Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 22

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 22
148 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. umræðurnar, enda fann hann að móttakan var fremur kuldaleg. »Vor fagra frænka,« sagði hann um síðir> »er líklega reið við oss, og vér viðurkennum, að það er nokkur ástæða til að svo sé. Und- arlegur og fágætur atburður hefir vakið hjá oss órjettlátt hugboð um, að hún hafi gert sigseka í því framferði, sem vér eigum ekki að venjast af henni. En meðan vér skammsýnir menn ferðumst íheimsinstáradal verður ossþað stundumað villast á skugganum og frummyndinni. Getur mín fagra frænka ekki fyrirgefið sínum nokkuð bráð- lynda frænda, Ríkarði?* »Hver mundi getað neitað Rikarði um fyr- irgefning þegar hann getur fengið hana hjá konungnum,« sagði Edith. »Heyrðu nú, frænka, taktu þetta mál nú ekki svona hátíðlega. Það veit María mey, að þegar þú setur upp hatíðlegan sorgarsvip og berð þessa dökk blæju yfir þér og annan sorgarbúning, kemur manni ósjálfrátt í hug, að þú sért nýlega orðin ekkja, eða að minsta kosti hafir mist heitbundið brúðgumaefni, Hristu af þér alla hugsýki og vertu örugg og kát. Þú hlýtur að hafa heyrt, að þau urðu málalokin, að þú hefir enga sérstaka ástæðu til að syrgja eða bera sorgarklæði. »Eg syrgi hina týndu æru Plantagenets, sem horfin er frá húsi feðra minna.* Konungur hnyklaði brýrnar, og hafði eftir: »Týnd æra, sem vikin er frá húsi feðra vorra. Ef til vill er eigi með öllu ástæðulaust, að frænka vor við hafi slík stóryrði. Eg hefir dæmt hana helst til fljótfærnislega, svo henni mun þykja eg hafa verðskuldað að fá strang- an dóm. En að minsta kosti ættir þú að skýra mér frá í hverju eg er brotlegur.* »Einn af höfuðhlinum Plantagenets-ættarinnar hefði annaðhvort átt að fyrirgefa afbrot eða þá að hegna fyrlr það réttlátlega,* sagði Ed- ith. Hitt er ósæmilegt að svifla frjálsan mann, hraustan og kristinn riddara, frelsi sínu og selja hann í þrældóm til hinna vanirúuðu. Að dæma hinn ógæfusama riddara tiÍ dauða var afarhart en hafði þó á yfirborðinu skyn af réttlæti, en að dæma hann í útlegð og þrældóm er hreint og beint illmannlegt,* »Jæja þá, fagra frænka! Eg héyri á orðum þínum, að þér finst fjarverandi elskhugi alveg glataður eða sama sem dauður, en vertu ein- ungis þolinmóð, ein tylft hraustra drengja geta sótt hann einn góðan veðurdag, svo óvíst er að nokkur skaði sé skeður. Vera má að hann beri með sér leyndarmál, sem sé þannig var- ið, að heppilegra væri að lífláta hann en hafa hann í útlegð.« »Hættu þessum óþarfa dylgjum,* sagði Edith, sem orðin var blóðrjóð í andliti. »Tak þú heldur til athugunar að þú í hamslausri bræði hefir svift vort mikla málefni ágætri að- stoð. Hrifsað frá krossinum einn af hans hraustustu hermönnum og ofurselt til heiðing- janna heiðvirðan og falslausan herrans þjón og að síðustu gefið átyllu til að vekja óþarfan grun gegn sjálfum þér. Væri fólk eins tor- tryggið og þú sjálfur hefir reynst út af þessu óheppilega máli, kynni því að koma til hugar, að kappinn Ríkarður hefði rekið í útlegð hinn hraustasta og vopnfimasta hermann í liði sínu, af því hann hafi óttast að vopnafrægð hans mundi skyggja á eða jainvel yfirstíga hans eig- in frægð.« »Eg öfundsjúkur yfir annara hreysti!« hróp- aði konungur í æstu skapi. »Eg ætti að vera öfundsjúkur yfir annara hreystiverkum. Heyr fyrn og endemi! Væri hann hér, væri eg þess albúinn að reyna við hann. Eg væri sannar- lega reiðubúinn að leggja niður krúnu og kon- ungsveldi um stund og mæta honum á hólmi svo kunnugt gæti orðið, hvort Ríkarður Ijóns- hjarta hefði ástæðu til að óttast nokkurn dauð- legan mann eða öfunda hann af hreysti og karlmensku. En heyrðu mig, frænka góð. Pér mun; heldur eigi vera alvara, með það, sem þú ert að segja. Vertu ekki óréttlát gagnvart frænda þínum, þótt þú kunnir að vera reið og harmþrungin, útaf fjarveru elskhuga þíns; hversu einræn sem þú ert, þá met eg nafn þitt og mannorð jafnmikils og nokkurs annars manns.«
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.