SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Qupperneq 32

SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Qupperneq 32
32 31. október 2010 L ög og textar þeirra Ása í Bæ og Oddgeirs Kristjáns- sonar hafa löngum staðið þjóðarhjartanu nærri enda ófá skiptin sem þau hafa hljómað á öldum ljósvakans, ekki síst í þáttum á borð við óskalög sjómanna. Nú hafa þrjár klass- ískmenntaðar tónlistarkonur tekið þessi lög upp á arma sína og fengið tónskáldið Atla Heimi Sveinsson í lið með sér en hann á heiðurinn af nýjum útsetn- ingum laganna, sem komu á dögunum út á geisladisknum „Hugsaðu um búskapinn, hættu að daðra …“. Eitt lag- anna á disknum hefur aldrei komið fyrir eyru almennings áður, en gömul upptaka af því fannst nýlega í fórum fjöl- skyldu Ása. Tónlistarkonurnar þrjár eru messósópransöngkonan Hanna Dóra Sturlu- dóttir, klarínettuleikarinn Freyja Gunnlaugsdóttir og Daníela Hlinkova píanóleikari sem allar eru búsettar í Berlín og skipa Tríó Blik. Ein þeirra hefur sérstaka ástæðu til að hampa tónsmíðum Ása en það er Freyja sonardóttir hans, sem segir hugmyndina hafa kviknað fyrir tveimur árum þegar þær stöllur unnu að upptökum á öðrum, klassískum geisladisk, Kviðu, sem kom út í vor. „Nokkru fyrr hafði þessi gamla upptaka, sem hafði varðveist á segulbandi í heimahúsi, komið upp í hend- urnar á mér, sem varð til þess að við fengum þá flugu í höfuðið að biðja Atla Heimi að útsetja nokkur lög eftir Ása í Bæ og Oddgeir Kristjánsson.“ Atli Heimir tók vel í þá bón. „Við höfum unnið mikið með Atla og hann hefur alltaf skrifað eitthvað fyrir okk- ur af og til. Honum fannst þetta óskaplega skemmtilegt verkefni enda þekkti hann afa og man vel eftir honum. Til dæmis skrifar hann inn í nóturnar vissa takta sem afi hafði. Dæmi um það er að þegar hann komst í virkilegt stuð endaði hann gjarnan síðasta hljóminn á ægilega glæsilegri handahreyfinu, sem Atli skrifar inn í klarín- ettnóturnar. Hann er mjög trúr hans anda og hefur virkilega góða tilfinningu fyrir stílnum. Atli tekur þetta meira í átt að kabarett en áður hefur verið gert, í anda þriðja og fjórða áratugarins. Það er mikil nálægð í tón- listinni, eins og verið sé að flytja hana inni í stofu, og þetta er ekki of flókið; klarínettan hefur ákveðna milli- línu sem spinnst inn í söngröddina, og svo eru rosaleg klarínettusóló inn á milli.“ Með eins hljóðnema og Billie Holiday söng í Í upphafi var ætlunin að Atli útsetti nokkur lög en fyrr en varði urðu þau fleiri og fleiri. „Áður en við vissum af vorum við komnar með heila skemmtidagskrá og af því að við erum allar búsettar í Berlín þá erum við búnar að flytja hana nokkrum sinnum þar. Okkur langaði síðan að taka þessi lög upp og koma þeim út á geisladisk, því mörg þeirra voru ekki til á nótum áður en Atli útsetti þau og hljómsetti.“ Kabarettstíllinn varð til þess að ákveðið var að hafa gamalt „sánd“ á disknum. „Við tókum hann upp hjá Kjartani Sveinssyni í Sundlauginni í Mosfellsbæ upp á gamla mátann, með segulböndum og gömlum hljóð- nemum. Hanna Dóra fékk því að syngja í eins hljóðnema og Billie Holiday notaði. Þannig fengum við þennan skemmtilega eftirstríðshljóm, sem er mýkri og allt öðruvísi en tækni nútímans býður upp á.