Birtingur - 01.01.1957, Page 59

Birtingur - 01.01.1957, Page 59
sem og frönsku stjórninni felst í einu orði: sannleika. Þar, sem hann sigrar, er glæpurinn óhugsandi. Þar, sem hann lýtur í lægra haldi, getur ekki orðið neitt réttlæti, enginn friður, ekkert frelsi. Jean-Paul Sartre, Vercors, Claude Roy, Roger Vailland, Simone de Beauvoir, Michel Leiris, Jacques-Francis Rolland, Louis de Villefosse, Janine Bouissounouse, Jacques Prévert, Colette Audry, Jean Aurenche, Pierre Bost, Jean Cau, Claude Lanzmann, Marcel Péju, Promides, Jean Rebeyrolle, André Spire, Laurent Sohwartz, Claude Morgan. Bréf ráðstjórnarrithöfunda. Við vonum að þið sjáið um, að svar okkar verði birt í Frakklandi í sama blaði og þið birtuð yfirlýsingu ykkar. Og nú skulum við ræðast við af hreinskilni og einlægni. Það er sérstaklega nauðsynlegt á slíkri örlagastund í sögu mannkynsins. Þið segizt krefjast sannleika. Ágætt, við skulum leita hans. Það er satt, að atburðir þeir, sem gerzt hafa í Ungverjalandi, eru alvarlegir og hörmulegir. En þið sjáið aðeins eina hlið á atburðunum. Þið talið einungis um afskipti ráðstjórnarhers af þessum atburðum, enda þótt það hafi ekki getað hulið fyrir ykkur aðra atburði, sem gerzt hafa í heiminum. Þið óskið þess að vita sannleikann, og af þeirri ástæðu frábiðjið þið ykkur tækifærissinnaða stjórnmálamenn, sem nú mótmæla þátttöku ráðstjórnarhersins í atburðunum í Ungverjalandi, ,,þá, sem þögðu — ef þeir þá fögnuðu ekki —, þegar Bandaríkin kæfðu í blóði það frelsi, sem náðst hafði í Guatemala“, og þér neitið að þeir hafi rétt til að mótmæla, „sem fagna hástöfmn Suez-aðgerðunum“. Við endurtökum, að við sjáum á þessum orðum, að þið viljið vita sannleikann. En þegar við nú snúum okkur að viðburðunum í Ungverjalandi og afstöðu ykkar til þeirra leyfum við okkur að segja: Ykkur skjátlast! Þið vitið ekki allan sannleikann! Ungverska þjóðin var óánægð með ástandið í landinu. Eftir ályktanir 20. flokksþingsins, sem fengu góðar undirtektir hjá öllum kommúnista- eða verkamannaflokkum, þar á meðal ungverska verkamannaflokknum, sýndu ungverskir valdhafar ekki vilja til að afnema svikalaust þau brot gegn sósíalisku lýðræði, gegn sósíalisku réttarfari (legalité), sem átt höfðu sér stað í landinu, eða til að bera meiri umhyggju fyrir verkalýðnum og þörfum hans. Við álítum, að í þessu efni berum við einnig okkar ábyrgð. Það var bróðurleg skylda leiðtoga okkar, sem gátu notað sér alla þá reynslu, er við höfðum af framkvæmd sósíalismans, að hjálpa ungverskum stjórnarvöldum í tæka tíð, eins og félagar, og leggja í það allt áhrifavald sitt, til að hef ja hiklausar leiðréttingar á þeim alvarlegu mistökum, sem átt höfðu sér stað, og ef ungverskir leiðtogar sýndu getuleysi eða tregðu að gera það, að gagnrýna þá opinskátt hegðun þeirra. Við vitum, að leiðtogar okkar gerðu ráðstafanir í þessa átt, en það sem gerzt hefur neyðir okkur til að álíta, að þær ráðstafanir hafi verið ófullnægjandi. Þegar ungverska þjóðin bar fram réttlátar 45
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.