SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Síða 10
10 31. október 2010
E
inhver innihaldsrýrasta klisja íslenskra stjórnvalda
undanfarna tuttugu mánuði er klisjan um að slá
skjaldborg um heimilin í landinu. Merkingarleysi
klisjunnar birtist okkur hvað eftir annað í því að orð
og athafnir fara ekki saman, þegar kemur að því að greiða úr
vanda hinna skuldsettu heimila í landinu.
Við urðum þessa áþreifanlega vör, enn á ný, á miðvikudag-
inn var, þegar upplýst var að ríflega 1.100 heimili fengu mat-
araðstoð frá Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands í
þessari viku. Fjöldi þeirra
sem þurfa á mataraðstoð
frá Mæðrastyrksnefnd að
halda hefur tvöfaldast á
síðustu mánuðum, að sögn
Ragnhildar Guðmunds-
dóttur, formanns Mæðra-
styrksnefndar. „Fólk á erf-
itt, endarnir ná ekki saman
og þá er eina ráðið að fara
til hjálparsamtaka. Þörfin
er mikil. Gagnrýna má
hvort það á að hafa þetta
form eða nota eitthvað
annað, ég er ekki með
neina hugmyndafræði í
þeim efnum. En það blasir
við okkur að fólkið þarf á
þessari aðstoð að halda
núna, það skiptir mestu
máli í okkar huga,“ sagði
Ragnhildur í samtali við
Morgunblaðið.
Og Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar í Eskihlíð, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að biðröðin hefði náð niður á Miklubraut.
„Þetta voru um 650 fjölskyldur í dag, fyrir viku voru hér
595. Það er alls ekki verið að misnota þessa aðstoð, hingað
koma þeir sem sýna tilskilda pappíra, sýna að þeir séu at-
vinnulausir, öryrkjar, eldri borgarar eða einstæðir foreldrar.
Eftir hrun kemur hingað líka fólk sem er búið að missa allt sitt,
venjulegt millistéttarfólk sem áður hefur séð um sig en stendur
núna frammi fyrir því að það á ekkert að borða,“ sagði Ásgerð-
ur Jóna.
Það er sorglegt að vita til þess að svo stór hópur Íslendinga
skuli ekki hafa önnur úrræði til þess að fæða sig og sína, en að
híma í kulda og trekki í löngum biðröðum, eftir matargjöf frá
góðgerðarsamtökum. Er þetta „Hið nýja Ísland“? Er það þetta
sem við viljum? Erum við ekki að búa hér til nýja þjóðfélags-
skipan, sem felur í sér stéttskipt þjóðfélag, þar sem óréttlætið
beinlínis öskrar á okkur?
Ég held að enginn geti sett sig í spor þeirra, sem þurfa að
ganga með betlistaf í hendi til góðgerðarsamtaka til þess að
geta fætt börn sín, sem ekki hefur þurft að gera það sjálfur.
Raunin hlýtur að vera gríðarleg og átökin við eigið stolt römm.
Fjölmargir þeirra sem þurfa að stíga þessi þungu skref eru at-
vinnulausir, hafa misst allt sitt og við þeim blasir ekkert annað
en vonleysi. Hvernig á fólk sem svona er komið fyrir að ala í
raun önn fyrir börnum sínum og fjölskyldu?
Það eru ekki stjórnvöld sem hafa slegið skjaldborg um heim-
ilin í landinu. Það hefur enginn slegið skjaldborg um heimilin í
landinu, en góðgerðarsamtök eins og Mæðrastyrksnefnd, Fjöl-
skylduhjálp Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar og Rauði kross Ís-
lands hafa þó rétt þeim sem mest þurfa á að halda hjálparhönd.
Þeirra framlag og framtak er frábært, en er engin lausn í sjálfu
sér, heldur einungis tímabundin aðstoð í neyð. Hér þarf var-
anlega lausn. Lausn sem ríkisstjórnin verður að finna og fá
verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur í lið með sér. Sú
lausn verður ekki fundin nema með því að skapa hér ný at-
vinnutækifæri, þannig að þær þúsundir atvinnulausra, sem nú
eygja enga von, geti á ný orðið virkir þátttakendur í þjóð-
félagsuppbyggingunni með atvinnuþátttöku. Er það ekki lýð-
um ljóst, að hér batnar ekki ástandið til langframa nema við
aukum framleiðni og verðmætasköpun á ný?
Klisjan um
skjaldborg
heimilanna
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ragnhildur
Guðmundsdóttir
Ásgerður Jóna
Flosadóttir
’
Það hefur eng-
inn slegið
skjaldborg um
heimilin í landinu, en
góðgerðarsamtök
hafa þó rétt þeim sem
mest þurfa á að halda
hjálparhönd.
