Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Side 20
146
NÝJAR KVÖLDVÖKUR.
hírðmeyjunum, þegar á ætti að herða, hún og
stöllur hennar höfðu of oft sloppið út úr ýms-
um brellum við hirðina og þó þetta umrædda
tiltæki þeirra hefði haft miklu alvarlegri afleið-
ingar en búist hafði verið við, þóttist hún viss
um að alt mundi jafnast, einkum þar sem drotn-
ingin sjálf var samsek þeim og eiginlega frum-
kvöðuli að öllu saman. Svo þegar hún hafði
gefið konungi skýrslu sína mjög óðamála og
hálf hrædd, hljóp hún eins og hind til drotn-
ingarinnar með þau skilaboð frá konungi að
hann mundi innan skamms koma til viðtals
við hennar hátign. Hún hikaði eigi við að
fullvissa drotninguna um, að konungur væri
nú hinn spakasti og 'ef' hún sýndi einhver iðr-
unarmerki og bæði hann afsökunar mundi hann
fyrirgefa þetta glens þeirra og málið falla niður.
»Svo veðrið hefir snúið sér þartnig,« sagði
drotningin, sem hughreystist við þessar fréttir.
»Og verið vissar um að þótt konungurinn sé
slunginn hershöfðingi verður erfitt fyrir hann
að króa okkur af í þessu máli. Pað er til mál-
tæki í föðurlandi mínu sem hljóðár svo: «Ýms-
ir fara í ullarleit, en verða sjálfir kliptir.*
Síðan bjó drotnir.g sig sem best hún kunni
og beið svo konungs örugg og ókvíðin.
Regar konungurinn kom í tjald drotning-
arinnar komst hann brátt að raun um, að það
var komið fyrir honum eins og höfðingja, sem
kemur inn í land, þar sem honum hefir verið
sýnd óhlýðni og heldur að "hann hafi eigi ann-
að að gera en bera fram ásakanir og þeim
vérði svarað með lolningu, afsökunum og frið-
arbeiðni, en sér til undrunar og angurs hittir
hann þegnana þóttafulla og ásakandi. Bereng-
ariu drotninguvar eigi ókunnugt um vald feg-
urðar sinnar og hið mikla dálæti, sem Ríkarð-
ur hafði á henni. Hún var í engum vafa uin,
að hún mundi ná bestu friðarkostum, þar sem
fyrsta skruggan var liðin hjá, án þess að hafa
haft alvarlegar afleiðingar. Hún vildi því eigi
hlusta á neinar ásakanir eða aðfinslur, sem hún
hefði verðskuldað fyrir galsa og léttúð. Rvert
á móti réttlætti hún aðfarir sínar sem saklaust
spaug og varði þær með kvenlegri mælsku og
orðgnótt. Með ýmsum vafningum og vífilengj-
um neitaði hún að hafa látið tæla riddarann
inn í tjald sitt. Hún hefði einungis sagt við
dverginn í gamni að hann gæti reynt að tæla
riddarann ofan fyrir hæðarbrekkuna. Petta var
að Jjví leyti satt, að hún hafði eigi lagt fyrir
dverginn að koma með riddarann til tjalds síns.
Pótt drotningin verði sig með mikilli málsnild,
var hún enn snjallari þégar hún sneri sér að
því, að áfella konunginn fyrir hörku hans og
ósveigjanlegleik. Hún lagði snildarlega út af
því, að hann skyldi geta- fengið af sér að neita
sér um ekki stærri greiða en lífgjöf ótígins
riddara, sem fyrir græskulaust gaman hennar
hefði fyrir ófyrirsjáanleg atvik fyrirgert lífi sínu
væri strangasta herrétti beitt. Hún stundi og
tárfeldi meðan hún útmálaði harðýðgi manns
síns, sem vel hefði getað gert hana að óláns-
manneskju alla æfi, í hvort sinn og sú end-
urminning hefði vaknað hjá henni, að hún o-
viljandi hefði orðið orsök í dauða ungs manns,
Skuggi hins hálshöggna mundi hafa ógnað
henni í svefni og ef til vill í vökunni — sem
væri svo algengt mundi svipur hans ef til vill
hafa birst sér ógnandi. Sálarangrið mundi hafa
pýnt hana og Jcvalið dag og nótt, alt fyrir hina
ósveigjanlegu hörku manns hennar. Hann léti
sem hann ynni sér mjög, en vildi þó ekki fyr-
ir hennar orð sleppa vesælli hefnd yfirvarnar-
lausum afbrotantanni, þótt hann ætti á hættu
að gera hana ólánssama alla æfi með hörku
sinni.
Ressum orðastraum fylgdu svo tilhlýðilega
mikið af tárum og andvorpum til þess að gera
áhrifin sem kröftúgust. Hreimurinn í ræðu
drotningar lýsti þvf þó fremur, að gremja henn-
ar væri meir sprottin af særðri hégómagirni
því, hvað hún mætti sín Iítils lijá konungi
yfir því heldur en af drambi eða mikillæti.
Konungur komst í hin mestu vandræði.
Hann sá þegar að skynsamlegar röksemdir
myndu engin áhrif hafa og hann gat ekki feng-
ið af sér að vera höstugnr eða beita harðneskju
við konu sína, sem þrátt fyrir alla ósanngirrii
og ádeilur var svo fögur að hún hlaut að vekja