SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Blaðsíða 42
42 31. október 2010
Á
því dæmalausa kreppuári,
2010, eru reykvískir kvik-
myndahúsgestir að upplifa
meiri og athyglisverðari um-
skipti í bíóumhverfinu en oftast áður.
Ekki síst bíófíklarnir og samtímis er verið
að færa verulega út hið hefðbundna
markaðssvæði með nýju kvikmyndahúsi
í nánd við Korpúlfsstaði. Í kjarna hverfis
sem er byggt tugþúsundum og teygir
anga sína í Mosfellsbæ og upp á Kjalarnes.
Þá hafa eldri kvikmyndahúsin fengið
tæknilega andlitslyftingu og svo mætti
lengi telja.
Áhugaverðasti viðburðurinn í ár er
vafalaust opnun fyrsta listræna kvik-
myndahússins í borginni, Bíó Paradísar –
heimilis kvikmyndanna, sem hefur tekið
yfir fjölsalabíóið sem áður hét Regnbog-
inn.
Þar með hefur gamall og oftast fjar-
lægur draumur ræst. Það gefur augaleið
að þar með vænkast hagur kvikmynda-
unnenda til muna og möguleikar Bíó
Paradísar eru afar fjölbreyttir. Rekstr-
araðilinn hefur þegar samið við önnur
kvikmyndahús á höfuðborgarsvæðinu
um að yfirtaka sýningar þeirra á „list-
rænum“ myndum, sömuleiðis hefur
Græna ljósið flutt þangað sýningar, en
megináherslan verður lögð á að útvega
efni „að hætti hússins“. Slíkar frumsýn-
ingar hafa þegar verið nokkrar og þær
næstu verða íslenska heimildarmyndin
Feather Cocaine, eftir Örn Marinó Arn-
arson og Þorkel Harðarson, en dul-
arfullur titillinn höfðar til, að því er talið
er, fjórða ábatasamasta smyglvarnings í
heimi; fálka, sem eru geysilega eft-
irsóttir, einkum í Austurlöndum nær. Þar
er aldagömul hefð fyrir því að temja þá til
veiða, enda þóttu þeir konungsgersemi á
sínum tíma og þykja enn. Inside Job er
bandarísk heimildarmynd um hrunið í
fjármálaheiminum og þarf síst að kynna
fyrir Íslendingum. Myndin, sem er eftir
Charles Ferguson, hefur hlotið mjög góða
dóma en það er Matt Damon sem annast
þularstarfið.
Græna ljósið er að byrja um helgina
með sýningar til 4. nóv. á myndunum
fimm sem kepptu um Kvikmyndaverð-
laun Norðurlandaráðs í ár og sýnir með-
fram þeim eitt eldra verk hvers leik-
stjóra. Myndirnar eru: The Good Heart,
frá Íslandi, eftir Dag Kára; Submarino, frá
Danmörku, eftir Thomas Vinterberg
(verðlaunahafinn); Steam of Life, frá
Finnlandi, eftir Joonas Berghall og Mika
Hotakainen; Upperdog, frá Noregi, eftir
Sara Johnesh, og Metropia, frá Svíþjóð,
eftir Tarik Saleh.
Kvikmyndaskóli Íslands stendur fyrir
sýningum á gömlum og ódauðlegum
stórvirkjum úr kvikmyndasögunni.
Oddný Sen kvikmyndafræðingur annast
umsjón sýninga klassískra verka frá tím-
um þöglu myndanna og Páll Óskar sýnir
myndir úr eigin fórum eitt kvöld í viku
en hann hefur sem kunnugt er sérstakan
smekk á bíómyndum. Kvikmyndaklúbb-
urinn Deus ex Cinema hefur komið við
sögu, og þá er fátt eitt talið. Möguleik-
arnir eru óþrjótandi, í bíóinu verða
örugglega kynnt verk frá framandi lönd-
um; myndir þekktra leikstjóra; settar
upp þemavikur, sjálfur mæli ég með einu
vestrakvöldi í viku, þeir eru mikil heilsu-
bót, einkum í nístandi og myrku skamm-
deginu.
Mest er um vert að við, bíógestir,
bregðumst ekki en sýnum vilja okkar í
verki til að njóta jafnþarfs kvikmynda-
húss og Bíó Paradísar. Gera það full-
komlega ómissandi í reykvískri bíó-
menningu, líkt og mánudagssýningarnar
í den, svo maður gleymi ekki klisjunum.
Margt fleira hefur verið gott gert, t.d.
hafa flest bíóin endurnýjað sýning-
artæknina á árinu, sett upp fullkominn
þrívíddar- og stafrænan búnað sem hefur
snaraukið gæði sýninganna. Rúsínan í
pylsuendanum er svo nýja kvikmynda-
húsið, Sambíóin Egilshöll, sem verður
opnað í nóvember og verður að áliti eig-
endanna það fullkomnasta á landinu.
Áhugaverðasti viðburðurinn í ár er vafalaust opnun fyrsta listræna kvikmyndahússins í borginni, Bíó
Paradísar – heimilis kvikmyndanna, sem hefur tekið yfir fjölsalabíóið sem áður hét Regnboginn.