07:00 Vakna í nær tómu
herbergi, málari væntanlegur
til að mála svefnherbergi og
bað og íbúðin á hvolfi. Skelli í
mig morgunmat og svo er það
sturtan til að vakna til lífsins.
Við Halli hjálpumst að við að
ganga frá svo unnt sé að mála.
Næ að skella kossi á dótturina
Birtu Líf um leið og ég stekk út
úr dyrunum, vetrarfrí hjá
henni og feðginin ætla að
kaupa málningu og taka á móti
málaranum.
8:20 Rétt náði inn í tíma í
HÍ, aðferðafræði er upplögð til
að vakna á morgnana. Nýt
þeirra forréttinda að stunda
háskólanám með vinnu minni
hjá Félagsstofnun stúdenta, fæ
að sveigja og beygja vinnutím-
ann til að mæta í tíma.
10:00 Upp tvær hæðir og
mætt í vinnuna. Fer yfir þann
tölvupóst sem hefur borist,
svara fyrirspurnum frá inn-
lendum og erlendum nemum
sem eru í húsnæðisleit. Fyr-
irspurnir frá erlendum nemum
vekja oft spurningar um það
hvernig húsnæði sé í boði á
stúdentagörðum erlendis.
Besta fyrirspurn dagsins var:
„Does the room have a win-
dow?“
12:15 Sæki mér þessa fínu
indversku pönnuköku sem er
réttur dagsins í Hámu. Við
vinnufélagarnir erum nýkomin
heim úr starfsmannaferð til
New York og snúast umræð-
urnar um það hver gerði hvað,
hvað sástu og að sjálfsögðu:
„Hvað keyptir þú?“
12:45 Tek stöðutékk á
heimilinu, hringi til að kanna
hvort það gangi upp að flytja
aftur í hjónaherbergið á morg-
un. Baðherbergið klárt og allt á
réttri leið með hjónaherbergið.
Þarf að sparsla mikið þar, vor-
um að rífa niður vegg um
helgina, fataherbergið farið og
skápar að koma í staðinn. Fer
yfir það hvort þeir sem fengið
hafa boð um að flytja í íbúð á
Stúdentagörðum hafa svarað,
játað eða neitað. Geng frá leigu-
samningum við þá sem þegið
hafa boð en býð íbúð til næsta
umsækjanda hafi boði verið
neitað. Nýr íbúi er í vandræð-
um með tölvutenginguna í
íbúðinni, leiðbeini viðkomandi
með stillingu á tölvunni og
hvernig skrá eigi hana til að að-
gengi fáist að neti RHÍ. Í sam-
ráði við Alþjóðaskrifstofu há-
skólans tökum við frá herbergi
fyrir erlendan nema sem er í
húsnæðisvandræðum og í
vandræðum með dvalarleyfi,
vonandi leysist það nú.
16:00 Rólegur tími í
vinnunni, komst því yfir flest
það sem fyrir lá og stekk af
stað í skutlið. Dóttirin að ljúka
fimleikaæfingu uppi í Gerplu
og nú er komið að því að sækja
og skutla í Laugardalinn.
17:15 Mættar í Skautahöll-
ina, skvísan í upphitun en ég í
spjallið. Fréttum af óvæntum
gestum að vestan og komum
því við á BK-kjúklingi á leið-
inni heim, grípum með mat
handa öllum enda hæg heima-
tökin þar sem við eigum stað-
inn.
19:30 Hreiðrum um okkur í
miðri óreiðunni, njótum mat-
arins og eigum gott spjall fram
eftir kvöldi.
23:30 Hendum okkur á
svefnsófann í gestaherberginu,
fínt að vita hvað maður er að
bjóða gestum upp á.
Dagur í lífi Bjarkar Birkisdóttur hjá skrifstofu Stúdentagarða
Björk Birkisdóttir leysir úr húsnæðisvandamálum háskólanema og fær oft athyglisverðar spurningar að utan.
Morgunblaðið/Ernir
Herbergi með glugga?
Kona í Hvíta-Rússlandi sést
hér með sekk af trönuberjum
á bakinu. Trönuber eru tínd í
mýri nærri þorpinu Bechi,
sem er um 270 km suður af
Minsk. Á hverjum degi eru
tínd á milli tíu og fimtán kíló
af trönuberjum á þessu svæði.
Þau eru síðan seld fyrir
13.000 rúblur, sem samsvarar
tæplega 500 íslenskum krón-
um kílóið.
Veröldin
Trönuber
í mýri
Kíló af trönuberjum er selt á sem samsvarar 500 íslenskum krónum.
Reuters