Ný saga - 01.01.2000, Síða 27

Ný saga - 01.01.2000, Síða 27
Verkið sem tókst að vinna Hjalti Hugason Gunnar F. Guðmundsson Frásagnarháttur Kristni á íslandi hefur fremur samstætt yfir- bragð eftir því sem efni og heimildir leyfa. Enginn höfundanna skrifar illa, og enginn sýnir sérstök eða sérkennileg lilþrif í stíl htíldur. Ég sakna þess jafnvel að sjá ekki svo- lítið meira af þeim sérstæða stíl sem Þórunn Valdimarsdóttir lileinkaði sér þegar hún skrifaði bók sína um Snorra prest á Húsafelli. Kannski hefur Þórunn hamið sig (eða verið hamin) helst til mikið til þess að saga hennar skæri sig ekki úr heildinni. Einna bestur finnst mér texti Gunnars F. Guðmundssonar. Hann er hraður og umbúðalaus, án þess að vera nokkru sinni óþægilega samanþjappaður, ein- l'aldur og tilgerðarlaus, og þó er eins og votli fyrir húmor undir niðri. Lesið þið til dæmis inngangskafla hans á bls. 7-9 og takið eflir því hvernig hann fléttar þekktum biblíutilvitnun- um inn í mál sitt og skýrir þannig á sáraein- faldan hátt kenningargrunninn undir valdatil- kalli kirkjunnar. Gunnar iðkar líka með góð- um árangri þá list, sem Þórunn beitli mikið í bókinni um séra Snorra, að láta almenna siði birtast í einstaklingsbundinni frásögn. Þar má aflausn er fléttað inn í frásögn af deilum Guðmundar biskups Arasonar og leikmanna (II, bls. 56-62). Fræðileg varkárni er vissulega aðal þeirrar sagnfræði sem hér er stunduð, en hún er óhjá- kvæmilega vandmeðfarin í yfirlitsriti. Sérstak- lega í elstu sögunni finnst mér Hjalti Hugason stundum jaðra við að drepa frásögn sinni á Loftur Guttormsson Þórunn Valdimarsdóttir dreif í fyrirvörum og varkárni. Dæmi má taka af samskiptum hans við Ara fróða. I inngangi er varnöglum neglt svo þétt að efnið þolir það tæpast (I, bls. 11): „Elsta frásagan af þessum atburðum, Islendingabók Ara fróða, gelur að mörgu leyti talist alltraust heimild um suma þætti trúarbragðaskiptanna, einkum kristnitökuna sjálfa." Þegar Hjalti endursegir kristnitökufrásögn Ara bendir hann þó á að hún minni á frásögn Þorgils sögu og Hafliða í Slurlungu af deilurn þeirra á Alþingi árið 1121 og telur „alls ekki ólíklegt að hann [Ari] hafi gert ráð fyrir að átökum liafi verið afstýrt með svipuðum hætti á kristnitökuþinginu." (I, bls. 88) Enn síðar ræðir Hjalti túlkun Ara á kristnitökunni, ber þar aftur saman við Þor- gils sögu og Hafliða, en segir þar: „Ekki má gera of rnikið úr þeim áhrifum sem átök þeirra Þorgils og Hafliða ... kunna að liafa haft á kristnitökusögu íslendingabókar. Til þess er saga þeirra of ung.“ Þó gefur hann enn í skyn „að Ari lýsi lyktum málsins að einhverju leyti með hliðsjón af sáttum þess- ara höfðingja...“ og þannig sé kristnitökufrá- sögnin saga til að læra af (I, bls. 115-16). Nú mætti ímynda sér að það gæti farið vel í yfirlitsriti að varpa fram hugmyndinni um að deilur Þorgils og Hailiða væru fyrirmynd Ara að kristnitökusögu hans, án þess að laka nokkra ábyrgð á að hugmyndin sé rétt. Eins og Hjalti drepur á er megingallinn sá að Þor- gils saga og Hafliða er svo óáreiðanleg, og því gæti hún eins verið mótuð af krislnitökusögu Ara. En hugmyndin, þótt snjöll sé, stendur Pétur Pétursson Fræðileg varkárni er vissulega aðal þeirrar sagnfræði sem hér er stunduð 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.