SunnudagsMogginn - 31.10.2010, Page 36
36 31. október 2010
Í fræðslumiðstöð Enza verður skapandi starfsemi í boði, til að mynda perluskreytingar.
’
Ég vil ekki reyna að breyta samfélaginu sem
konurnar búa í heldur einbeita mér að því
að beina þeim á braut sjálfsbjargar og sjálf-
stæðis. Fá þær til að spyrja sig hvernig þær geti
breytt eigin lífi við þær aðstæður sem þær búa við
Helgina 11. til 12. september mættu 119 sjálfboðaliðar á öllum aldri og unnu á vöktum frá
morgni til kvölds við fræðslumiðstöð Enza, meðal annars við að setja upp innréttingar,
mála, smíða, hreinsa og leggja rafmagn. Þá var gróðursettur matjurtargarður með trjám, en
ætlunin er að kenna garðyrkju og ræktun matjurta í fræðslumiðstöðinni. Næsta sumar mun
bandarískur háskóli, Williams College í Massachusetts, veita styrk fyrir ferðum og uppi-
haldi nokkurra nemenda, sem koma sem sjálfboðaliðar og starfa fyrir Enza næsta sumar.
Ekki er hægt að greina frá nöfnum þeirra sem Enza hefur
skotið skjólshúsi yfir, en Ruth getur lýst aðstæðum nokk-
urra af þeim konum sem þangað hafa leitað.
Ung kona, sem er 21 árs, var sjö ára þegar móðir hennar
og bróðir voru myrt. Hún ólst upp hjá föður sínum, sem var
eiturlyfjasali, þau höfðu hvergi fasta búsetu og lifðu eins og
flækingar. Formlegri skólagöngu hennar lauk við níu ára
aldur en 16 ára varð hún ófrísk eftir kærasta sinn og þau
eignuðust heilbrigðan dreng. Þegar drengurinn var tveggja
ára, urðu þau þrjú fyrir árás þar sem drengurinn hennar og
barnsfaðir voru bæði myrt, en hún slapp, alvarlega slösuð.
Hún fór að neyta eiturlyfja og fékk vinnu sem súludansmær
á nektarstað, til að sjá sér farborða. Eitt kvöld eftir vinnu
var hún elt af hópi viðskiptavina staðarins, sem nauðguðu
henni allir. Í kjölfarið varð hún þunguð og leitaði aðstoðar á
sjúkrahúsi þar sem henni var vísað á félagsráðgjafa sem
starfar með Enza. Hún gat ekki hugsað sér fóstureyðingu
og valdi að gefa ófætt barnið til ættleiðingar. Hún þráir að
mennta sig og komast út úr aðstæðum sínum. Hún mun
fara í ABET-þjálfun þegar fræðslumiðstöðin verður opnuð,
en það stendur fyrir grunnmenntun og þjálfun fullorðinna.
Stúlka sem er 14 ára er ófrísk eftir nauðgun. Fjölskylda
hennar er mjög fátæk og foreldrarnir báðir atvinnulausir,
hún á sex yngri systkini. Móðir hennar er sú eina í fjölskyld-
unni sem veit af þunguninni og hún skammast sín mikið
fyrir að dóttir sín sé ófrísk utan hjónabands og ásakar hana
fyrir það. Ekki kemur til greina að bæta við barni á heimilið
þar sem þau eiga vart til hnífs og skeiðar. Hún hefur ákveð-
ið að gefa barnið til ættleiðingar, og dvelur nú á heimili fyrir
þungaðar stúlkur sem ákveðið hafa að gefa frá sér barn
sitt. Hún hefur nú lært undirstöðuatriðin í tölvuvinnslu, þrá-
ir að komast í skóla og mun Enza aðstoða hana við að láta
þann draum rætast.
Stúlka sem er 16 ára er ófrísk eftir sinn eigin föður.
Hann hefur misnotað hana frá átta ára aldri. Stjúpmóðir
hennar er henni afar reið og segir að hún hafi tælt manninn
sinn. Hún hefur þegar gefið barnið til ættleiðingar og hefur
verið í kennslu hjá Enza.
Hún er 20 ára, móðir tveggja barna, fimm og þriggja ára,
og formlegri skólagöngu hennar lauk þegar hún var 11 ára.
Hún á ekki foreldra á lífi og hefur ekkert stuðningsnet.