“ Freyja segir þær stöllur hafa skemmt sér konunglega við upptökurnar, enda ekki á hverjum degi sem klass- ískmenntað tónlistarfólk fái tækifæri til að spreyta sig á slíkri tónlist. „Það er mjög krefjandi, en á annan hátt, fyrir okkur að spila svona frjálsa tónlist, ekki síst fyrir Hönnu sem er menntuð óperusöngkona. Hún þarf að beita röddinni allt öðruvísi en venjulega. Við tókum okkur góðan tíma í að prófa okkur áfram en fyrr en varði var Hanna farin að hljóma svipað og Ellý Vilhjálms og ég eins og vælandi djassklarínettuleikari. Það var mjög skemmtilegt fyrir okkur að fá að sleppa aðeins fram af okkur beislinu.“ Man eftir afa, syngjandi með gítarinn Og ekki spillir fyrir í Freyju tilfelli að um er að ræða lög afa hennar. „Ég er mjög þakklát Atla Heimi fyrir að gera þessar útsetningar því þetta eru lög sem mér þykir afskaplega vænt um. Ég hef sungið þau frá blautu barns- beini og alist upp með þeim því þótt ég hafi verið lítil þegar afi dó man ég vel eftir honum, syngjandi með gít- arinn.“ Lögin eiga sér þó ekki síður sess í hjarta þjóðarinnar. „Þetta eru lög sem allir þekkja, eins og „Ég veit þú kem- ur“, sem er eftir Oddgeir en afi á textann, „Maja litla“ og „Sólbrúnir vangar“. En við tökum líka lög sem hafa ver- ið minna sungin, t.d. lög sem afi gerði við texta annarra skálda, s.s. „Kysstu mig sól“, sem er við texta Guð- mundar Böðvarssonar og er í svolítið öðrum stíl. Síðan eru skemmtisöngvar, eins og „Trillumenn“ og „Anna Marí“, sem eru meira í ætt við gamanvísur.“ „Nýja“ lagið er hins vegar tangó, sem talinn er vera frá árinu 1931, og sennilega elsta lagið eftir Ása í Bæ sem varðveist hefur. „Á upptökunni syngur afi lagið og spilar undir á gítar. Bæði lag og texti er eftir hann en hann samdi ógrynni af tækifærisvísum, gjarnan þegar hann var á innstíminu, að koma heim af sjónum. Þá slakaði hann á með því að setjast niður með gítarinn og raula og þannig samdi hann margar vísur, sem gjarnan gleymd- ust jafnóðum.“ Með nýja geisladisknum, „Hugsaðu um búskapinn, hættu að daðra …“, leggja þær Freyja, Hanna Dóra og Daníela sitt lóð á vogarskálarnar til að lög þeirra Ása og Oddgeirs varðveitist. Til að fylgja honum úr hlaði halda þær útgáfutónleika í vikunni, þá fyrstu eins og vera ber í Vestmannaeyjum nú um helgina, aðra í Félagsheimili Seltjarnarness á miðvikudag og í Slippsalnum á Mýr- argötu á föstudag. Daníela, Freyja og Hanna Dóra í kabarettstemningu, en myndin fyrir neðan er af Oddgeiri (t.v.) og Ása og var tekin á kabarettskemmtun sem þeir settu upp 1933 eða ’34. Samdi gjarnan á innstíminu ’ ...þegar hann komst í virkilegt stuð endaði hann gjarnan síð- asta hljóminn á ægilega glæsi- legri handahreyfinu, sem Atli skrifar inn í klarínettnóturnar. Kabarettstemning eftirstríðs- áranna er ríkjandi á nýjum geisladisk sem inniheldur lög og texta Ása í Bæ og Oddgeirs Kristjánssonar í útsetningum Atla Heimis Sveinssonar. Sonardóttir Ása er meðal þriggja flytjenda á disknum. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.