SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Page 20
20 31. október 2010
úr að bjóða allar stærðir en framleiðum
kannski ekki mikið strax. Við ætlum að
eiga góðan grunn og sjáum svo til því
ekki eigum við endalaust af efni,“ segir
hann en efnið er að sjálfsögðu keypt frá
Bretlandi. „Þetta er rosalega fínt efni,
þétt en létt, ekki þetta hnausþykka ullar-
efni,“ útskýrir hann.
Línan er saumuð á saumastofu herra-
fataverslunarinnar. „Það er klæðskeri
sem gerir jakkana en þeir eru flóknir í
framleiðslu. Það er ekkert flóknara en
herrajakkar, það er mjög erfitt að gera
þá,“ segir hann.
Hannaði út frá efnunum
„Ég hannaði í raun línuna út frá efn-
unum. Við byrjuðum á því að finna þau
en venjulega hefur þetta ferli verið öfugt
hjá mér. Það var í raun mjög þægilegt að
gera þetta svona. Ég vissi samt alveg hvað
ég var með í huga áður en við leituðum að
efnunum.“
En hvað finnst Guðmundi um herra-
tísku í dag? Eða kannski nánar til tekið
hverju íslenskir herramenn klæðast því
ekki er víst að það sé endilega allt í tísku.
„Þeir eru að vakna. Frá því að ég byrj-
aði að vinna hérna [í Kormáki & Skildi]
hefur mikið verið að gerast. Um leið og
það er til verslun eins og þessi, sem getur
sinnt þeim, þá eru þeir til í að klæða sig
betur. Mér finnst vera mikil gróska í
þessu núna og áhugi karlmanna hefur
aukist mikið síðustu tvö, þrjú ár. Fyrst
var þetta skrýtna búðin,“ segir hann en
nú hafi það breyst. „Hér er áhersla á að
bjóða upp á breitt úrval. Það kostar mikla
vinnu að halda í breiddina en það er
skemmtilegt,“ segir Guðmundur, sem
óneitanlega verður dálítið vandræðalegur
á svipinn þegar rætt er um flíspeysur, án
þess að hann vilji sérstaklega tala illa um
þær.
„Ég er hættur að vera neikvæður því
maður getur alltaf pirrað sig á einhverju.
En það er vissulega vakning í gangi,“
segir Guðmundur á jákvæðu nótunum.
Byrja á slaufunum og axlaböndunum
„Margir sem fara að venja komur sínar
hingað byrja í slaufunum og axlabönd-
unum, eins og búið er að vera í tísku
undanfarið,“ segir hann og bendir á að
breytingar í herratísku gerist hægar en í
kventískunni. Hann segir að ef karlmenn
hugsuðu eins vel um fatastíl sinn og bíl-
ana sína yrði útkoman eflaust betri.
Vel er hægt að öfunda herrana af
jakkafötum, á einn veg má segja þau
heftandi en á hinn bóginn eru þau frels-
andi því það er búið að skapa svo gott
kerfi fyrir menn til að fara eftir; buxur,
vesti, brók og skór og svo auðvitað jakki
og skyrta. Guðmundur bendir á á móti að
konur geti valið úr fallegum kjólum.
Önnur lína undir mongólskum áhrifum
Hann hefur einbeitt sér að mestu að
herrafatnaði í náminu þar til í haust en
hann hefur aðeins verið að prófa sig áfram
með kvenfatnað. Guðmundur sýndi
skemmtilega herralínu síðasta vor á sýn-
ingu annars árs nema í Listaháskólanum.
„Ég var ánægður með hvernig til tókst
með hana. Hún var undir mongólskum
áhrifum. Ég hélt í herrahefðina, þetta voru
háar buxur í bland við mongólskan fata-
stíl. Svo voru þetta karlmannlegir menn,
stórir strákar, sem tóku þátt í sýning-
unni,“ segir hann og viðurkennir að það
hafi verið ákveðin yfirlýsing í því. „Tíska
er ekki bara fyrir einhverja litla stráka.
Mig hefur alltaf langað að vera stór og
stæðilegur maður, gráhærður með skegg.
Það kemur kannski einhvern daginn.“
Ástæða fyrir öllu í herrafatnaði
Hvað með nýju jakkafatalínuna, er hún
hugsuð aðeins til sparinota?
„Alls ekki því það er alltaf gott að vera í
ullarbuxum á þessu landi. Það er það góða
við að vera með buxur, vesti og jakka, það
er hægt að leika sér dálítið með þetta,“
segir hann og því hægt að klæða jakkafötin
bæði upp, til dæmis með að nota stífpress-
aða skyrtu og slaufu við, og niður, með því
að klæðast mýkri skyrtu og sleppa kannski
jakkanum eða blanda saman litum.
Hann bendir á að það sé ástæða fyrir
öllu í herrafatnaði. „Þetta er aldrei bara
eitthvað, það er það sem er svo skemmti-
legt. Eins og bindi er upprunalega
smekkur,“ segir hann um þessa skreyti-
flík karlmanna.
Breskættaði karlmaðurinn sem finnst í
kjallaranum í Kjörgarði er samt sem áður
séríslenskur. Bretarnir eru með svo mik-
ið af reglum, sem Guðmundur hefur bara
gaman af að brjóta. „Það er gaman að
leika sér að þessu og rugla aðeins í Bret-
unum, sem eru svo íhaldssamir,“ segir
hann og veit sem er, að það er auðvitað
nauðsynlegt að þekkja reglurnar til þess
að geta brotið þær.
Samstarf þremenninganna hefur verið gott. Hér eru verslunarrekendurnir Skjöldur Sigurjónsson og Kormákur Geirharðsson og hönnuður nýju jakkafatalínunnar, Guðmundur Jörundsson,
saman komnir á gleðistundu á barnum á þriðju hæð veitingastaðarins Einars Ben, þar sem myndatakan á nýju herralínunni fór fram.
Morgunblaðið/Golli
’
Það er gaman að
leika sér að þessu
og rugla aðeins í
Bretunum, sem eru svo
íhaldssamir.
Myndirnar eru allar teknar á sýningu annars árs nema í fatahönnun við LHÍ síðasta vor. Guðmundur var með herralínu sem var undir mongólskum áhrifum og ekta karlmenn sýndu fötin.