SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Side 29

SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Side 29
31. október 2010 29 „Við viljum heiðarlegt samfélag, vera gjafmild, muna söguna og leggja rækt við börn og náttúru.“ Óhætt er að taka undir þessi orð Vigdísar Finnbogadóttur, en hún á síðasta orðið í Lesbók Sunnudagsmoggans í dag. Á þessum umbrotatímum eru Íslendingar lánsamir að eiga forystumann, sem þekkir söguna og tímana tvenna, og beitir sér fyrir þeim gildum, sem hafa löngum mótað íslenska þjóðarsál, án þess að blanda sér í daglegt orðaskak stjórnmálanna. Það er reyndar athyglisvert, að í viðtalinu gagnrýnir hún tíðarandann í samfélaginu og þá leið sem farin hefur verið, að sundra frekar en sameina. „En þetta niðurrifstal er dapurlegt. Það dregur úr okkur kraftinn að tala þjóðfélagið svona niður, í stað þess að segja frá því sem vel gengur. Við höldum áfram að fiska – og svo stóðum við okkur einstaklega vel í gosinu. En það hryggir mig að við höldum ekki fastar í hendur hvert annars á svona erfiðum tímum – að við körpum um keisarans skegg.“ Vigdís segir erfitt að við skyldum ekki rísa yfir þær línur sem aðgreina flokkana þegar svona mikið liggur við. „Að við skyldum ekki geta gert það strax. Við erum föst í sama farinu.“ Og aðspurð hvort hún sé fylgjandi þjóðstjórn svarar hún: „Ég hefði viljað þjóð- stjórn. Ég held að það hefði verið farsælla fyrir okkur, á meðan við komumst yfir erfiðasta hjallann.“ Full ástæða er til að taka undir orð Vigdísar. Á ögurstundu er mikilvægt að þjóðin standi saman, en til þess þarf framtíðarsýn sem fólk hefur trú á. Það er áhyggjuefni, að í stað þess að sameina þjóðina, hefur sú leið verið farin að sundra henni í hverju risamálinu á fætur öðru. Stöðugt er verið að grafa nýjar skotgrafir, um leið og öðrum er kennt um. Það vakti því óneitanlega athygli þegar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hvatti fólk til að sýna stillingu á fjölsóttum hitafundi í Stapanum um atvinnumál á Suðurnesjum á fimmtudag með þeim orðum að „umkenningarleikur“ skilaði engu. Það hefur þó verið eitt af því fáa sem ríkisstjórnin hefur sameinast um, að minnsta kosti án þess að kattasmölun þurfi til. En kannski þjóðin standi saman þrátt fyrir allt. Ef hún væri bara spurð. Ekki bar á öðru í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-samninginn, þar sem þjóðin stóð sameinuð gegn því að leggja gríðarlegar skuldabyrðar á komandi kynslóðir, sem hún ber enga ábyrgð á. Og það kom berlega í ljós í viðbrögðunum við eldgosinu. Ekki skortir gjafmildina, sem Vigdís nefnir, eins og sjá má af viðtalinu við Maríu M. Magnúsdóttur í blaðinu í dag, en Maríusjóður, sem stofnaður var í Gaza-borg í Palestínu á dögunum, er nefndur eftir henni. María upplifði hörmungarnar í London í seinna stríði og veit hvað það er að búa í stríðshrjáðu landi. María hefur látið fé af hendi rakna til Palestínufélagsins og þegar Sveinn Rúnar Hauks- son spurði hvort nefna mætti sjóðinn eftir henni, svaraði hún: „Ég sagði honum að það væru margar Maríur til; María Magdalena og María hin, eins og séra Bjarni sagði, María mey og fleiri, en hann sagðist sérstaklega vilja nefna sjóðinn eftir mér því honum fannst svo merkilegt að ég skyldi enn hafa áhuga á slíkum málum, svona gömul kona.“ Það er vonandi að konurnar, sem þekkja söguna og hafa lifað tímana tvenna, haldi áfram að blanda sér í þjóðmálaumræðuna. „Við erum föst í sama farinu“ „Ég hef aldrei séð jafn óhugnanlegan lit á móðurmjólkinni. Hún var skær- græn.