Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 31

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1918, Qupperneq 31
KYNJALYFIÐ. 157 sakir út af broti, sem allir nú í sameiningu vilja bæta fyrir. Eg leyfi mér að hafa þá skoð- un, að ef yðar hátign breytir þannig, þá er það brot á þeim heitum, sem þér gerðuð á ráðstefnu krossfaranna.* »Heyrðu, Neville,« hrópaði konungur byrst- ur. »Ákafi þinn gerir þig fífldjarfan og ókurt- eisan. Eg hefi aldrei lofað neinu um það, að eg mundi eigi neyta þeirra meðala sem eg hefði ráð yfir, til þess að finna bófa þann, er' svo freklega gerði mér svívirðing. Fremur en að gefa slík loforð, mundi eg hafa afsalað mér ríki og látið lífið. Pað sem eg lofaði í ráðinu var með þeim nauðsynlega og skýra fyrir- vara. Eg tók skýrt fram, að ef hertogi Austur- ríkis hefði þá viðurkent sekt sína, eins og drenglyndur maður, mundi eg sakir kristninn- ar hafa fyrirgefið honum. 0ðru hefi eg eigi lofað í þessu máli.* »En yðar hátign, getur þó aldrei vitað nema þessi svertingi, sem þykist vera göldrótt- ur, gabbi yður.« »Pú talar eins og þér er gefið vit til, Ne- ville. F*ú heldur þig vera speking að viti, en ert þó frernur einfaldur. En nú verður þú að muna fyrirskipanir þær, sem eg hefi lagt fyrir þig viðvíkjandi svertingjanum. Og þú mátt vera viss um, að í honum er meiri maður en þitt herforingjahöfuð getur reiknað út. — Og þú minn svarti mállausi vinur, bú þú þig undir að framkvæma það verk, sem þú hefir tekist á hendur, og mitt konunglega orð gef eg fyrir því, að hepnist það, mátt þú sjálfur velja laun- in. En horfðu á, nú er hann aftur farinn að skrifa.* Svertinginn skrifaði nokkur orð á bókfell og fékk konungi, með sömu lotningartilburðum og fyrra blaðið. Á blaðinu stóðu nú þessi orð: »Konungsins vilji eru lög þjóns hans, það er ekki sæmilegt fyrir hann, að krefjast launa fyrir að gera skyldu sína.« >Laun og skylda,« hafði konungur eftir undrandi, þetta voru algeng orð höfð meðal riddara. Svo sneri hann sér að Neville og mælti á ensku: »Pessir Austurlandabúar færa sér vel i nyt að umgangast krossfarana, því svo er að heyra sem þeir læri að viðhaía orð og setningar, sem algeng eru innan riddara- reglunnar, en nú bregður honum og væri hann eigi eins biksvartur og hann er, mundi roðinn sjást aukast í kinnum hans. Það skyldi því ekki undra mig, að hann hafi skilið hvað eg sagði, Peir hafa mikla hæfileika til að læra mál sumir Auslurlandabúarnir.* »Honum brá bara af því, að yðar hátign leit á hann ransóknaraugum,« svaraði Neville. »Getur verið,« svaraði konungur. »Fn hér er meira um að vera, vor svarti vinur er svo djarfur að tilkynna oss, að hann hafi skilaboð frá Saladín til Edith prinsessu og biður um leyfi og tækifæri til að fá að flytja þau. Hvern- ig líst þér á þá bæn hans, Neville?* . »Eg vil engar getur að því leiða, hvernig yðar hátign tekur slíkri ósvinnu, en hitt er mér Ijóst, að færi einhver með slík skilaboð til soldáns frá yður, mundi sá umsvifalaust missa kollinn.« »þá má eg þakka hamingjunni fyrir, að eg óska eigi eftir að kynnast neinni af hans sól- brendu blómarósum,* sagði konungur. »En á hinn bóginn get eg ekki séð, að svertinginn geti að því gert, að herra hans hafi fálið hon- um þennan erindisrekstur, og finst mér því eigi réttlátt að hegna honum fyrir það, og því síður viðeigandi, þar sem hann hefir nú í kvöld frelsað líf mitt. — Annars skal eg trúa þér fyrir leyndarmáli, Neville, sem snertir mig ó- þægilega. Eg tel hættulaust þótt svarti þjónn- inn heyrði til mín, því hann getur ekki haft neitt eftir þótt hann skildi eitthvað af því sem eS segi, sem raunar er alveg óCíst. Svo er þá mál með vexti, að síðasta hálfa mánuðinn hefi eg verið háður einhverju ósýnilegu töfra- valdi, sem eg þó gjarnan vildi vera laus við. Fyrst má geta þess, að jafnskjótt og einhver hefir gert mér mikilvægan greiða, þá dregur hann þegar úr þakklætistilfinning minni og umbunarhvöt með því að móðga mig gífur- lega. í öðru lagi fer það svo — sem er engu síður undarlegt — hafi einhver bakað sér
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.