Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 23

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 23
KYNJALYFIÐ. 249 »Þú talar um fjarveru elskhuga míns,« svar- aði Edith, »jæja, hann má vel kallast elskhugi minn, svo dýrt hefir honum orðið það nafn. Hversu lítið, sem eg kann að hafa verðskuldað aðdáun hans, mun eg þó hafa verið sústjarna, sem hvatti hann til að sækja fram á hinum giæsilega vegi riddarareglunnar. En að eg hafi gleymt kröfu þeirri og skyldum, sem staða mín og ætt leggur mér á herðar, eða hann hafi verið nærgöngulli en hverjum fræknum riddara sæmdi, er ósatt, enda þótt það væri konungurinn, sem segði s!íkt.« »Kæra frænka, leggðu mér eigi þau orð í munn, sem eg hefi eigi viðhaft. Eg hefi ekki sagt, að þú hafir sýnt riddara þessum meiri hylli, en hver hraustur riddari getur unnið sér, jafnvel hjá prinsessu og án lillits til ætt- ar sinnar. En það veit María mey, að eg þekki ofurlítið þessi ástarumhrot, sem byrja með þegjandi lotningu og ýmsum aðdáunartáknu.n en smátt og smátt, eftir því, sem tækifæri gef- ast, eykst traustið og tiltrúin á báðar hliðar, og svo . . . . en það er gagnslaust að tala um þelta við hana, sem heldur sig hyggnari en alla aðra.« »Eg hlusta fúslega á ráðleggingar frænda míns,« sagði Edith, séu þær eigi særandi fyrir stöðu mína og lífsskoðun.* »Fagra frænka, annars er konungum gjarn- ara að gera fyrirskipanir en gefa ráð.« »Já auðvitað,* svaraði Edith. »Soldáninn t. a. m. skipar, en það kemur af þvf að hann ríkir yfir þrælum og ófrjálsum mönnum.« »Hægan frænka! Þú ættir ekki að tala með slíkri fyrirlitningu um soldáninn, þar sem þú hefir þó skotskan riddara í svo miklum hávegum,* sagði konungur. »PvíeftirminnireynsIuérSaladín orðheldnari enþessi VilhjálmurSkotakongur, sem lætur kenna sig við Ijónið. Pessi höfðingi hefur sannarlega gert sig sekan í freku broti á tiltrú og heitorðum með því að senda mér eigi hjálpar- |ið það, sem hann hafði heitið mér. Taktu eftir orðum mínum, frænka: Sá tími kann ef til vill að koma, að þú kjósir þér trúlyndan Tyrkja fremur en ótryggan Skota.« »Sá tími mun aldrei koma, og eigi einu sinn þótt svo furðulegir atburðir yrðu, að Ríkarður frændi kastaðj kristinni trú og tæki upp trú Múhamedsmanna, sem hann fór í leiðangur til þess að hrekja úr Iandinu helga.« »Mér dylst það ekki, að þú vilt hafa síðasta orðið,* sagði konungur, »þú mátt ímynda þér hvað sem þú vilt um breytni mína og þær hvatir sem henni ráða. F*ó mun eg aldrei gleyma því, Edith litla, að þú ert mér nákom- in og kær frænka.« Síðan kvaddi hann kurteislega, en enganveg- inn var hann ánægður með árangurinn af heimsókn þessari. Rað voru liðnir 4 dagar frá því Kenneth riddari var sendur á brott með lækninum úr herbúðunum; þá sat Ríkarður konungur um kvöldstund í tjaldi sínu og naut hressingar af hinni svölu vcstangolu, sem hann lét streyma gegnum tjaldið, og var sem hún færði honum kveðju frá gamla Englandi. Heilsa konungsins fór dagbatnandi og þrek hans og styrkur var nú orðinn sá saini og fyrir veikindin, enda veitti honum eigi af því, ætti hann að geta komið í framkvæmd hinni risavöxnu fyrirætlun sinni. Umrætt kvöld sat hann einn í tjaldi sínu, því hann hafði sent Tómas barón til Askalon til þess að sækja ýms hergögn, og margir af herforingum hans voru við ýmsar annir bund- nir í tilefni af því, að ófriðurinn skyldi von bráðar byrja aftur, og meiriháttar hermanna- sýning átti að fara fram daginn eftir. Konung- ur sat og hlustaði á hamraslögin frá vopna- smiðjunum, þar sem verið var að gera við og smíða herklæði, hestajárn og fleira er til hermanna útbúnaðar heyrði. Dátar, sem voru á ferð hér og hvar, voru kátir og sungu við raust af glaðværð. Það leyndi sér ekki, að all- ir voru hinir öruggustu og mundu hafa vissa von um sigurvinninga hið bráðasta. Meðan konungur með mikilli ánægju hiust- aði á þennan són og sökti scr ofan í þægi- lega drauma um sigurvinninga og væntanlega
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.