdýr, 14 iðka, 15 úr- gangur, 16 gera ríkan, 17 tími, 18 borði, 19 hús- dýri, 20 kjáni. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 bjóða, 4 hakan, 7 lokar, 8 lómur, 9 auk, 11 rýrt, 13 orga, 14 ólmur, 15 háll, 17 mjór, 20 slá, 22 lútan, 23 munni, 24 torga, 25 rusla. Lóðrétt: 1 bolur, 2 óskar, 3 arra, 4 hólk, 5 kamar, 6 norpa, 10 urmul, 12 tól, 13 orm, 15 helft, 16 lítur, 18 Jónas, 19 reiða, 20 snúa, 21 ámur. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 c6 2. e4 d5 3. cxd5 cxd5 4. exd5 Rf6 5. Rc3 g6 6. Bc4 Rbd7 7. d3 Bg7 8. Rf3 O-O 9. O-O Rb6 10. Db3 Re8 11. Bf4 Rd6 12. Be5 Bf5 13. Bxg7 Kxg7 14. Db4 Kg8 15. Hfe1 Hc8 16. Bb3 Bxd3 17. Dh4 Rd7 18. Had1 Bc4 19. Bc2 Rf6 20. Dh6 Rg4 21. Dg5 Rf6 22. Dh6 Rg4 23. Dh4 Rf6 24. Bb1 He8 25. He3 Db6 26. Rg5 Kg7 27. b3 Bb5 28. Hh3 h5 29. Hg3 Hg8 30. Df4 Bd7 31. He1 Kf8 32. Hge3 He8 33. h3 Bf5 34. Bxf5 Rxf5 35. He5 Hc8 Staðan kom upp á rússneska meistaramótinu sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Dmitry Jako- venko (2736) hafði hvítt gegn Sanan Sjugirov (2612). 36. d6! Hxc3 37. Hxe7! Hg7 38. d7! Dd8 39. He8+ Rxe8 40. dxe8=D+ Dxe8 41. Hxe8+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Fjórir niður. Norður ♠KD73 ♥54 ♦85 ♣D10932 Vestur Austur ♠G8 ♠10942 ♥ÁDG10832 ♥K ♦D109 ♦762 ♣K ♣G8765 Suður ♠Á65 ♥976 ♦ÁKG43 ♣Á4 Suður spilar 3G. „Við náðum 3G fjóra niður.“ Vestur var góður með sig þegar hann hripaði upp þetta spil frá Reykjavíkurmótinu. Það virðist reyndar enginn sérstakur árangur að hnekkja 3G, en eins og vestur benti réttilega á, þá duga sjö hjartaslagir aðeins í þrjá niður. „Við fengum einn í viðbót.“ Sagan er þessi: Suður opnaði á sterku laufi og vestur sagði rólega 1♥. Norður doblaði til að sýna 5-7 punkta og suður sagði 1G. Vestur prófaði 2♥, en nú sagði norður 2G, sem suður hækkaði í 3G. „Svo virtist sem þeir ættu báðir hjartakónginn,“ sagði vest- ur, sem taldi þó nauðsynlegt að fría lit- inn og kom út með ♥D.“ Framhaldið var tilfinningaþrungið, en eftir nokkurt sems spilaði austur tígli í öðrum slag og sagnhafi svínaði gosanum. Er þar komin skýringin á fjórða dáninum. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er ekki víst að þú sért tilbú- in/n til að viðurkenna það, hvernig mál- um þínum er komið. Ekki líta undan, skelltu þér í að leysa málin. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú hefur verið þekk/tur fyrir að ör- vænta ef þér finnst hlutirnir ekki ganga nógu vel. Skoðaðu þá sigrana sem þú hefur unnið sl. ár, þá sérðu að þú getur allt sem þú vilt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú þarft á meiri hvíld og ein- veru að halda. Láttu það eftir þér að vera þú sjálfur og hafðu ekki óþarfa áhyggjur. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú hefur yfirhöndina í samninga- viðræðum og veist að þannig á það að vera. Láttu verða af því að fara í lækn- isskoðun. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Notaðu daginn til að fara yfir reikn- inga, skuldir, skatta og allt sem við- kemur sameiginlegum fjárhag og eign- um. Láttu draumana ná tökum á þér í dag, það er byrjunin. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Fólk hefur treyst þér hingað til, því ætti það að breytast nú?Taktu þig nú á og gerðu eitthvað fyrir sjálfa/n þig. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er aldrei hægt að gera svo að öllum líki né segja það sem allir sam- þykkja. Hristu upp í rútínunni. Skelltu líkamsræktinni inn í stundatöflu dagsins. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú stendur í þeim sporum að þér finnst þú hafa gleymt einhverju mik- ilvægu en getur ómögulega sagt til um hvað það er. Nærgætni er nauðsyn í samskiptum við ættingja. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er nauðsynlegt að hafa öll smáatriðin með í myndinni, öðru vísi get- ur þú ekki gengið frá málunum. Óvænt uppákoma verður til þess að þú fyllist gleði. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Farðu varlega í að framkvæma þær hugmyndir sem þú færð í dag. Nú eru ýmis tilboð í gangi í verslunum, hvernig væri að nýta þau? (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Maki þinn vill gera eitthvað á heimilinu sem þú ert ekki sátt/ur við. Sambýlingur reynir á taugarnar. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Slakaðu á. Stattu fastur/föst á þínu, færðu rök fyrir þínum ætlunum en hlustaðu á það sem andstæðingurinn hef- ur fram að færa. Stjörnuspá 16. janúar 1960 Selma Jónsdóttir listfræð- ingur varði doktorsritgerð við Háskóla Íslands, fyrst kvenna. Ritgerðin fjallaði um útskurð frá Flatatungu í Skagafirði. 16. janúar 1995 Snjóflóð féll í Súðavík. Fjórtán manns fórust, þar af átta börn, en tólf manns var bjargað. Tólf ára drengur, Tomasz Lupinski, fannst lifandi tæp- um sólarhring eftir flóðið. Miðbik þorpsins sópaðist burt í flóðinu sem féll snemma morguns, en nokkrum klukku- stundum áður hafði hluti byggðarinnar verið rýmdur vegna snjóflóðahættu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Vigdís Magn- úsdóttir, Eirar- holti, Hlíðarhús- um 3-5 í Grafar- vogi, áður Ár- skógum 8, er níræð í dag. Hún fagnar afmælinu með nánustu ætt- ingjum og vinum. 90 ára Hjónin Brynja Bjarnadóttir og Brynjólfur Sveinbergsson á Hvammstanga eiga fimmtíu ára brúðkaupsafmæli á morgun, sunnu- daginn 17. janúar. Þau munu á af- mælisdaginn dvelja í faðmi fjöl- skyldu sinnar í Reykjavík. Gullbrúðkaup ODDNÝ Mjöll Arnardóttir, lögmaður og prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segist ekki vera mikið afmælisbarn og hafa ekki lagt í vana sinn að gera mikið úr afmælisdeginum en hún er fertug í dag. „Undantekningin er stórafmæli. Ég hélt smá boð þegar ég varð þrítug og ég ætla að bjóða fjölskyldu og vinum heim í Mosfellsbæ í kvöld í veislu.“ Oddný útskrifaðist árið 2001 með doktorsgráðu í lögfræði frá Háskólanum í Edinborg. Árið 2005 hóf hún stundakennslu við HR. Ári síðar var Oddný ráðin prófessor við lagadeild skólans. Hún segist ekki hafa neinar sérstakar hefðir sem hún heldur í heiðri á afmælisdaginn. „Þetta er yfirleitt frekar lágstemmt. Eina hefðin er kannski að synir mínir tveir og maðurinn minn hafa oft vak- ið mig á morgnana með afmælisgjöfum.“ Oddný og fjölskylda hennar er mikið hestafólk og eftirminnilegasta afmælisgjöfin var því hesturinn Glaður frá Kjarnholtum frá eig- inmanninum á þrítugsafmælinu. „Þetta er mikill snilldarhestur og það hafa verið farnar margar ferðir á honum. Báðir strákarnir mínar byrjuðu í hestamennsku á honum.“ kjartan@mbl.is Oddný Mjöll Arnardóttir lögfræðingur 40 ára Vakin með afmælisgjöfum Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.