Morgunblaðið/Golli
Breytt bíó-
landslag
Á árinu sem er að líða sjást
margar jákvæðar breytingar
á bíólandslaginu.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Þeir sem séð hafa perluna The Last Detail (’73) minn-
ast frumraunar leikarans Randys Quaids í hlutverki
einfeldningsins Meadows. Hlutverkið færði Quaid
frægð, frama og óskarstilnefningu. Síðan hefur mikið
vatn runnið til sjávar og leikarinn átt litlu gengi að
fagna undanfarin ár, síðast er hann minnisstæður sem
bóndinn sem ræður kúrekana Jake Gyllenhaal og
Heath Ledger til að gæta hjarðar sinnar í Brokeback
Mountain (’05.) Nú er öldin önnur, þær fréttir voru að
berast að þessi stóri bróðir Dennis (sem hefur yfrið
nóg að gera í kvikmyndaheiminum) hefði sótt um hæli
í Kanada, ásamt konu sinni Evegenu. Telja þau að
glæpagengi sem myrðir frægt fólk úr leikarastétt,
þ.á m. Heath Ledger, Chris Penn og David Carradine,
sé á hælum þeirra. Forsagan er sú að þau voru fang-
elsuð um miðjan október fyrir að brjótast inn í gesta-
heimili sveitaseturs sem þau áttu meðan allt lék í lyndi
– fyrir áratug eða svo. Býlið er í Montecito, í nágrenni
Santa Barbara, þar sem dómur var kveðinn upp yfir
hjónunum og þeim sleppt gegn 50.000 dala tryggingu.
Allt er málið hið einkennilegasta og ber vott um
slæmt ástand parsins, sem komst m.a. í kast við lögin
fyrir greiðslukortasvindl og aðra smáglæpi á síðustu
árum. Þeir eru fleiri sem hallast að þeirri skoðun að
hér sé um að ræða ofsóknaræði sökum misnotkunar
eiturlyfja og áfengissýki, sem sé komin á mjög alvar-
legt stig, ekki síður hjá Evegenu. Randy var gómaður
af landamæravörðum í Vancouver sem voru með
handtökuskipun á hendur honum frá Bandaríkjunum.
Kona hans, sem er 47 ára, slapp ekki heldur undan
armi réttvísinnar, en hinn 66 ára gamli leikari og frú
höfðust við í 10 ára gamalli Toyota-bifreið.
Sorglegur endir á ferli sem hófst svo vel hjá þessum
sérstaka leikara sem skemmti okkur í fjölda mynda á
meðan allt lék í lyndi. Alls kom Randy fram í um 70
verkum en blómatími hans var frá því snemma á 8.
áratugnum fram á þann 10. Auk framangreindra eft-
irminnilegra verka hans má nefna Kingpin, gam-
anmyndaröðina sem kennd er við National Lamp-
oon’s Vacation, Midnight Express, The Long Riders og
Independence Day.
saebjorn@heimsnet.is
Af kvikmyndafólki
Randy er orð-
inn ruglaður
Randy Quaid í járnum í Kanada á dögunum.
Reuters
Undarlegar fréttir berast af leikar-
anum Randy Quaid sem hefur sótt um
hæli í Kanada sem maður á flótta und-
an morðingjagengi sem velur sér fórn-
arlömb úr röðum „fræga fólksins“.
Kvikmyndir
Apaplánetu-ævintýrið hófst með
klassíkinni sem bálkurinn dregur nafn
sitt af og ól af sér fjórar framhalds-
myndir sem gerðar voru á árunum
1971-74. Allar nutu þær umtalsverðra
vinsælda, fyrst í bíó, síðan á mynd-
böndum og -diskum. Þá voru gerðir
sjónvarpsþættir og endurgerð frum-
myndarinnar var sýnd árið 2001. Hún
þótti mislukkuð, jafnvel þó að sjálfur
Tim Burton sæti keikur í leik-
stjórastólnum. Fox-kvikmyndaverið
hefur löngum verið meðvitað um van-
nýtta möguleika lífseigs efnisins og nú hefur Peter Chernin, fyrr-
verandi æðsti maður þess, ákveðið að leggja enn á ný til atlögu
við fyrirbrigðið – sem verður jafnframt hans fyrsta kvikmynd sem
sjálfstæður framleiðandi.
Umrædd mynd nefnist Rise of the Apes og verður frumsýnd á
besta aðsóknartímanum að ári, eða 24. júní. Um er að ræða for-
sögu eða undanfara (prequel) myndbálksins og mun athyglin
beinast að vísindamanninum Will Rodman (James Franco), sem
hefur verið að þróa lyf til lækninga á Alzheimer-sjúkdómnum og
reynt þau á öpum. Ekki er að sökum að spyrja; allt fer úrskeiðis.
Svo fer að aparnir taka yfir Móður jörð þegar aðaltilraunadýrið,
Caesar (Serkis), tekur að sýna yfirburðagáfur og forystuhæfi-
leika.
Auk Francos leika Tim Felton (Harry Potter-myndirnar), Brian
Cox, John Lithgow, Freida Pinto (Slumdog Millionaire) og fyrr-
greindur Andy Serkis (Gollum í Hringadróttins-þrennunni; Kong í
King Kong 2005) í formyndinni, sem er leikstýrt af Rupert Wyatt.
Hann er kunnur handritshöfundur og kvikmyndatökumaður en á
fá leikstjórnarverk að baki og lítt þekkt utan The Escapist (’08).
Chernin hefur í hyggju að framleiða nýjan bálk ef nýja upphafið
malar gull.
saebjorn@heimsnet.is
Kvikmyndafréttir
Apaplánetan fer aftur á loft
James Franco.