“ Ingibjörg Gunnarsdóttir. Hún drakk eina flösku af Powerade-drykk fyrir blakleik og gaf barni sínu brjóst í leikhléi. „Við vorum bara lélegir á öllum sviðum.“ Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálf- ari í handbolta, eftir nauman sigur á Lett- um í Höllinni. „Feitt vanmat“ Ólafur Stefánsson eftir sigurinn á Lettum. „Þetta var algert burst.“ Ásdís Guðmunds- dóttir einn Evr- ópumeistara Gerplu í hópfimleikum. „Þessum við- burði er lokið.“ Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur um gosið í Eyjafjallajökli. „Ég get ekki lagt næga áherslu á að mín stærstu mistök í lífinu voru að byrja að drekka áfengi. Jónína Benediktsdóttir. „Stuðlasetning hefur haldist óbreytt frá því að Bragi Boddason var að yrkja fyrir 1200 árum. […] Það held ég að megi segja að sé heims- met í menningarvarðveislu.“ Ragnar Ingi Aðalsteinsson, verðandi doktor, um rannsókn sína á íslenskri stuðla- setningu. „Og alls ekki að staldra við til að spjalla við hlaðborðið, og tína upp í sig milli setninga. Það þurfa jú allir að komast að!“ Bergþór Pálsson gefur góð ráð fyrir jólahlað- borð í heimahúsum. „Lífið [hefur] gefið mér ýmislegt fleira en ístru og myntkörfulán.“ Séra Svavar Alfreð Jónsson. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal forystumenn þeirra vilja ganga í Evrópusam- bandið og ófrávíkjanlegt skilyrði Evrópusam- bandsins er, sem þeir árétta hreinskilnislega, að þá fari fram aðlögunarviðræður en ekki samninga- viðræður. Þetta liggur fyrir. Af hverju er það ekki viðurkennt? Sé óhjákvæmilegt að afbaka slíkar grunvallarforsendur alls málsins af þeirri ástæðu einni að samþykki Alþingis var illa fengið, getur þá nokkurn tímann farið fram „upplýst umræða“? Er það ekki hluti af blekkingaleiknum að utan- ríkisráðherra skipar „aðalsamningamann“ til að stjórna leiknum fyrir Ísland. Hefur ESB skipað sinn „aðalsamningamann“ til að fara með gagn- hlutverkið gagnvart Íslandi? Nei. Þeirra maður heitir „stækkunarstjórinn.“ Hann á að sjá um að Íslendingar lúti öllum aðlögunarskilyrðum. Eng- inn blekkingaleikur þar. Þeir verða dregnir fram í dagsljósið Hingað til hafa allir tilburðir forystumanna Sam- fylkingarinnar miðast við að sveipa aðild- arumsóknina og þá meðferð sem hún fær blekk- ingahulu. Því skal ekki haldið fram að það geri þessir menn að gamni sínu. Þeir hljóta að vita að þeir verða fyrr eða síðar afhjúpaðir. En þeir telja sig sennilega ekki komast hjá því að bera sig þann- ig að eins lengi og kostur er vegna þess hve um- sóknin var illa fengin. Þeir sveipa málið hulu hve- nær sem þeir geta, jafnt í stóru sem smáu. Þeir vilja ekki horfast í augu við þá staðreynd, frekar en aðrar, að umræða sem fram fer við myrkvaðar að- stæður mun aldrei verða „upplýst.“ En samfylk- ingarmenn eru því miður ekki einir um að teyma þjóðina út í ófæruna. Eins og Hjörleifur Guttorms- son, fyrrverandi ráðherra, vék að í grein í Morg- unblaðinu ber VG „óskoraða pólitíska ábyrgð“ á málinu. Sá flokkur er að þramma með þjóðina í taumi fram og aftur blindgötuna. Og sjálfur er hann í taumi Samfylkingarinnar. Sumt er svo ein- falt og klárt að það ætti ekki að þurfa að segja það. Eitt af því er það sem Hjörleifur Guttormsson segir um VG í lok greinar sinnar: „Flokkur sem lýst hef- ur yfir andstöðu við ESB-aðild getur hvorki sóma síns vegna né siðferðilega leikið áfram tveim skjöldum eins og hann nú gerir.“ Morgunblaðið/Ómar tri umræðu

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.