Birtingur - 01.01.1957, Blaðsíða 49

Birtingur - 01.01.1957, Blaðsíða 49
húfi en daglegt viðurværi hans sjálfs. Tónlistarmaður þarf í eitt skipti að koma sér upp glymtóli og getur með því músíserað alla ævi. En áður hægt sé að færa leikrit á svið, verður að vera til gildur sjóður af beinhörðum peningum, og sé hann að láni fenginn og farist fyrir með endurgreiðslu, varðar það þungum viðurlögum. Verja þarf tugum eða hundruðum þúsunda króna til leiktjalda, búninga, húsnæðis fyrir sýninguna og annars, sem þarf til rekstrar hennar. Afleiðingin er sú, að fæst leikhús geta leyft sér að taka til flutnings verk, sem áhorfendum kann að þykja of nýtízkuleg. Þau reyna þvi að velja leikrit, sem hlotið hafa hylli annars staðar, eða ný verk sem talin eru ágóðavænleg sakir hláturvekjandi eða æsandi eiginleika. Þetta er sá þrældómsf jötur, er knýr unga höfunda, sem annars hefðu hneigzt að því að ryðja nýjar brautir, til að upphefja sama vælið og aðrir hafa kyrjað áratugina á undan. Eina færa leiðin til að losa leiklistina úr þessum f járhagsfjötrum virðist vera að skera niður kostnað við uppsetningu og rekstur leiksýninga. Þá kemur til kasta höfundanna að skrifa leikritin þannig, að þau kref jist sem minnstra f járútláta. Því minna stað- og tímabundin sem leikritin eru, þeim mun auðveldara er að gera ytri búnað þeirra á kostnaðarlítinn en listrænan hátt. Margar sviðsskiptingar, dýrir búningar, fjöldi leikara, hljómsveitir og kórar er munaður, sem höfundar geta þá fyrst leyft sér, er þeir geta þótzt nokkuð vissir um, að verk þeirra hljóti aðsókn. Margir og þá einkum háskólaprófessorar, sem sprenglærðir eru á bókina, en hafa litla nasasjón af hinu lifandi leikhúsi, hafa bent á þá sparnaðarleið að hætta alveg við notkun leiktjalda. Það væri mjög misráðið. Ekki ber að gleyma því, að einn af kostum góðrar leiksýningar er listrænt samspil hins talaða orðs og hreyfinga leikarans við myndræna túlkun í leiktjöldum, búningum og ljósum. Hins vegar mættu leikskáldin láta sér skiljast, að með því að slaka á kröfum sínum um natúraliskt umhverfi gætu þau tekið þessar hjálpargreinir í þjónustu sína í ríkara mæli, og verk þeirra yrðu þá jafnframt hæfari til flutnings sakir minni kostnaðar. Þegar hin natúraliska leikritun, sem nú ríkir, hefur runnið skeið sitt á enda, getur nútímamyndlistin haldið innreið sína í leikhúsin og gjörbreytt öllum fjárhagslegum og listrænum viðhorfum. Það má í rauninni teljast undur, þegar ungu leikskáldi tekst eftir heiðarlegum leiðum að afla sér þess frama að fá verk sitt flutt á sviði. Leikhúsin gera þá kröfu til skáldanna, að þau hafi náð miklum listrænum þroska, áður fært þyki að taka verk þeirra til flutnings. En margir höfundar, sem góðum hæfileikum eru búnir, ná ekki þeim þroska, fyrr en þeir hafa fengið tækifæri til að sjá galla fnunverka sinna á leiksviði- Leikritun er nefnilega að því leyti frábrugðin annarri skáldritun, að hún getur ekki þróazt nema í nánu sambandi við leikhúsið, svo háð er hún því. Öllum er ljóst mikilvægi þess, að ungir höfundar, sem óbundnir enr f jötrum hefðarinnar, fái færi á að læra starf sitt í nánum tengslum við starfssviðið, leikhúsið sjálft, og þeir fái verk sín sett á svið, jafnvel þótt þau séu ekki tekin til reglulegra sýninga. Sums staðar er tíðkað í leikhúsum, að öðru hverju eru tekin verk ungra höfunda, fengin í hendur reyndum 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.