Mamma hennar, sem var með alnæmi, dó á meðan hún
var á sjúkrahúsi að eiga fyrra barnið þar sem enginn var til
staðar til að gefa henni lyfin á meðan, en það hafði verið
hennar hlutverk. Hún er dugleg og ákvað að halda báðum
börnum sínum, hún stundar illa launaða vinnu og bæði
börnin eru í NorSA-skólanum. Hún býr við afar kröpp kjör í
kofa án vatns og rafmagns. Hún er ákaflega vel gefin ung
kona og þráir að rífa sig upp úr fátæktinni. Hún stundar
nám í fræðslumiðstöð Enza.
Kona sem er 29 ára, gift tveggja barna móðir. Eig-
inmaður hennar stundar illa launaða stopula vinnu og þau
búa við afar þröngan kost, í bárujárnskofa án rafmagns og
rennandi vatns. Hún er mjög spennt fyrir fræðslumiðstöð
Enza, sem er í hverfinu, og er ákveðin í að koma og læra
eitthvað nytsamlegt svo hún geti öðlast fjárhagslegt sjálf-
stæði.
Kona sem er 35 ára einstæð móðir þriggja barna og býr í
hverfinu. Hún er atvinnulaus og börnin hennar ganga í skól-
ann sem NorSa rekur. Hún ætlar að læra að sauma í
fræðslumiðstöð Enza.
Nánari upplýsingar um starf Enza má nálgast á vefsíð-
unum enza.is og enza.za.org.
Konur sem sækja sér styrk
sínu, þannig að þær geti orðið sáttir og
nýtir þjóðfélagsþegnar án þess að flosna
upp úr eigin samfélagi. Ég vil ekki reyna
að breyta samfélaginu sem konurnar
búa í, heldur einbeita mér að því að
beina þeim á braut sjálfsbjargar og sjálf-
stæðis. Fá þær til að spyrja sig hvernig
þær geti breytt eigin lífi við þær að-
stæður sem þær búa við,“ segir Ruth.
Ruth segir að sér verði oft hugsað til
orðtaksins að hjörtun slái eins í Súdan
og Súðavík. Það eigi svo vel við í Enza-
starfinu vegna þess að í grunninn séu
allar manneskjur eins, þó að aðstæður
þeirra séu ólíkar. „Suðurafrískt þjóð-
félag er margbrotið og má segja að í
landinu búi margar ólíkar þjóðir. Til að
mynda eru hér ellefu opinber tungumál.
Eins og allir þekkja á þetta fallega land
sér sorglega sögu um aðskilnaðarstefnu
kynþátta en nú eru tuttugu ár síðan sú
stefna leið undir lok og ekki sanngjarnt
að kenna henni um allt sem miður fer í
samfélaginu í dag. Samt sem áður er það
staðreynd að hún ól af sér menningu
sem ýtti undir ýmis samfélagsmein, sem
bitna ekki síst á lægst settu konunum í
samfélaginu. Þessar konur sitja margar
eftir og hafa ekki náð að byggja brú yfir
í þau tækifæri sem þeim kunna að bjóð-
ast. Ástæður þessa eru meðal annars
djúpstæð samfélagsleg kvennakúgun og
fátækt, sem standa eins og ljón í vegi
þeirra til að ná að þroska sig og
mennta,“ segir Ruth.
Einu hjálparsamtök sinnar tegundar
Enza eru einu samtökin sem vitað er um
í heiminum sem markvisst hjálpa kon-
um sem neyðst hafa til að gefa frá sér
barn til ættleiðingar, sem er sér í sjálfu
sér sérstakt. Einkum þegar haft er í
huga hversu margir vilja ættleiða börn.
Einhverra hluta vegna velta fæstir fyrir
sér afdrifum móðurinnar og virðist hún
oft alveg gleymast. Ruth segist vera
óendanlega þakklát öllu því frábæra
fólki sem hefur lagt sig fram við upp-
byggingu Enza, bæði á Íslandi og í Suð-
ur-Afríku. „Án þess hefðu þessi samtök
ekki orðið að veruleika og vegna alls
þessa góða fólks getur Enza haldið áfram
að breyta lífi fátækra kvenna í Suður-
Afríku og skapa þeim tækifæri til sjálfs-
bjargar svo þær geti orðið fyrirmynd
annarra kvenna í samfélagi sínu. Ég ber
mikla virðingu fyrir suðurafrísku sam-
félagi, fegurð þess, margbreytileika og
ólíkum hefðum. Ég er afar þakklát fyrir
að lífið hefur gefið mér tækifæri til að
láta gott af mér leiða einmitt hér á þess-
um stað. Það tækifæri vil ég nýta eins
vel og mér er framast unnt,“ segir Ruth
að lokum.
Ruth Gylfadóttir og eiginmaður hennar Kolbeinn Kristinsson una sér vel í Suður-Afríku með
synina Martein (t.v.) og Kristin Albert og hundinn Krúsa.